17/05/2026
Strandabandalagið óskar Vegvísi til hamingju með árangurinn í kosningunum. Við óskum Vegvísi einnig góðs gengis í að innleiða og halda áfram með þau mörgu, mikilvægu framfaramál sem nú liggja fyrir. Þau skipta framtíð Strandabyggðar öllu máli. Áfram veginn!
16/05/2026
Góðan og gleðilegan kosningadag, kæru íbúar Strandabyggðar,
Fyrir fjórum árum fagnaði Strandabandalagið góðum kosningasigri á Café Riis, efri hæð. Við ætlum að hittast þar í dag um kl 18.30 eiga góða stund saman, sama hver niðurstaða kosningana verður. Allir velkomnir!
Kveðja, Strandabandalagið
15/05/2026
Sterk forysta Strandabandalagsins!
15/05/2026
Kæru íbúar Strandabyggðar, Síðasti hefðbundni fundur sveitarstjórnar Strandabyggðar var 12 maí sl. Hér eru nokkur þeirra mála sem voru rædd og afgreidd:
· Ársreikningur Strandabyggðar 2025. Þar má sjá jákvæða þróun í fjármálum sveitarfélagsins, því tap á árinu 2025 er mun minni en áætlað var í fjárhagsáætlun, eða um tæpar 22 milljónir en ekki um 60 milljónir eins og afkomuspá fjárhagsáætlunar gerði ráð fyrir. Skuldahlutfallið lækkar í 144% og skuldaviðmiðið sömuleiðis úr 133% í 124%. Við erum á réttri leið
· Framkvæmdir í Brandskjólum. Gengið var frá vali á verktaka vegna framkvæmda í Brandsskjólum og var samþykkt að taka tilboði fyrirtækisins Keyrt og mokað ehf. Framkvæmdir ættu því að hefjast innan tíðar.
· Tómstundafulltrúi og framkvæmdastjóri HSS. Ráðningarsamningur við Sjöfn Sæmundsdóttur var kynntur og er mikil og almenn ánægja með ráðninguna
· Byggðasaga Stranda. Strandabandalagið sagði í aðdraganda síðustu kosninga að listinn skyldi kanna heildarkostnað Strandabyggðar við þetta mikla verkefni. Nú liggja fyrir drög að minnisblaði frá Deloitte endurskoðunarfyrirtækinu og þar kemur fram eftirfarandi: „Á árunum 2013-2020 voru heildargreiðslur Strandabyggðar vegna Byggðasögu Stranda 10.391.830 kr. miðað við þau gögn sem fram koma í bókhaldsfærslum Strandabyggðar. Þörf er á frekari greiningu annarra gagna sem gæti haft áhrif á lokaniðurstöðu úttektarinnar.“ Þar kemur líka fram að heildarskuld verkefnisins árið 2012, áður en Strandabyggð kom að yfirtöku þess, var um 50 milljónir. Búnaðarsamband Strandamanna ætti að hafa upplýsingar um þann kostnað. Rétt er að benda áhugasömum á bókanir í fundargerð fundarins:
· Mörg önnur áhugaverð mál voru á þessum síðasta hefðbundna fundi sveitarstjórnar og er slóð á fundargerðina hér: https://www.strandabyggd.is/stjornsysla/fundargerdir/sveitarstjorn-strandabyggdar/sveitarstjorn-strandabyggdar-1390
Í lok fundarins færðum við hvert öðru þakkir fyrir samstarfið sl fjögur ár. Nánari samantekt á þessu kjörtímabili kemur án efa síðar.
14/05/2026
Verkin tala. Hverjum treystir þú til að halda áfram og klára þau verkefni sem komin eru af stað?
14/05/2026
Hvað hefur áunnist undir forystu Strandabandalagsins á fjórum árum?