HSU Hornafjörður

HSU Hornafjörður

Share

Heilsugæslan á Hornafirði Heilbrigðisþjónusta

17/03/2026

ADHD ÖKUVOTTORÐ

Við viljum benda fólki með ADHD á að samkvæmt umferðalögum ber þeim að hafa meðferðis læknisvottorð og lyfjaskírteini sem staðfestir það að þau séu á meðferð vegna ADHD einkenna. Ef viðkomandi er ekki með þessi gögn meðferðis og amfetamin mælist í blóði, missir viðkomandi ökuleyfið.

Lyfjaskírteinið er aðgengilegt inni á island.is

Læknisvottorðið þarf að óska sérstaklega eftir hjá meðhöndlandi lækni / heilsugæslu.

Við viljum gjarnan útvega okkar skjólstæðingum þetta vottorð, við vitum að fólk með ADHD eru betri ökumenn á meðferð en án hennar og við viljum að sjálfsögðu ekki að fólk sé að missa ökuleyfið vegna svona formgalla, að vera ekki með pappírinn.

Þeir sem ekki eru með slíkt vottorð, eða vantar nýtt vottorð þar sem þeir hafa skipt um lyf síðan síðasta vottorð var gefið út, mega senda okkur fyrirspurn á heilsuveru eða hringja. Við munum svo vinna þetta eins fljótt og auðið er, innan fárra daga. Vottorðið verður sent í heilsuveru og rukkun í heimabanka.

Kveðja
Starfsfólk heilsugæslunnar á Höfn

Photos from Embætti landlæknis's post 16/03/2026
26/02/2026

Fróðleiksmoli frá heilsugæslunni 😷
Streptókokkahálsbólga:

Photos from HSU Hornafjörður's post 19/02/2026

Það hefur komið upp sú staða að einhverjir hafa ekki fengið skilaboðin sem minna á bókaða tíma. Í ljós hefur komið að símarnir hjá sumum merkja skilaboðin sem rusl og því skila þau sér ekki.
Við mælum með að þið athugið eftirfarandi í símanum ykkar:

1. Opnið Messages (Skilaboð).
2. Í efra hægra horninu veljið upphafsstafinn ykkar / prófílmynd.
3. Veljið “Rusl og bannlisti”.
4. Athugið hvort skilaboð frá okkur séu þar inni og veljið þau ef svo er.
5. Þá ætti að birtast valmöguleikinn „Ekki rusl“ – veljið hann.

Vonandi leysir þetta vandann og tryggir að skilaboðin berist rétt til ykkar framvegis.

Þyngdarstjórnun og meðferð við offitu | Heilsugæslan 07/02/2026

Við í Lífstílsmóttökunni á Höfn viljum endilega benda fólki á þetta fjarnámskeið um þyngdarstjórnun og meðferð við því, sem er haldið af heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins.

Þyngdarstjórnun og meðferð við offitu | Heilsugæslan Markmið þessa námskeiðs er að þátttakendur fái aðstoð við að byggja upp heilbrigða daglega lífshætti sem styðja við eðlilega þyngdarstjórn líkamans.

22/12/2025
21/11/2025

Kæru foreldrar og forráðamenn barna sem glíma við kvíðavanda endilega skoðið þetta :)

FLIKK er lausn yrir foreldra og forráðamenn barna sem eru að glíma við kvíðavanda. Námskeiðið er alfarið á netinu.

Skráning á vefslóðinni í fyrstu athugasemd.

09/11/2025

Ljósameðferð vegna húðsjúkdóma

Við fengum gefins ljósaklefa frá HSA en þau voru að endurnýja hjá sér. Nú er klefinn kominn upp og klár fyrir notkun.

Þar sem hér vinnur enginn sérfræðingur í húðsjúkdómum þá getum við ekki byrjað né "skrifað uppá meðferð" fyrir fólk með húðsjúkdóma en við getum fylgt fyrirmælum frá sérfræðingum.

Fólk með húðsjúkdóm sem þarf á ljósameðferð er velkomið að bóka tíma hjá okkur, en við munum ekki veita meðferð nema við séum með skriflega beiðni / ítarleg fyrirmæli frá húðsjúkdómalækni um hvernig sú meðferð skal vera.

05/11/2025

Þessi fallega unga stúlka kom í heiminn frekar snögglega þann 22.október hér á Höfn. Allt gekk vel og heilsast móður og barni vel. Foreldrar eru Anna Lind og Atli. Við óskum fjölskyldunni innilega til hamingju ❤️

Það kemur fyrir af og til að einstaka börn eru að flýta sér í heiminn, þá þýðir ekkert annað en að bretta upp ermar og taka á móti, en annars eru engar skipulagðar fæðingar hér á Höfn. Það lagðist af í júní 2013 þegar Áslaug ljósmóðir hætti, en hún hafði verið hér á sólarhringsvakt í fjöldamörg ár. Fæðingarstöðum hefur fækkað mikið á landinu á þessum árum, í takt við breytta tíma.

Árið 2024 fengum við aftur ljósmóður í bæinn, sem sinnir mæðravernd og heimavitjun til nýfæddra barna. Það stendur ekki til að fara að skipuleggja fæðingar hér aftur, en klárlega er þetta aukið öryggi að hafa þegar einstaka barni liggur þetta mikið á að koma.

Þessi unga stúlka var fyrsta barnið sem hún Heiðdís Anna Marteinsdóttir ljósmóðir tók á móti hér á Höfn og jafnframt hennar fyrsta fæðing eftir að námi lauk. Hún var fimmta barnið sem hún Elín Freyja læknir tók á móti hér á Höfn síðan 2013 og skemmtileg tilviljun var að Elín á einnig afmæli þann 22. október.

Á myndinni er Heiðdís til vinstri með nýja Hornfirðinginn í fanginu og Elín Freyja til hægri.

24/10/2025

Um 84% starfsfólks okkar eru konur og við skiljum því mikilvægi vinnuframlags kvenna fyrir samélagið og styðjum jafnréttindabaráttuna.

Við stöndum vaktina því við erum ✊

Photos from HSU Hornafjörður's post 23/10/2025

Fimmtudaginn 30. október eru allir velkomnir til okkar í bólusetningu milli kl. 15-17 💉

Want your business to be the top-listed Government Service in Höfn?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Website

Address


Víkurbraut 31
Höfn
780

Opening Hours

Monday 08:00 - 15:00
Tuesday 08:00 - 15:00
Wednesday 08:00 - 15:00
Thursday 08:00 - 15:00
Friday 08:00 - 15:00