18/10/2026
HOLLENSKUR KÓR Á LAUGARHÓLI OG ÖLLUM BOÐIÐ FRÍTT Á TÓNLEIKA!
Það verður heldur betur líf og söngur á Laugarhóli í október!
Dagana 17.–20. október fáum við til okkar 28 manna kórinn YOIK frá Haag í Hollandi. Kórinn er að halda upp á 10 ára afmælið sitt með Íslandsferð og ætlar að verja fyrstu dögunum hér hjá okkur á Ströndum til að skoða sig um, njóta íslenskrar náttúru og æfa saman á Laugarhóli.😊
Síðasta kvöldið sitt á Laugarhóli langar þeim að bjóða Strandamönnum á ókeypis tónleika áður en þau halda suður til Reykjavíkur.
Þriðjudaginn 20. október
Kl. 18:00
Hótel Laugarhóll í Bjarnarfirði
Aðgangur ókeypis, bara mæta!
Á efnisskránni eru lög frá Íslandi, Noregi, Svíþjóð og Eistlandi og meðal annars ætla þau að syngja „Heyr himna smiður“ og „Heyr þú oss himnum á“, auk „Yggdrasil“ og „Muusika“ eftir Pärt Uusberg.
Og fyrst þið eruð hvort sem er komin alla leið inn í Bjarnarfjörð, þá er tilvalið að taka sundfötin með og skella sér í sund eða heita pottinn í leiðinni.
Það væri alveg einstaklega gaman að fylla húsið og taka vel á móti þessum hressu hollensku gestum.
Takið endilega með ykkur vini, nágranna, mömmu, pabba eða hvern þann sem langar að eiga skemmtilega stund á Laugarhóli.
Eins og Hollendingarnir segja: „Tot snel!“ (sjáumst fljótlega)!
https://www.facebook.com/reel/1483459890288838/?mibextid=wwXIfr&share_url=https%3A%2F%2Fwww.facebook.com%2Fshare%2Fr%2F1Bo76G6EtK%2F%3Fmibextid%3DwwXIfr&rdid=pWIl6LjrQuiizzHR