01/03/2026
Afar slæm veðurspá á morgun, mánudag.
Viljum vekja athygli á slæmri veðurspá á morgun.
Hvetjum þá sem ekki þurfa að vera á ferðinni að vera heima. Þeir sem þurfa að vera á ferðinni fylgist vel með veðurspá og færð á vegum.
Förum varlega og komum heil heim.
vedur.is | Viðvaranir | Veðurstofa Íslands
© Veðurstofa Íslands | Bústaðavegi 7-9 | 105 Reykjavík | Sími 522 6000 | Kennitala 630908-0350 Hafa samband | Starfsfólk | Notkunarskilmálar | Veftré | Spurt og svarað um vefinn | Persónuvernd
11/01/2026
Gul veðurviðvörun tekur gildi í kvöld og fram yfir miðnætti á þriðjudag. Spáð er norðan fimmtán til tuttugu og þremur metrum á sekúndu með snörpum hviðum. Él eða snjókoma sem getur leitt til varasamra akstursaðstæðna, jafnvel ófærðar.
Ferðalangar hvattir til að fylgjast vel með veðurspá og færð, ekki síst á fjallvegum í umdæminu.
05/01/2026
Björgunarsveitin Brimrún vill hér með tilkynna að sveitin hefur undanfarna mánuði unnið að umfangsmikilli fjáröflun með það markmiði að tryggja kaup á nýjum björgunarbáti, sem ætlaður var til að styrkja viðbragðsgetu sveitarinnar og efla öryggi sjófarenda á svæðinu. Markmið fjáröflunarinnar var að tryggja nauðsynlegt fjármagn til að mæta þeim kröfum sem gerðar eru til björgunarbúnaðar í dag, bæði hvað varðar tæknilega getu og rekstraröryggi.
Þrátt fyrir ríkan áhuga, rausnarleg framlög og myndarlegan stuðning fjölda einstaklinga, fyrirtækja og félagasamtaka, hefur það leitt í ljós að við munum ekki ná að safna því fjármagni sem þarf til að ráðast á kaupin. Slíkt fjármagn er óhjákvæmilegt til að tryggja öryggi- og þjónustu björgunarbáts sem starfsemi sveitarinnar krefst.
Í ljósi þessarar stöðu hefur stjórn Brimrúnar ákveðið að setja báða núverandi björgunarbáta sveitarinnar á sölu, báðir bátarnir hafa þjónað okkur og nærsamfélaginu vel um árabil en eru nú komnir til ára sinnar. Sala bátanna er hugsuð sem liður í því að skapa fjárhagslegt svigrúm til endurnýjunar björgunarbúnaðar þegar aðstæður leyfa og að tryggja áframhaldandi öryggi í starfsemi sveitarinnar.
Björgunarsveitin Brimrún vill koma á framfæri innilegum þökkum til allra þeirra sem lögðu málefninu lið með áheitum sínum, framlögum og öðrum stuðningi. Þátttaka ykkar hefur skapað mikilvægan sess í þeirri vinnu sem okkar sjálfboðaliðar lögðu í verkefnið og er það okkur dýrmæt.
Sveitin mun áfram vinna markvisst að því að tryggja viðbragðshæfni, búnaðar og starfsemi séu ávallt til fyrirmyndar.
30/12/2025
Innköllun á Rakettupakka 2!
Slysavarnafélaginu Landsbjörg bárust í kvöld ábendingar um að galli væri í einhverjum rakettum sem seldar hafa verið í Rakettupakka 2.
Við prófun kom í ljós að einhverjar þeirra sprungu of snemma.
Því hefur verið tekin sú ákvörðun um að taka Rakettupakka 2 úr sölu og kalla inn þá pakka sem hafa verið seldir.
Þau sem hafa keypt Rakettupakka 2 eru hvött til að koma með hann á næsta sölustað og skipta honum út fyrir aðra vöru.
Hægt verður að skipta út pakkanum á morgun þar til sölustaðir loka, sem og á opnunartíma fyrir þrettándann.
Meðfylgjandi eru ljósmyndir af pakkanum og þeim rakettum sem í honum eru.
Slysavarnafélaginu Landsbjörg þykir miður að viðskiptavinir verði fyrir óþægindum vegna þessa, en öryggi okkar allra þarf alltaf að vera í fyrirrúmi.
30/12/2025
Vegna óhagstæðs veðurs 31.desember hefur Björgunarsveitin Brimrún ákveðið að færa flugeldasýningu sína til dagsins í dag, 30. desember. Flugeldasýningunni verður skotið upp á milli kl. 20:30 og 21:00. Við vonum að sem flestir sjái sér fært að njóta sýningarinnar og þökkum sýndan skilning.
29/12/2025
Ár hvert hafa margir samband sem vilja styrkja starf sveitarinnar án þess að versla flugelda.
Hægt er að styrkja starf Brimrúnar með frjálsu framlagi.
Styrktarreikningur okkar er:
BANKI: 0167-05-010019
KT. 710186-1389
Skrifa þarf í athugasemd með millifærslu „Styrkur 2025“ og þá fara upplýsingar um styrkinn í gagnagrunn Skattsins.
Björgunarsveitin Brimrún er á almannaheillaskrá Ríkisskattstjóra. Styrkir til sveitarinnar eru því frádráttarbærir frá skatti hvort sem um er að ræða einstaklinga eða fyrirtæki.
28/12/2025
✨ Gleðilega hátíð! ✨
Nú fer að styttast í áramótin, Flugeldasalan er að hefjast og bjóðum við ykkur hjartanlega velkomin til okkar.
Strandgata 11