13/12/2023
Bókasafnið á þennan fínan skáp þar sem hægt er að stilla upp ýmsum skemmtilegum munum. Í dag kom nemandi færandi hendi með fótboltamyndasafnið sitt og er það nú til sýnis fyrir gesti safnsins.
Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Bókasafn Gerðaskóla, Library, Garðbraut 90, Garður.
Bókasafn Gerðaskóla er opið:
mánudaga og þriðjudaga frá 8:15 - 12:30
miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga frá 8:15 - 13:00
Umsjónarmaður safnsins er Freydís Kneif Kolbeinsdóttir
13/12/2023
Bókasafnið á þennan fínan skáp þar sem hægt er að stilla upp ýmsum skemmtilegum munum. Í dag kom nemandi færandi hendi með fótboltamyndasafnið sitt og er það nú til sýnis fyrir gesti safnsins.
08/12/2023
Sögustund hjá 2. bekk í dag. Við lásum nýútgefna bók eftir Benný Sif Ísleifsdóttur sem heitir Einstakt jólatré 🌲
01/12/2023
Duttum aldeilis í lukkupottinn í dag á bókasafninu. Nemendur á unglingastigi komu okkur rækilega á óvart og færðu okkur þessi dásamlegu bókamerki til að gefa bókaormum skólans ❤️
21/11/2023
Jólabókaflóðinu fylgja auðvitað jólaskreytingar 🎅
18/10/2023
Hrekkjavaka nálgast...nýjar bækur að detta í hús!
11/10/2023
Bókaklúbbarnir eru vinsælir á safninu. Allir klúbbarnir eru staðsettir í sömu hillunni og því auðvelt fyrir nemendur að ná í næstu bók úr klúbbnum, svo er líka gott að kikja aðrins á hina klúbbana og fá þannig hugmyndir að næsta bókaklúbb til að lesa!
31/08/2023
Bókaklúbbarnir byrja formlega á morgun 1. september. Margir nýjir klúbbar í boði. Það verður gaman að fylgjast með og sjá hvaða klúbbar slá í gegn. Viðurkenningar verða veittar þeim sem klára bókaklúbba. Afhending viðurkenninga fer fram annan og fjórða föstudag í mánuði.
Þeir sem ekki vilja vera í klúbb geta fengið risabókamerki og fyllt út reitina á þeim samhliða lestrinum og fengið viðurkenningu í vetur fyrir lestrardugnaðinn.
24/08/2023
Nýtt skólaár að byrja og við byrjum veturinn á að að auglýsa eftir herra/ungfrú bókum. Safnið á eitthvað af bókum en margar eru ófáanlegar hjá útgefanda og því langar okkur að biðja ykkur að athuga hvort þær liggi í geymslum eða á hálaloftinu/í kjallaranum hjá ykkur. Okkur þætti vænt um að fá þær til okkar hér á safnið.
Í morgun áskotnaðist okkur 12 nýjar bækur, en nemandi í 3. bekk kom færandi hendi með þessar gersemar, þær eru nú á leið í plöstun og verða tilbúnar til útláns á morgun ❤️
09/06/2023
12/05/2023
Á vorhátíð skólans í næstu viku verðum við með bókamarkað á safninu.
20/03/2023
Alltaf eitthvað nýtt að gerast á safninu. Endalaust hægt að breyta og bæta😀 Spil skólans eru vinsæl og eru nú komin á einn stað á safninu. Nýja hæðarlinan er vinsæl og nemendur á öllum aldri mæla hæð sína þegar þau koma á safnið. Gaman að sjá hvað skáldsagnapersónur eru hávaxnar…nú eða lágvaxnar. Við erum hægt og rólega að koma bókum fyrir yngri nemendur fyrir í hillum og sortera frá bækur fyrir leikskóla aldurinn. Leikskólabækurnar hafa svo fengið nýtt líf í leikskólanum Gefnaborg. 🙂
24/02/2023
Hefðarkötturinn Lillý heimsótti okkur í dag 🐱 Alltaf gaman að fá gesti á safnið okkar. Lillý las enga bók en fékk smá klapp og klór 🥰
| Monday | 08:15 - 12:30 |
| Tuesday | 08:15 - 12:30 |
| Wednesday | 08:15 - 13:30 |
| Thursday | 08:15 - 12:30 |
| Friday | 08:15 - 12:30 |