Lögreglan á Austurlandi

Lögreglan á Austurlandi

Share

Lögreglan á Austurlandi þjónar fólki á landsvæðinu frá Vopnafirði í norðri að Djúpavogi í suðri. Lögreglan á Austurlandi er með lögreglustöðvar á 6 stöðum.

Aðalskrifstofa lögreglunnar á Austurlandi er á Eskifirði. Þar er síminn 444 0600. Vopnafjörður sími 444 0610
Egilsstaðir sími 444 0640
Neskaupstaður 444 0620
Eskifjörður 444 0630
Fáskrúðsfjörður 444 0660
Djúpivogur 444 0665

13/06/2026

Rétt um hundrað ökumenn voru stöðvaðir í dag á þjóðvegi 1 við Reyðarfjörð þar sem lögregla var við umferðareftirlit. Kannað var með ökuréttindi ökumanna og bílbeltanotkun, dekkjabúnað ökutækja (nagladekk), ljósabúnað þeirra og skoðun sem ástand ökumanna. Er skemmst frá því að segja að allir ökumenn voru með sitt á hreinu og ökutækin í lagi, utan þess að einn reyndist ekki geta framvísað skilríkjum er sýndu fram á gild ökuréttindi. Var þar um erlendan ferðamann að ræða.

Lögreglan mun halda eftirliti sem þessu áfram en niðurstaðan er afskaplega ánægjuleg og verðskuldar hrós til ökumanna og eigenda ökutækja sem greinilega láta hvergi skeika að sköpuðu. Vel gert.

Meðfylgjandi mynd sýnir frá eftirlitinu í dag.

Netbrot í nafni umferðarlögreglunnar | Lögreglan 04/06/2026

Lögreglu hafa borist ábendingar víða að um smáskilaboð frá umferðarlögreglunni þar sem móttakanda er gert að greiða sekt vegna „vangoldinna gjalddaga“ líkt og segir meðal annars í skilaboðunum.

Er ekki að orðlengja að þarna er um tilraun til svika að ræða sem rétt er að hafa að engu, - sjá og meðfylgjandi tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, -

Netbrot í nafni umferðarlögreglunnar | Lögreglan Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við smáskilaboðum sem eru að berast til fjöldamargra íslenskra símanúmera þessa stundina. Um er að ræða skilaboð sem sögð eru vera frá umferðarlögreglunni og fólki bent á að ýta á hlekk til að greiða sekt. Aldrei hafa borist jafn ma...

18/05/2026

Vetrarfærð virðist loksins horfin þetta sumarið, einnig á fjallvegum umdæmisins! Biðlað því til eigenda ökutækja og ökumanna að gera viðeigandi ráðstafanir varðandi dekkjabúnað bifreiða sinna.

Lögregla mun næstu daga halda úti sérstöku eftirliti með skoðun og tryggingu ökutækja, ljósabúnaði og skráningarmerkjum.

Umráðamenn hvattir til að rýna og meta hvort allt sé þarna eins og á að vera þannig að ekki þurfi að koma til afskipta.

Helstu tölur lögreglunnar á Austurlandi fyrstu fjóra mánuði ársins | Lögreglan 06/05/2026

Lögreglan á Austurlandi hefur tekið saman helstu tölur um brot og verkefni fyrstu fjóra mánuði ársins. Niðurstöðurnar sýna jákvæða þróun á nokkrum lykilsviðum.

Skráð hegningarlagabrot eru talsvert færri en að meðaltali síðustu fimm ár og um helmingi færri en á sama tíma í fyrra. Umferðarlagabrot eru á svipuðu róli og undanfarin ár, á meðan umferðarslysum hefur fækkað miðað við meðaltal síðustu ára.

Fjöldi fíkniefnamála er í samræmi við árin 2022 til 2024, eftir toppa árin 2021 og 2025. Þá hefur skráðum málum sem varða heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra eða tengdra farið fækkandi undanfarin ár.

Lögreglan mun áfram fylgjast náið með þróuninni og birta reglulega upplýsingar í samræmi við stefnu embættisins um gagnsæi og upplýsingagjöf. Sjá og vef lögreglu;

Helstu tölur lögreglunnar á Austurlandi fyrstu fjóra mánuði ársins | Lögreglan Lögreglan á Austurlandi, í samræmi við stefnu embættisins og markmið, tekur reglulega saman upplýsingar um fjölda helstu brota og verkefna til birtingar.

21/04/2026

Ríflega þrjátíu ökumenn hafa verið stöðvaðir frá því á föstudag vegna hraðaksturs í umdæminu. Flest hafa brotin átt sér stað á hringveginum en einnig innan þéttbýliskjarna í fjórðungnum.

Ástæðulaust er að árétta þá hættu sem af hraðakstri stafar en ánægjulegt hinsvegar að benda á að umferðarslys það sem af er ári eru rétt um helmingi færri en þau voru á sama tíma í fyrra. Slík niðurstaða er ekki sjálfgefin.

Höldum áfram að sýna árangur í fækkun slysa, - förum varlega, gætum að ökuhraða og stuðlum þannig að eigin öryggi og annarra.

Umferðin 11/04/2026

Óvissustig hefur tekið gildi vegna snjóflóðahættu á Fagradal við Grænafell. Aukin hætta þegar líður á nóttina. Krapi og éljagangur er á Fagradal. https://umferdin.is/

Þá er þæfingsfærð milli Fellabæjar og Hlíðarvegar, snjóþekja og éljagangur á Fjarðarheiði og Vatnsskarði eystra sem og éljagangur á Jökuldal. Ófært er um Öxi og Breiðdalsheiði.

Ferðalangar eru hvattir til að kynna sér færð á vegum áður en af stað er haldið.

Umferðin Upplýsingar um færð á vegum

Umferðin 05/04/2026

Óvissustigi hefur að nýju verið lýst yfir á Fagradal við Grænafell vegna snjóflóðahættu. Veginum kann að vera lokað með skömmum fyrirvara. Snjóþekja eða hálka er á flestum leiðum í umdæminu, ófært á Öxi, Breiðdalsheiði og Vatnsskarði eystra.

Fylgjumst vel með veðurspá og færð á vegum, förum varlega.

Umferðin Upplýsingar um færð á vegum

Umferðin 04/04/2026

Búast má við að færð á vegum fari mjög að spillast í umdæminu með aukinni ofankomu. Fjarðarheiði er lokuð sem og Vatnsskarð eystra sem er ófær. Þá hefur óvissustigi verið lýst yfir á Fagradal vegna snjóflóðahættu við Grænafell. Þar gæti lokað með skömmum fyrirvara.

Vegfarendur hvattir til að fylgjast vel með veðurspá og færð á vegum.

Umferðin Upplýsingar um færð á vegum

Umferðin 02/04/2026

Vegna slæmra veðurskilyrða á Fagradal er líklegt að veginum verði lokað fljótlega. Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast vel með upplýsingum um færð á vegum á vef Vegagerðar;

Umferðin Upplýsingar um færð á vegum

31/03/2026

Í kjölfar máls er upp kom á Suðurlandi síðastliðinn sunnudag og varðar meintan þjófnað úr verslun í Freysnesi, hóf lögreglan á Austurlandi eftirgrennslan. Þrjú ökutæki voru stöðvuð af lögreglu seinnipartinn í gær vegna þessa máls í umdæminu. Miðað við fyrirliggjandi upplýsingar, meðal annars myndir úr eftirlitskerfi verslunarinnar, er ekkert sem bendir til sektar þeirra er í ökutækjunum voru.

Want your business to be the top-listed Government Service in Eskifjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Strandgata 52
Eskifjörður
735