Sóltún Sólvangi

Sóltún Sólvangi

Share

Sólvangur er rótgróið hjúkrunarheimili í hjarta Hafnarfjarðar. Þessari síðu er ætlað að veita fólki innsýn í daglegt líf íbúa og starfsfólks á Sólvangi.

Sólvangur var vígður 25. október 1953 sem elli- og hjúkrunarheimili. Fæðingardeild tók til starfa 1954 og starfaði til 1976. Síðan þá hefur Sólvangur verið rekið sem hjúkrunarheimili en margt breyst í áranna rás.

Photos from Sóltún Sólvangi's post 15/06/2026

Sköpunarkrafturinn hættir ekki að heimsækja hugann þó að kroppurinn skelli sér í endurhæfingu og það veit Herdís Egilsdóttir, rithöfundur, kennari í Ísaksskóla og listakona, sem nú dvelur á Heilsusetrinu. Hún kom vel undirbúin í dvölina með efni og tól til listsköpunar og er gluggakistan orðin full af verkum i vinnslu sem munu á endanum mynda annars vegar heila tónlistarstofu fulla af fólki með mismunandi hljóðfæri og hins vegar sveitabæinn Ísbrú og ábúendur. Herdís getur núna hreyft aðra öxlina sem hafði lengið plagað hana eftir að starfsfólk Heilsusetursins náðu að losa hana og mun það eflaust hjálpa við listköpunina. Það er ótrúlega skemmtilegt að fylgjast með heimi Herdísar vaxa og dafna með hverjum deginum!

Photos from Sóltún Sólvangi's post 05/06/2026

Árlega er send út þjónustukönnun til íbúa og aðstandenda og erum við stolt af niðurstöðum þjónustukönnunar Sóltúns 2026, þar sem heildaránægja mælist há á Sóltúnsheimilunum, sem er í samræmi við niðurstöður síðasta árs.

Íbúar og aðstandendur upplifa einnig umhyggju og öryggi og 97% íbúa og 89 % aðstandenda eru á heildina litið ánægð með sitt hjúkrunarheimili.

Helstu niðurstöður eru hér fyrir neðan en ítarlegri umfjöllum er að finna í fréttahluta vefsíðu Sóltúns, www.soltun.is

• 97% íbúa og 94% aðstandenda telja íbúann öruggan á hjúkrunarheimilinu.
• 77% íbúa segja félagsstarf, tómstundir og viðburði góða en 74% aðstandenda
• 92% aðstandenda og 97% íbúa eru ánægðir með hjúkrunarþjónustuna
• 76% aðstandenda og 69% íbúa eru ánægð með matinn
• 97% aðstandenda og íbúa eru sammála því að starfsfólk sýni íbúanum umhyggju.

30/05/2026

Nýr framkvæmdastjóri hjúkrunar, Berglind Víðisdóttir, hefur hafið störf hjá Sóltúni og við bjóðum hana hjartanlega velkomna 😊
Hún leiðir nýtt svið, Heilbrigðissvið, og situr í framkvæmdaráði Sóltúns.
Berglind er hjúkrunarfræðingur (BSc) og lýðheilsufræðingur með meistaragráðu (MPH) og býr yfir áratugalangri og fjölbreyttri reynslu í heilbrigðis- og velferðarþjónustu, bæði í klínísku starfi, stjórnun og stefnumótun. Hún hefur gegnt lykilhlutverkum innan Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, unnið að sérverkefnum hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins og í sérhæfðri heimahjúkrun og líknarþjónustu, auk þess að taka virkan þátt í þróunar- og samráðsverkefnum á landsvísu.
Inga Eyþórsdóttir, sem hefur sinnt hlutverki framkvæmdastjóra hjúkrunar og stýrt heilbrigðis- og rekstrarsviði, mun samhliða þessari breytingu leiða nýtt Rekstrar- og þróunarsvið, þar sem áhersla verður lögð á vaxtar- og rekstrarverkefni þvert á starfsemina.

29/05/2026
Photos from Sóltún Sólvangi's post 29/05/2026

Það var bókstaflega fullt út úr dyrum á Vorhátíð Sóltúns á Sólvangi í gær. Sumarblómin komin í potta, dýrindis pulsupartý í hádeginu og síðan kom enginn annar en Örn Árnason að skemmta sem sagði sögur, brandara og söng svo nokkur lög. Starfsfólk á mikið hrós skilið fyrir skipulag svo ekki sé talað um afar fagmannlega röðun ótal hjólastóla í salinn 👏❤️

Photos from Sóltún Sólvangi's post 27/05/2026

Halldór Árni Sveinsson (Dóri), einn af okkar dýrmætu dvalargestum hélt heim á leið í dag eftir endurhæfingu á Sóltúni Heilsusetri. Af því tilefni orti hann vísu til starfsfólksins:

Heilsu bætta helst ég vel
harðsperrtur mun þrauka
Sætar, ljúfar skvísur tel
Sólvangs yndi auka.

Gamlir vöðvar gró'á ný
gleymdir liðir vakna
Fæðið gott og faðmlög hlý
félaganna sakna.


Þetta er nú alveg rétt hjá Dóra því ekki vantar fegurðina í þennan starfshóp, á myndunum má sjá nokkrar af þessum sætu og ljúfu skvísum sem starfa á Heilsusetrinu😊

Photos from Sóltún Sólvangi's post 25/05/2026

Stoðdeildin á Sóltúni í Reykjavík kvaddi fyrir helgi okkar besta mann Finn Atla Magnússon íþróttafræðing, sem hefur staðið vaktina í sjúkraþjálfuninni seinustu 9 ár. Hann er farinn á vit nýrra ævintýra en verður sárt saknað hérna á Sóltúni af bæði starfsfólki og íbúum og sá sem tekur við þarf að fylla ansi stóra skó (nr. 49!). Við óskum honum alls hins besta í nýju hlutverki❤️

Samstarfskona Finns, Sædís Sif Harðardóttir, henti í eitt stykki ljóð honum til heiðurs, hvorki meira né minna:

Nú er komið að kveðjustund

Nú er komið að kveðjustund
hann hættir í Sóltúni að þjálfa.
Ákveðinn, harður en með létta lund
sem flestir ná varla upp að kálfa.

Í glugga verða ei lengur sveittir skór
óskum þér velgengni um nýjar slóðir.
Takk fyrir stundirnar herra stór
farvel, kæri samstarfsbróðir.

Photos from Sóltún Sólvangi's post 21/05/2026

Halla forstjóri flaggaði á Sólvangi í dag og verður þjóðfáninn uppi allan sólarhringinn í sumar. Eftir að nýju fánalögunum var breytt nýlega má nú flagga allan sólarhringinn frá 1. maí til 15. ágúst🇮🇸

Photos from Sóltún Sólvangi's post 20/05/2026

Steinunn íþróttafræðingur á Heilsusetrinu dreif sitt fólk út í hreyfingu í dag í góða veðrinu enda allt hverfið úti að leika, ungir sem aldnir. Aðrir kusu að tylla sér út í garð og ná sér í freknur og d vítamín! 💛🌞💛

Want your business to be the top-listed Government Service in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Sólvangsvegur 2
Hafnarfjörður
220