Bókasafn Grundarfjarðar

Bókasafn Grundarfjarðar

Share

Bókasafn Grundarfjarðar
🔗 menning_grundarfjordur
✉️ [email protected]
📞 sími: 438 1881 Einnig ítarlegri útlistun á reglum og safnefni. Ekkert árgjald.

Bókasafn Grundarfjarðar er í Sögumiðstöðinni að Grundargötu 35 Grundarfirði. Þar er einnig upplýsingamiðstöðin, Bæringsstofa sem er safn ljósmynda Bærings Cecilssonar og lítið minjasafn úr sögu byggðarlagsins. Bókasafnið lánar bækur, tímarit og hljóðbækur og veitir alla almenna upplýsingaþjónustu og heimildaleit. Vefsíða bókasafnsins geymir bóka- og heimildaskrár, ábendingar og tengla. Forstöðumað

14/04/2026

Rykið dustað af Gæsahúð bókunum 📚
Núna eru krakkarnir sem lásu þessar bækur sjálf orðin foreldrar mörg hver og gaman að rifja upp með krökkunum sínum.
Örvum lestur krakkanna með spennandi bókum

09/04/2026

Þegar það vorar hægt og rólega
er notarlegt að taka bók og láta sig dreyma 📚

Photos from Bókasafn Grundarfjarðar's post 08/04/2026

Mæli með þessari bók 📚
Núna þegar við höfum fengið hverja lægðina á fætur annari með gulum og apelsínugulum viðvörunum er fróðlegt að líta til baka og fræðast um hvernig íslenskir sjómenn upplifðu þá ógn sem veður og ísing skapaði á Halanum.

Photos from Bókasafn Grundarfjarðar's post 31/03/2026

Kvöldsögur Uppreisnagjarnar stelpur -
100 magnaðar konur er bók sem sannarlega hægt að mæla með.
Þetta er bók sem Sunna Njálsdóttir pantaði á sínum tíma fyrir bókasafnið og benti okkur á.
Grace O'Malley sem var fædd árið 1530 hún var írskur klanhöfðingi eða sjódrottning og öflugur sjóræningi/sjófarari. Hún stýrði flota, stundaði verslun og ránsferðir.
Vissuð þið að fyrr á öldum voru allavega tvær konur sjóræningjar og báðar rauðhærðar? Sylvia Earle gengdi frábæru og spennandi starfi sem sjávarlíffræðingur.
Policapra frá Colombia var njósnari.
Rosa Parks braut blað þegar hún neitaði að standa upp fyrir hvítu fólki í strætó og sýndi aðdáunarvert hugrekki á þeim tíma í Suðurríkjum Bandaríkjanna.
Margaret Hamilton er bandarískur tölvunarfræðingur fædd árið 1936 (löngu fyrir tölvutæknina) hún leiddi þróun hugbúnaðar fyrir Apollo-geimferðaáætlanir NASA. Það var hugbúnaður hennar sem tryggði örugga lendingu Apollo 11 á tunglinu árið 1969.
Bókin er sem sagt full af skemmtilegum og lærdómsríkum fróðleik 📚

Photos from Bókasafn Grundarfjarðar's post 26/03/2026

Skíðað gegnum söguna er bók sem hægt er að mæla með þessa daga þegar allt er á kafi í snjó og skíðalyftunni var startað í gær 25 mars.
Í bókinni er skemmtilegur fróðleikur sem nær hundruði ára aftur í tímann.
Rakin er saga skíðaíþróttarinnar hér á landi, farið er yfir og rakin saga uppbyggingu skíðaskála á skíðasvæðum hér á landi með nokkrum góðum tilvitnunum og frásögnum af eftirminnilegum ferðum og byggingum. Lokakafi bókarinnar fjallar um uppbyggingu og aðdraganda þess að skíðaiðkun hefst í Bláfjöllum. Bókin er ríkulega myndskreytt og með góðri heimildar- og nafnaskrám. Auk þess eru fróðlegar töflur og nafnalistar sem gera bókina að góðu uppsláttarriti líka.

26/03/2026

Miðvikudagurinn 1. apríl er síðasti dagur til að ná sér í bók til að lesa með páskaegginu! 📖☕️🍫

23/03/2026

Við viljum vekja athygli á skemmtilegum og fróðlegum bókum sem hafa verið til hjá okkur í nokkur ár og alltaf gaman að grípa í og rifja upp
Hér kemur ein tillaga, virkilega góðar bækur 📚

Teiknimyndasögur 19/03/2026

Skemmtileg frétt frá Skólabókasafninu 📚

Teiknimyndasögur "Núna eru teiknimyndasögur í aðalhlutverki á skólabókasafninu og nemendur tæta í sig gamlar sögur af Ástríki og Steinríki, Tinna, Viggó Viðutan, Lukku Láka og Sval og Val. Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt og margar áhugaverðar umræður sem hafa skapast í kringum þessa...

19/03/2026

Krabbameinsfélag Snæfellsnes færði bókasafninu bókina Kona verður orðlaus.
Bókin er eins og segir lygilega sönn reynslusaga höfundar Birnu G. Konráðsdóttur.
Bókin fjallar um málóða konu sem varð ,,orðlaus" bæði vegna krabbameins í barka og samskipta við íslenska heilbrigðiskerfið.
Myndin er tekin þegar Mjöll Guðjónsdóttir færir bókasafninu bókina, það er Olga Sædís Aðalsteinsdóttir starfsmaður bókasafnsins sem tekur við þessari góðu gjöf.

17/03/2026

Bækurnar Karítas án titils og Óreiða á striga eftir Kristínu Marju Baldursdóttur eru til hjá okkur á bókasafninu 📚
Karítas Jónsdóttir fetsr aðra slóð í lífinu en fjölskylda hennar og samferðafólk vill marka henni. Hér er á ferðinni stórbrotin og kröftug þroskasaga konu sem fer sínar eigin leiðir.
Lýsingarnar kalla fram í hugann ótal merkar listakonur, bæði íslenskar og erlendar sem eiga samnefnara sinn í Karítas.
Óreiða á striga er sjálfstætt framhald af Karítas án titils. Stórbrotin örlagasaga segir
Egill Helgason í Kiljunni

Photos from Bókasafn Grundarfjarðar's post 17/03/2026

Bókin Áfall hvað svo? Eftir Dr. Sigrúnu Sigurðardóttur er komin til okkar á bókasafnið.
Sigrún hjálpar lesendum bókarinnar að skilja hvað felst í áföllum og hvaða áhrif þau geta haft á líf okkar.
Hún gerir það á einkar aðgengilegan hátt sem auðveldar okkur að ná tengingu við þetta viðkvæma efni.
Hún segir á einlægan og persónulegan hátt sögur úr eigin lífi, áföllum sem hún hefur orðið fyrir og orðið vitni að.
Hún deilir með lesendum hvernig hún hefur tekist á við afleiðingar þessara áfalla á árangursríkan hátt.

Want your business to be the top-listed Government Service in Grundarfjörþur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Grundargata 35
Grundarfjörþur
350

Opening Hours

Monday 14:00 - 17:00
Tuesday 14:00 - 17:00
Wednesday 14:00 - 17:00
Thursday 14:00 - 17:00