17. júní var fagur hér í Hafnarfirði 🌷
Takk til ykkar allra sem komuð að þjóðhátíðardeginum okkar. Saman gerum við Hafnarfjörð að þeim hlýja og lifandi bæ sem hann er 💙 Skrúðganga, tónlist, þjóðbúningar, fjölskylduskemmtun og fjölbreytt mannlíf settu svip sinn á bæinn okkar.
Ævintýri frá morgni til kvölds - Og Jón Jónsson rammaði daginn fallega inn á Ráðhústorgi. Njótum saman.
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjörður er þriðji stærsti bær landsins, framsækið og fjölskylduvænt sveitarfélag
Hafnarfjörður er þriðja stærsta sveitarfélag landsins með um 30.000 íbúa og rúmlega 2000 einstaklinga við störf sem sinna fjölbreyttum verkefnum og þjónustu á um 70 starfsstöðvum víðs vegar um bæinn. Starfsfólk sem vinnur á sviði mennta og lýðheilsu, fjölskyldu- og barnamála, umhverfis- og skipulagsmála, þjónustu og þróunar, fjármála og við stjórnsýslu.
Áhersla er lögð á að hjá bænum starfi fó
19/06/2026
Fjögur frækin í Víðistaðaskóla 🫶
Fjórir nemendur Víðistaðaskóla voru meðal þeirra sigursælu í nýsköpunarkeppni grunnskólanna nú fyrir skólalok. Hugmyndir þeirra skáru fram úr ríflega 500 tillögum á landsvísu. 👏
Katrín Svala Ólafsdóttir og María Lilja Davíðsdóttir, í 6. bekk í Víðistaðaskóla, hlutu aðalverðlaun NKG 2026. Þær hönnuðu öryggiskerfi fyrir leiguhlaupahjól þar sem hjólið fer ekki af stað nema hjálmur sé notaður.
Guðlaug Sóley Jokumsen Bergman og Elvar Ólafsson, einnig í 6. bekk, fengu samfélagsbikar NKG fyrir Saltblásarann sem auðveldar að dreifa salti í hálku.
Já, framtíðin er í nýsköpun - og ræturnar hér í Hafnarfirði ;)
Sjá 👉 https://hfj.is/c380my
̈rður
19/06/2026
Söngpartý með Guðrúnu Árnýju ❤
Já, það styttist. Guðrún Árný stýrir fjöldasöng í Hellisgerði kl. 19 í kvöld. Þetta er frábært tækifæri til að fara með gleði í hjarta inn í helgina. Nú, eða nýta í upphitun fyrir frábært kvöld hér í hjarta Hafnarfjarðar ❤️❤️
Skella sér svo í ís í Firði, sushi hjá Osushi, á pallinn hjá Barböru, pizzu hjá Sudhavn, nú eða bara í rómantíska göngu um Strandstíginn!
Komdu endilega með góða tillögu að góðu kvöldi hér í Hafnarfirði í kommentakerfið - Já, nýtum það til góðs!
Sjá 👉 hfj.is/kikprq
19/06/2026
Leikhópurinn Lotta í Hellisgerði - frítt inn fyrir öll með miða!
Hafnarfjarðarbær býður börnum sínum í útileikhús. Tvær sýningar verða í Hellisgerði, sunnudaginn 21. júní kl. 13 og kl. 15:30. 🎭 Enn er hægt að sækja miða. Fyrstur kemur, fyrstur fær. Við hvetjum gesti til að klæða sig eftir veðri, taka með sér nesti, teppi og góðan ævintýraanda.
Já, frábært tækifæri til að hlæja og njóta með yngstu kynslóðinni 💕
Sækja miða 👉 hfj.is/k5cl5q
18/06/2026
Hressandi tónar á þjóðhátíðardegi 🎹
Þjóðhátíðardagurinn var sko lifandi í Hafnarfirði langt fram á kvöld. Hver tónlistarstjarnan á fætur annarri steig á svið hér á Ráðhústorginu. 🎤 Vá, vá. Gusgusar, Elín Hall, Elvar, Kristmundur Axel og svo Jón okkar Jónsson.
Áfram Hafnfirðingar - Já, við kunnum að hafa gaman saman 💕
18/06/2026
Gunnhildur fjallkona okkar Hafnfirðinga 🫶
Gunnhildur Sigurðardóttir, fyrrum hjúkrunarforstjóri St. Jósefsspítala, er fjallkona okkar Hafnfirðinga í ár. Hún flutti Vígsluljóð spítala heilags Jósefs í Hafnarfirði. Gunnhildur, sem er 84 ára, var í viðtali í sjónvarpsfréttum á þjóðhátíðardaginn. Hún sagðist hafa orðið hissa þegar hún fékk símtal og sagt að hún hefði verið útnefnd fjallkona Hafnarfjarðar.
„Ég hugsaði með mér: Ertu að grínast? Því að gömul kona, hvað á hún að gera upp á svið!“ sagði hún í léttum rómi. En það var svo sannarlega tilefni.
Gunnhildur starfaði 40 ár á St. Jó spítalanum sem er 100 ára í ár. „Þetta er magnað ljóð sem að sýnir það að það var mikil blessun á bakvið þetta allt saman og það var líka þrungið því að hjálpa fólki.“
Gunnhildur var skautuð í Hafnarborg. Guðrún Hildur Rosenkjær sá um verkið og sagði sögu skautbúningsins um leið. Virkilega falleg stund. Sjáið bara 😍
Sjá 👉 hfj.is/83q7kl
17/06/2026
Þjóðhátíðardagskráin heldur áfram fram eftir kvöldi. Frá kl.19 verður tónlistarveisla við Ráðhústorg þar sem landsþekkt tónlistarfólk stígur á svið 🇮🇸✨️
❤️ Lúðrasveit verkalýðsins
❤️ Elín Hall
❤️ Elvar
❤️ gugusar
❤️ Kristmundur Axel
❤️ Jón Jónsson
Verið öll hjartanlega velkomin – saman sláum við botninn í þennan dásamlega þjóðhátíðardag 🇮🇸✨️
17. júní | Hafnarfjörður Komdu og fagnaðu þjóðhátíð með okkur heima í Hafnarfirði. Þjóðhátíðarveisla sem teygir anga sína víða um bæinn hefst með fánahyllingu á Hamrinum kl. 8 og lýkur með glæsilegri kvölddagskrá á Thorsplani.
17/06/2026
❤️🇮🇸 Hjarta Hafnarfjarðar slær hraðar á þjóðhátíðardaginn! 🇮🇸❤️
Gleðilegan þjóðhátíðardag kæru Hafnfirðingar og vinir Hafnarfjarðar – 17. júní er bestur heima í Hafnarfirði! Dagurinn er stútfullur af lífi og gleði; sjósund og gufa fyrir hressa, víkingastemning á Víkingahátíð, opin hús, nýjar sýningar í Hafnarborg og á byggðasafni og síðast en ekki síst glæsileg skrúðganga frá Flensborgarskóla að Ráðhústorgi kl. 13🚶♀️🚶
Á torginu tekur hátíðin svo kipp með fjölbreyttum skemmtiatriðum, tónlist, dansi, diskói og gómsætum veitingum fyrir alla aldurshópa ✨ Við sjáumst í hátíðarskapi – saman gerum við daginn - eftirminnilegan! 🇮🇸 Já og kvöldið - það er kvölddagskrá líka 🇮🇸
Nánar 👉
17. júní | Hafnarfjörður Komdu og fagnaðu þjóðhátíð með okkur heima í Hafnarfirði. Þjóðhátíðarveisla sem teygir anga sína víða um bæinn hefst með fánahyllingu á Hamrinum kl. 8 og lýkur með glæsilegri kvölddagskrá á Thorsplani.
16/06/2026
Víkingahátíðin 2026 er sett 👑
Já, víkingarnir okkar hafa komið sér fyrir á Víðistaðatúni. Markaðir opnir til kl. 18 í dag og svo aftur frá klukkan 11 á morgun Þjóðhátíðardaginn. Dagskráin næstu daga er þétt. Og börnin komast í skóla - Víkingaskólann! ☀️
Þetta er 29. Víkingahátíðin. Opnunarathöfnin var einstök upplifun. Mjöðurinn gekk milli manna og gestum víða úr heimi fagnað. Einnig glænýjum bæjarstjóra Þórði Þórarinssyni. Við óskum Rimmugýg til hamingju með þessa frábæru hátíð.
Þetta er einstök veisla - og þið eruð öll boðin! 🫶
Sjáðu dagskrána 👉 https://hfj.is/4kp347
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Telephone
Website
Address
Strandgata 6
Hafnarfjörður
220
Opening Hours
| Monday | 08:00 - 16:00 |
| Tuesday | 08:00 - 16:00 |
| Wednesday | 08:00 - 16:00 |
| Thursday | 08:00 - 16:00 |
| Friday | 08:00 - 16:00 |
