Skólabókasafnið í Grundó

Skólabókasafnið í Grundó

Share

Bókasafn Grunnskóla Grundarfjarðar er opið fyrir útlán alla skóladaga. Einnig fer fram á bókasafninu kennsla nemendahópa og safnfræðsla.

Photos from Skólabókasafnið í Grundó's post 08/06/2026

Á degi barnsins, 31.maí s.l., fékk leshópurinn Köttur úti í mýri veglegan styrk úr Barnamenningarsjóði eða heila miljón króna! Styrkurinn er ætlaður til að standa straum af Jólabókaflóði barnanna sem verður haldið í þriðja sinn þann 25. nóvember (já það er sko aldeilis komin dagsetning krakkar) í samkomuhúsinu okkar hér í Grundarfirði. Þær Elsa Björnsdóttir og Helga Hafsteinsdóttir fóru fyrir hönd leshópsins og veittu þessum styrk viðtöku og það var sérlega gaman að sjá Elsu í svona fallegum jólarauðum kjól við þetta tilefni.

Það er líka gaman að segja frá því að í lok janúar s.l. fékk leshópurinn einnig styrk frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands , alls 200 þúsund, ætlað í sama verkefni.

Það verður því afskaplega skemmtilegt að hefjast handa eftir sumarfrí og teikna upp með börnunum þennan frábæra viðburð sem er vonandi kominn til að vera.

Við færum þessum sjóðum og stjórnarfólkinu sem stýrir þeim okkar hjartans þakkir.

https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2026/06/01/Barnamenningarsjodur-uthlutar-90-milljonum-til-43-verkefna/

08/05/2026

Í tilefni dagsins ákvað ég að trufla unglingana í frímínútunum með þessari spurningu: Vitið þið hver David Attenborough er?

„Það er þarna náttúrufræðigaurinn"

"Gamli kallinn á BBC"

"Þessi er sem er alltaf í sjónvarpinu"

Besta svarið kom samt í morgun hjá fyrsta bekk:

"Það er kallinn í sjónvarpinu sem fann upp öll skordýrin!"

Og svo sannarlega er hann þetta allt.

Mikið hefði nú verið gaman ef við krakkarnir hefðum getað slegið á þráðinn til hans í morgun, óskað honum til hamingju og sagt honum allt sem við vitum um hann sem er greinilega hellingur.

En við látum þessa rafrænu kveðju duga :)

Til hamingju með 100 ára afmælið elsku David, megir þú passa jörðina og dýrin í mörg ár í viðbót 🥳🥳

Photos from Skólabókasafnið í Grundó's post 27/04/2026

Uppskeruhátíð skólabókasafnins var haldin í Sögumiðstöðinni á sumardaginn fyrsta og tókst svona líka afbragðsvel. Þessi uppskeruhátíð var samstarf grunnskólans og leshópsins „Köttur úti í mýri" en leshópurinn sá um veitingar og bóksölu og skólabókasafnið seldi 3D prentaðar fígúrur.

Þema lestrarátaksins á skólabókasafninu var teiknimyndasögur og aðeins var hægt að versla bækurnar og 3D fígúrurnar á uppskeruhátíðinni með bandarískum dollurum sem krakkarnir höfðu unnið sér inn með lestri í teiknimyndasöguátakinu. Herdís bankastjóri skellti svo upp gjaldkeraborði í Sögumiðstöðinni og þar gátu krakkarnir leyst út innistæður til að versla fyrir.

Það var þrusugóð mæting í Sögumiðstöðina þennan dag en alls voru það 35 börn sem tóku þátt í átakinu og kepptust við að lesa sögur um Lukku-Láka, Tinna, Viggó Viðutan, Ástrík og fullt af öðrum allskyns persónum sem sumum voru löngu gleymdar.

Bókaútgefendur voru svo frábærir að styrkja okkur og fengum við bókagjafir frá þeim til að „selja“ í bókabúðinni í Sögumiðstöðinni. Við þökkum öllum sem mættu kærlega fyrir komuna og leshópurinn þakkar eftirfarandi bókaútgáfum sérstaklega fyrir veglegar bókagjafir:

Drápa
Rósakot
Bókabeitan
Ugla útgáfa
Bjartur&Veröld
Edda útgáfa

Photos from Skólabókasafnið í Grundó's post 08/04/2026

Á hverju ári gefur barnamenningarfélagið IBBY öllum grunnskólabörnum á Íslandi smásögu í tilefni af degi barnabókarinnar sem er í dag, miðvikudaginn 8. apríl. Í ár var það Hjalti Halldórsson rithöfundur sem fékk þann heiður að semja sögu í tilefni dagins en krakkarnir í Grundarfirði þekkja Hjalta vel og hans frábæru sögur, enda var hann gestur á bókaviðburðinum þeirra árið 2024 og mætti þá með bækurnar „Hinn eini sanni jólasveinn" og „Bannað að vekja Grýlu".

Smásagan sem Hjalti samdi fyrir þennan dag barnabókarinnar heitir „Hetja dagsins" og hann flutti hana sjálfur á Rás 1 kl. 9.05 í þætti Sigurlaugar Jónasdóttur „Segðu mér". Söguna verður hægt að finna á vefsíðu IBBY og við hvetjum ykkur til að finna þáttinn í spilara Rúv og hlusta.

Takk fyrir okkur Hjalti, krakkarnir voru sammála um að sagan væri bæði spennandi og ferlega fyndin.

Á meðfylgjandi myndum má sjá nemendur 1. bekkjar og nemendur 7. bekkjar sem hlustuðu á upplestur Hjalta í línulegri dagskrá Rásar 1 í útvarpinu í morgun. Svo skellti ég með einni mynd í lokin sem tekin var á Jólabókaflóði barnanna árið 2024, þar sem Hjalti tók þátt í pallborðsumræðum með ánægðum lesendum bókarinnar „Hinn eini sanni jólasveinn".

Teiknimyndasögur 18/03/2026

Þetta er skemmtileg frétt :) Það geta ekki allir skrifað og teiknað teiknimyndasögur, það er flókið form og vandasamt. Til hamingju Benjamín Æsir með þessa flottu sögu.

Teiknimyndasögur "Núna eru teiknimyndasögur í aðalhlutverki á skólabókasafninu og nemendur tæta í sig gamlar sögur af Ástríki og Steinríki, Tinna, Viggó Viðutan, Lukku Láka og Sval og Val. Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt og margar áhugaverðar umræður sem hafa skapast í kringum þessa...

Úrslit Stóru upplestrarkeppninnar 06/03/2026

Þessi fóru, sáu og sigruðu ❤️

Úrslit Stóru upplestrarkeppninnar Stóra upplestrarkeppnin var haldin fimmtudaginn 5. mars í Ólafsvíkurkirkju. Eins og áður, mættu til leiks níu keppendur, þrír úr Snæfellsbæ, þrír úr Stykkishólmi og þrír úr skólanum okkar hér í Grundarfirði. Krakkarnir okkar stóðu sig eins og hetjur, fluttu texta og ljóð ...

Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar 18/02/2026

Til hamingju Bergur Ingi, Jódís Kristín og Telma Dís! Og vá hvað þetta voru allt flottir krakkar sem tóku risastórt stökk út fyrir þægindarammann sinn í gær.

Undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar

Photos from Skólabókasafnið í Grundó's post 06/02/2026

Við höldum áfram að benda á þessa afbragðsgóðu þætti hennar Emblu Bachmann, sem hægt er að finna í spilara Rúv. Sér í lagi þegar viðmælendur í þáttunum eru svona sérstaklega skemmtilegir 🙂 Þarna eigum við nú aldeilis okkar konu en Kristín María í 5. bekk mætti nefnilega til Emblu og ræddi bókina „Drottningin af Galapagos" eftir Felix Bergsson. Við hvetjum alla til að hlusta á þennan skemmtilega þátt.

https://www.ruv.is/utvarp/spila/hvad-ertu-ad-lesa/35972/bkocvj

Photos from Skólabókasafnið í Grundó's post 03/02/2026

Nú er farið af stað teiknimynda-lestrarátak á skólabókasafninu og þátttakendur ætla að gerast bókaglæponar í anda villta vestursins. Í því felst að lesa allskyns teiknimyndir og eins og í villta vestrinu hér áður fyrr verða þessir glæponar eftirlýstir af skólabókasafnslögreglunni og verðlaunafé greitt út ef næst að handsama þá. Með hverri bók sem þau lesa, hækkar verðlaunaféð til höfuðs þeim um 1000$$$!!

Reglurnar í þessum leik eru sumsé svona:

Krakkarnir lesa teiknimyndasögur og eftir fimm bækur eru þau orðin eftirlýst og komin á veggspjald sem hengt er upp á vegg í skólanum.

Þau sem taka þátt geta svo reynt að handsama hvort annað með því að lokka glæponana á veggspjöldunum niður á skólabókasafn og á bak við rimlana hjá sherfiff bókasafnsins.

Ef það tekst fær sá sem náði að handsama glæponinn (og skila honum í heilu lagi og í góðu) greitt út verðlaunaféð.

Peningana verður svo hægt að nota seinna meir sem alvöru peninga við ákveðið tilefni sem verður útskýrt síðar.

Í stuttu máli, þau lesa teiknimyndabækur og reyna að klófesta eftirlýst bókaglæpamenni og það verður spennandi að sjá veggspjöldin birtast á veggjum skólans næstu daga. Og aldrei að vita nema einhverjir fullorðnir innan skólaveggjanna leyni á sér í teiknamyndasögulestri.

14/01/2026

Bók Sváfnis Sigurðarsonar „Brandarabíllinn" er til umfjöllunar í nýjasta þætti Emblu Bachmann „Hvað ertu að lesa?". Markús Örn Pálsson í 5. bekk las þá bók fyrir jólin og skrifaði um hana smá umfjöllun. Embla fékk hann því í þáttinn til að ræða bókina. Við hvetjum ykkur til að hlusta á þennan þátt en hann birtist í spilara Rúv 12. janúar s.l.

Við eigum svo eftir að vekja athygli ykkar á fleiri þáttum þar sem grundfirsk grunnskólabörn setjast í stól álitsgjafans í þáttum Emblu Bachmann.

https://www.ruv.is/utvarp/spila/hvad-ertu-ad-lesa/35972/bkocvi

Want your business to be the top-listed Government Service in Grundarfjörþur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Grundarfjörþur
350