Björgunarsveitin Klakkur

Björgunarsveitin Klakkur

Share

Bein framlög til sveitarinnar er hægt að leggja inn á reikning okkar:
0321-26-0239 kt. 480781-0239

09/04/2026

Vorfundur smábátasjómanna 2026 verður haldinn 9. apríl 2026 frá kl. 17:00 - 18:30 í
Björgunarsveita húsi Klakks, Sólvöllum 17a

Fundurinn verður í beinu streymi.
Dagskrá:
📍Opnun: Kjartan Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda.
📍Dagskrá og önnur mál, Þorsteinn Þorkelsson sérfræðingur hjá Samgöngustofu.
📍Umræður og sýnikennsla um frágang, uppsetningu og losun björgunarbáta. Einar Magnús Magnússon og Árni Elvar Emilsson starfsmenn Samgöngustofu.
📍Hættumat um borð. Einar Magnús Magnússon og Árni Elvar Emilsson.
Kaffihlé
📍Frumsýning á nýjum auglýsingum Slysvarnafélagsins Landsbjargar og Samgöngustofu um frágang og uppsetningu björgunarbáta og mikilvægi gátlista áður en lagt er af stað úr höfn.
📍Aggan, öryggisapp fyrir smábáta, Gísli Níls Einarsson hjá Alda Öryggi.
📍Kynning og umræður um öryggismál smábáta. Bogi Þorsteinsson skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna.
📍Áherslur aðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar vegna strandveiða.
📍Skútan lögskráningarkerfi sjómanna notkun og forsendur. Bjarki Sigþórsson, fagstjóri náms og skírteinamála sjófarenda hjá Samgöngustofu.
📍Umræður ef tími gefst til (fundarmönnum verður líka boðið að senda spurningar inn á fundinn sem verður svarað á fundinum eða eftir hann gefist ekki tími til).
Áhugasömum gefst möguleiki að hitta aðra sjómenn, ræða málin og njóta kaffiveitinga.

Photos from Björgunarsveitin Lífsbjörg, Snæfellsbæ's post 18/03/2026
10/02/2026
Þrettándagleði Grundarfjarðarbæjar 05/01/2026

Opið i flugeldasölunu hja okkur 15:30 - 17:00 nó eftir

Þrettándagleði Grundarfjarðarbæjar Þrettándagleði þriðjudaginn 6. janúar frá kl. 17:00-18:00. Þrettándagleðin hefst með skrúðgöngu frá Fellaskjóli inn í Þríhyrning kl. 17:00 Heitt kakó í boði, endilega mæta með fjölnota drykkjarmál. Tilvalið að koma með sykurpúða á spjóti til að grilla í varðeldinu...

02/01/2026

Þakkir til bæjarbúa fyrir tiltekt!
💥 Sérstökum gám fyrir flugeldarusl var komið fyrir neðan við þjónustumiðstöð bæjarins, Nesvegi 19, fyrir áramótin, og er ánægjulegt að sjá að hann hefur fengið góðar viðtökur og verið vel nýttur.
💥 Ennþá má þó gera betur! Veðrið er gott og það er auðvelt að hirða upp og sópa flugeldarusli sem enn liggur eftir gleði áramótanna. Sýnum gott fordæmi og hirðum upp eigið rusl.
💥 Gámurinn verður aðgengilegur fram yfir helgina, en einnig er söfnunarstöð sorps (gámastöðin) opin laugardag 3. jan. kl 12-14. Sjá nánar með því að smella á þessa frétt:
https://www.grundarfjordur.is/is/frettir-og-tilkynningar/gamur-fyrir-flugelda

31/12/2025

💥Sigurvegaranir úr gjafaleiknum okkar 2025 💥

30/12/2025

Innköllun á Rakettupakka 2!

Slysavarnafélaginu Landsbjörg bárust í kvöld ábendingar um að galli væri í einhverjum rakettum sem seldar hafa verið í Rakettupakka 2.

Við prófun kom í ljós að einhverjar þeirra sprungu of snemma.



Því hefur verið tekin sú ákvörðun um að taka Rakettupakka 2 úr sölu og kalla inn þá pakka sem hafa verið seldir.

Þau sem hafa keypt Rakettupakka 2 eru hvött til að koma með hann á næsta sölustað og skipta honum út fyrir aðra vöru.

Hægt verður að skipta út pakkanum á morgun þar til sölustaðir loka, sem og á opnunartíma fyrir þrettándann.



Meðfylgjandi eru ljósmyndir af pakkanum og þeim rakettum sem í honum eru.



Slysavarnafélaginu Landsbjörg þykir miður að viðskiptavinir verði fyrir óþægindum vegna þessa, en öryggi okkar allra þarf alltaf að vera í fyrirrúmi.

30/12/2025

INNKÖLLUN Á "RAKETTUPAKKA 2" VEGNA GALLA!

Slysavarnafélaginu Landsbjörg bárust í kvöld, þriðjudagskvöld, ábendingar um að galli væri í einhverjum rakettum sem seldar hafa verið í Rakettupakka 2.
Við prófun kom í ljós að einhverjar þeirra sprungu of snemma.

Því hefur verið tekin sú ákvörðun um að taka Rakettupakka 2 úr sölu og kalla inn þá pakka sem hafa verið seldir.
Þau sem hafa keypt Rakettupakka 2 eru hvött til að koma með hann á næsta sölustað og skipta honum út fyrir aðra vöru.
Hægt verður að skipta út pakkanum á gamlársdag, þar til sölustaðir loka, sem og á opnunartíma fyrir þrettándann.

Slysavarnafélaginu Landsbjörg þykir miður að viðskiptavinir verði fyrir óþægindum vegna þessa, en öryggi okkar allra þarf alltaf að vera í fyrirrúmi.

30/12/2025

Minnum á að það er opið frá kl 10-16 hjá okkur á morgun.

Af gefnu tilefni hvetjum við alla þá sem hafa keypt Rakettu pakka 2 af okkur að koma og skila honum/skipta út, vegna innköllunnar.

Want your business to be the top-listed Government Service in Grundarfjörþur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Website

Address


Sólvellir 17a
Grundarfjörþur
350