09/06/2026
Við erum í skýjunum yfir góðri þátttöku í Sumarlestrinum því strax á fyrstu viku eru hundrað börn búin að skrá sig til leiks og fjölmargir umsagnarmiðar komnir í lukkukassann. Fyrsti lestrardreki vikunnar verður dreginn út 18.júní og fær hann bók í verðlaun. Hægt að skrá sig hvenær sem er í allt sumar og leyfilegt er að lesa hvað sem er. Setjið ykkur lestrarmarkmið og lesið með drekakrafti svo þið verðið í frábæru lestrarformi í haust. Lesum saman í sumar! Eldklár lestur með læsisdrekanum!
Bókasafn Garðabæjar
Þinn staður
Aðalsafn | Garðatorg 7
Álftanessafn | Álftanesskóla
01/06/2026
Opnunarhátíð Sumarlesturs fór fram síðastliðinn laugardag. Fjölmargir mættu til að skrá sig í lestrarátakið og fá glæsileg blöðrudýr hjá Blaðraranum. Börnin fengu afhenta lestrardagbók og umsagnarmiða til að skila í lukkukassann en úr honum verður lestrardreki vikunnar dreginn á fimmtudögum 18.júní - 20.ágúst. Læsisdrekinn og Blaðrarinn voru alsælir með daginn og öll áhugasömu börnin sem ætla að lesa með drekakrafti í sumar! Takk öll kærlega fyrir komuna.
29/05/2026
Jæja krakkar, þá er komið að því! Skráning í Sumarlestur hefst á morgun á opnunarhátíðinni kl.12-14. Lestrardagbækur afhentar, blaðrarinn mætir og krítar á torginu. Læsisdrekinn okkar er alveg svakalega spenntur og vonast til að sjá sem flesta í frábæru lestrar- og sumarskapi. Lestur er minn drekakraftur! Lesum saman í sumar!
23/05/2026
Kæru gestir, það verður lokað hjá okkur á mánudaginn.
20/05/2026
Vegna óviðráðanlegra aðstæðna þurfum við því miður að loka Álftanessafni kl. 16:30 í dag, miðvikudag. Við mælum með heimsókn á Bókasafn Garðabæjar á Garðatorgi 7 en þar er opið til 19 í kvöld. Við biðjumst afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kanna að valda.
15/05/2026
Litrík og fögur sumarblóm litu dagsins ljós í föndursmiðju í morgun. Vel gert krakkar! Takk kærlega fyrir komuna.
12/05/2026
Kæru bókasafnsgestir, það verður lokað hjá okkur á fimmtudaginn.