Lækur Athvarf Hafnarfirði

Lækur Athvarf Hafnarfirði

Share

Lækur er athvarf fyrir einstaklinga sem vilja rjúfa félagslega einangrun. Hér eru allir velkomnir 18. ára og eldri. Hlökkum til að sjá þig!

Hér er alltaf heitt á könnunni og hádegismatur á billegu verði. Margt í boði yfir daginn sjá stundatöflu hér efst á síðunni. Athvarfið Lækur er fyrir einstaklinga með geðrænar áskoranir. Markmið með starfsemi Lækjar er að draga úr félagslegi eingangur auka lífsgæði og efla félags og líkamlegan vellíðan.



Í Læk er boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

05/06/2026

Það er allt að gerast á Læk, krónublöðin á tómatplöntunum eru að opnast og gefa okkur þessa skínandi fallegu tómata. Hér er fólk sem vinnur hörðum höndum við að gera umhverfið okkar svona fallegt.

Í dag verður tai chi klukkan 11. Burrito með baunum og grænmeti í hádeginu og pönnukökur með rjóma um kaffileytið. Á Læk er gott að lifa, njóta, spjalla, hlusta á tónlist og láta sér líða vel.

Lækur... beztur í allskonar! 🍅☕🎵🐕❤️

03/06/2026

Lækur er í blússandi fíling í dag eins og alla daga! Tai chi klukkan akkúrat rúmlega 11, gríshnakkar í gyros með hrísgrjónum og salati í hádeginu. Eftir hádegi förum við út í göngu í góða veðrinu. Bökunarnásmekiðið verður svo auðvitað á sínum stað um eitt leytið.

Lækur... alltaf ljúfur! 🐾🐕🎵☕️

Photos from Lækur Athvarf Hafnarfirði's post 01/06/2026

🌿 Júní er genginn í garð og það verður nóg um að vera hjá okkur í vikunni! 🌿

Í dag verður Tai Chi á sínum stað rétt fyrir hádegi. Í hádeginu verðum við þjóðleg og fáum okkur soðinn fisk með kartöflum og lauksmjöri. 🐟🥔

Eftir hádegi verður síðan gangan á sínum stað eins og vanalega. 🚶‍♀️🚶‍♂️

🎨 Á morgun verður List og Sköpun í Nýsköpunarsetrinu.

Þar fáum við að læra á hitavélina og merkja föt og bolla. Ef ykkur langar að koma og taka þátt endilega komið með bómullarbol, peysu og/eða bolla (helst hvítan) til að skreyta og gera að ykkar eigin.

🌱 Í vikunni fer garðyrkjuhópur Lækjar svo formlega af stað. Ert þú búin/n að skrá þig?

Þátttakendur fá sitt eigið ræktunarpláss þar sem þeir geta ræktað grænmeti í sumar og tekið uppskeruna með sér heim. 🥬🥕🍅

Það er alltaf nóg um að vera á Læk! 💚

29/05/2026

Það er góður andi hér á Læk í dag... eins og alla daga. Tai chi um 11 leytið, kjúklingaleggir í hádeginu og alltaf heitt á könnunni. Svo kannski hendum við íslenzkar pönnsur eftir hádegi... hver veit.

Lækur... alveg meiriháttar!

27/05/2026

Miðvikudagur er mættur í hús og við erum hér með heitt kaffi á könnunni, leikfimin var að klárast, það verður svínakjötsréttur í hádeginu með grjónum. Eftir hádegi ætlum við að skella í cheerios kökur í bakstursnámskeiðinu.
Allir velkomnir hlökkum til að sjá ykkur :)

Myndin af kanilsnúðum sem við gerðum ekki fyrir svo löngu...

24/05/2026

Matseðill vikunnar er kominn. Hlökkum til að sjá ykkur!

22/05/2026
19/05/2026

Við minnum á VORFERÐINA okkar á morgun. Hlökkum til að sjá ykkur og minnum alla á að koma upp á LÆK kl10. Við leggjum í hann kl10:30.
Lokað verður á Læk á meðan ferðinni stendur. 🚗👣💃🕺

Photos from Lækur Athvarf Hafnarfirði's post 18/05/2026

✨ Mánudagurinn er mættur með lífi og fjöri! ✨

Nói og Bessi eru báðir mættir í hús og stemningin gæti varla verið betri 🐕🐾 Það er kátt í koti hjá okkur í dag!

Í hádeginu verður boðið upp á ljúffengan plokkfisk með nýbökuðu rúgbrauði 🐟🍞
Eftir hádegi ætlum við svo að skella okkur í góða göngu og njóta dagsins saman 🚶‍♂️☀️

Við hlökkum mikið til dagsins! 💛

Want your business to be the top-listed Government Service in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Website

Address


Staðarberg 6
Hafnarfjörður
221

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 10:00 - 16:00