18/03/2026
Vel heppnað CAPA-námskeið í Hafnarfirði og Akureyri! Í febrúar hélt Tengslamat ehf. námskeið um The Child Attachment and Play Assessment (CAPA), bæði á staðnum og í fjarkennslu. Námskeiðið vakti mikla ánægju og stuðlaði að aukinni þekkingu um tengsl barna 3–11 ára — mikilvægt fyrir fagfólk sem vinnur með börnum og fjölskyldum. Lestu fréttina og sjáðu myndir frá námskeiðunum: https://wix.to/em1XkmR
Vel heppnað CAPA-námskeið haldið í Hafnarfirði og á Akureyri
Í febrúar síðastliðnum hélt Tengslamat ehf. vel heppnað námskeið um The Child Attachment and Play Assessment (CAPA), bæði í Hafnarfirði og á Akureyri. Námskeiðið var einnig aðgengilegt í fjarkennslu og vakti mikla ánægju meðal þátttakenda.CAPA er sérhæft matstæki sem veiti...
03/11/2025
Ragnheiður hjá Tengslamat ehf. tók nýlega þátt í útgáfuhátíð bókarinnar The Meaning of the Child Interview eftir Dr. Benedict Grey við Háskólann í Hertfordshire en Ragnheiður er einmitt einn af meðhöfundum bókarinnar. MotC aðferðarfræðin er hálf-staðlað viðtalsform þar sem foreldrar ræða um barn sitt, samband sitt við barnið og foreldrahlutverk sitt.
28/04/2025
Viltu geta skimað og greint tengslahegðun barna í gegnum leik og sögur? https://wix.to/LmQQCZE
16/04/2025
CAPA - Námskeið fyrir fagaðila sem starfa með börnum https://wix.to/7FbDX31
17/02/2025
Spennandi Námskeið á Vorönn https://wix.to/tuT6Z15
14/11/2024
Námskeið í janúar 2025 með Dr. Kristine Clay, PsyD
Dr. Kristine Clay, löggiltur geðheilbrigðisráðgjafi og sálfræðingur, mun heimsækja Tengslamat á nýju ári og leiða tvö námskeið í janúar n.k. Þetta er í annað sinn sem Kristine heldur námskeið hjá Tengslamat.
Fyrra námskeiðið er fyrir fósturforeldra og einblínir á hvernig hægt sé að skapa öryggi og jákvæða líðan hjá fósturbörnum sem hafa upplifað óöryggi.
Seinna námskeiðið er ætlað öllum foreldrum sem eiga í erfiðum samskiptum og fjallar um hvernig hægt er að skapa friðsælla umhverfi fyrir þau og barnið/börnin þeirra.
Skráning og nánari upplýsingar eru á www.tengslamat.is.
29/09/2024
Lokaútkall. Námskeiðið hefst í fyrramálið 30. sept - MOTC með Dr. Benedict Grey
Meaning of the Child interview (MotC)
Klínískt námskeið með Dr. Benedict Grey og Juliet Kesteven
09/09/2024
Síðustu dagar skráningar á námskeið í klínískri viðtalstækni, MotC, við foreldra um börnin sín. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem starfa með börnum og vilja styðja við tengslasambönd foreldra og barna. Hér að neðan er viðtal við kennara námskeiðsins frá því í fyrra þau Dr. Benedict Grey og Juliet Kesteven
MotC - viðtal við Dr. Ben Grey og Juliet Kesteven
Tengslamat fékk í janúar sl. Dr. Ben Grey, dósent í tengslafræðum og rannsóknum við háskólann í Roehampton UK og Juliet Kesteven félagsráðgjafa og kennara við Roehampton háskólann til að halda tvö námskeið í The Meaning of the Child Interview (MotC). Mjög góð þáttaka var ...
04/09/2024
Opið hús í Lífsæðasetri St.Jó
5. september 2024
16.00–18.00
Suðurgata 41
10/08/2024
Meaning of the Child interview (Motc) með Dr. Benedict Grey
Meaning of the Child interview (MotC)
Klínískt námskeið með Dr. Benedict Grey og Juliet Kesteven
02/04/2024
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á áhugaverð námskeið sem ætluð eru foreldrum, fósturforeldrum og fagfólki.
Skráning í fullum gangi
Gestakennari er Dr. Kristine Clay en hún er doktor í sálfræði, löggiltur geðheilbrigðisráðgjafi og meðferðaraðili. Hún er auk þess er hún höfundur aðferðarfræðinnar um samþætta foreldraþjálfun.
Námskeiðin sem verða kennd eru:
Fósturforeldri: Að skapa öryggi á óöruggum tímum
Námskeið í að efla færni til að styðja við og hafa jákvæð áhrif á líðan barna innan fósturfjölskyldna.
Klínísk inngrip fyrir fjölskyldur í kjölfar sambúðarslita
Þetta er námskeið ætlað fagfólki sem vinnur með fjölskyldum sem búa við átök eftir sambandsslit og eru á tveimur heimilum.
Námskeið fyrir foreldra: Minni átök, meiri friður
Markmið námskeiðsins er að kenna foreldrum, sem glíma við samskiptavanda og átök, nýjar aðferðir til að eiga í samskiptum, takast á við streitu og tryggja barni sínu bestu möguleg uppeldisskilyrði.
Nánari upplýsingar og skráning á námskeiðin eru aðgengilegar á vefsíðunni
Tengslamat ehf | Tengslamat | Suðurgata 41, Hafnarfjörður, Iceland
Tengslamat ehf býður upp á tengslamat fyrir ólík aldursskeið. Áhersla er lögð á að greina tengslahegðun einstaklinga og skima fyrir hættum í tengslasamböndum. Tengslamat býður upp á viðtalsmeðferð sem miðar að því að líta til frumbernsku og skima þannig fyrir unnum sem ó...
03/03/2024
Námskeið á vorönn 2024
Gestakennari Kristine Clay, PsyD
Með hækkandi sól viljum við vekja athygli á áhugaverðum námskeiðum á vorönn fyrir umönnunaraðila og fagfólk.
21 Maí 2024
Fósturforeldri: Að skapa öryggi á óöruggum tímum
22 - 23 Maí 2024
Klínísk inngrip fyrir fjölskyldur í kjölfar sambúðarslita
25 og 26 Maí 2024
Námskeið fyrir foreldra: Minni átök, meiri friður
Dr. Kristine Clay er með doktorsgráðu í sálfræði og löggiltur geðheilbrigðisráðgjafi og meðferðaraðili. Hún auk þess höfundur aðferðarfræðinnar í samþættri foreldraþjálfun.
Kristine er eigandi ráðgjafarfyrirtækisins Aspen Counseling í Washington, Bandaríkjunum, og hefur þróað “Overstory” foreldraþjálfun fyrir fjölskyldur og fagfólk.
Nánari upplýsingar og skráning á námskeiðin eru aðgengilegar á vefsíðunni
Heim | Tengslamat
Með hækkandi sól viljum við vekja athygli á áhugaverðum námskeiðum á vorönn fyrir umönnunaraðila og fagfólk.