Sjómannadagurinn er á morgun!
Undirbúningur fyrir Sjómannadaginn 2026 er í fullum gangi, það verður fjölbreytt dagskrá hjá okkur á morgun og við hlökkum til að taka á móti ykkur öllum við höfnina! ⚓️🌊
Björgunarsveit Hafnarfjarðar
Opinber síða Björgunarsveitar Hafnarfjarðar. "Ávallt viðbúin!"
Fyrir þá sem vilja styrkja Björgunarsveit Hafnarfjarðar þá er hægt að leggja inn á reikninginn okkar í Íslandsbanka sem er 0544-26-2620 Kennitala sveitarinnar er 410200-3170. Þökkum kærlega fyrir stuðninginn
03/06/2026
Þann 28. maí sl. fengum við veglegan styrk frá Lionsklúbb Hafnarfjarðar til að styðja við sporhundastarfið okkar.
Við erum afar þakklát fyrir stuðninginn sem mun nýtast til að efla þetta mikilvæga starf.
Kærar þakkir fyrir okkur!
29/05/2026
Komdu og skemmtu þér með okkur á Sjómannadaginn! 🚨💙
Unglingadeild Björgúlfs verður með skemmtilega fjáröflun þar sem boðið verður upp á glæsilega kaffisölu og fullt af afþreyingu fyrir alla fjölskylduna ☕️🍰
Á svæðinu verður meðal annars:
• Þrautabraut
• Rennibraut
• Koddaslagur
• Björgunarleiktæki
Frábær stemning og skemmtun fyrir börnin! Hvetjum alla til að líta við, fá sér kaffi og köku og styrkja framtíðarhetjurnar okkar 🙌
Ekki láta ykkur vanta á þessum skemmtilega degi!
Við hlökkum til að sjá ykkur á Sjómannadaginn 7. júní! ⚓️
26/05/2026
Við hjá Björgunarsveit Hafnarfjarðar viljum færa Högum hf. kærar þakkir fyrir glæsilegan styrk upp á 1.000.000 kr. sem rennur til bátakaupa sveitarinnar 🚤
Slíkur stuðningur skiptir okkur miklu máli og hjálpar okkur að efla öryggi og viðbragðsgetu á sjó.
Á mynd má sjá Kristján, fyrrum formann Sjóflokks, ásamt Örvari Þór, fyrir hönd Haga hf., taka við styrknum🙌
Á mynd má einnig sjá Högna Bergþórsson f.h. Trefja, Guðmund Gunnarsson félagi BSH, Örvar Þór f.h. Haga hf., Kristján fyrrum formann Sjóflokks, Valdísi Huld formann BSH, Erlu Kristínu aðstoðargjaldkera BSH og Arnar Inga formann Sjóflokks.
Þökkum kærlega fyrir stuðninginn!
08/05/2026
Björgunarsveit Hafnarfjarðar fór í útkall í gær vegna vélvana báts við Álftanes.
Sjóflokkur sveitarinnar fór á vettvang og aðstoðaði við að draga bátinn aftur til hafnar.
Hér má sjá mynd frá útkallinu þar sem björgunarsveitarmenn draga bátinn.
22/04/2026
Við viljum færa innilegar þakkir til Guðjóns Rúnars Sveinssonar, sem nú lætur af störfum sem formaður, Smára Guðnasonar, sem lætur af störfum sem varaformaður, og Sigurðar Magnússonar, sem lætur af störfum sem gjaldkeri, fyrir þeirra framlag og vel unnin störf. Við erum afar þakklát fyrir þann tíma, kraft og elju sem þeir hafa lagt í þessi mikilvægu störf.
Sérstaklega viljum við einnig nefna að Gylfi Sigurðsson var gerður að heiðursfélaga sem þakklætisvott fyrir hans framlag.
Um leið bjóðum við Sæmund Bjarna Kristínarson velkominn í hlutverk varaformanns, Svein Inga Sigurjónsson í hlutverk gjaldkera og Valdísi Huld Jónsdóttur í hlutverk formanns. Við hlökkum til áframhaldandi samstarfs og þeirra verkefna sem fram undan eru.
Á mynd má sjá þennan flotta hóp!
Sæmundur Bjarni varaformaður, Guðjón Rúnar fyrrum formaður, Gylfi heiðursfélaga, Smári fyrrum varaformaður, Sigurður fyrrum gjaldkeri og Valdís Huld formaður.
22/04/2026
Vegleg gjöf frá Slysavarnadeildin Hraunprýði
Mánudaginn 2. mars fengum við afhenta afar veglega gjöf frá Slysavarnardeild Hraunprýði. Gjöfin nemur 1,5 milljónum króna og er veitt sem framlag upp í bátakaup.
Slíkur stuðningur skiptir okkur gríðarlegu máli. Endurnýjun og uppbygging búnaðar er ein af undirstöðum þess að við getum sinnt verkefnum okkar af fagmennsku, öryggi og skilvirkni. Framlagið kemur því á afar mikilvægum tímamótum og styrkir starfsemi okkar til muna.
Við viljum færa Slysavarnardeild Hraunprýði okkar innilegustu þakkir fyrir rausnarlegan stuðning, traust og velvilja í okkar garð. Það er ómetanlegt að finna fyrir slíkri samstöðu og stuðningi úr nærumhverfinu. Með þessari gjöf leggja þau sitt af mörkum til að efla öryggi og viðbragðsgetu til framtíðar.
Við erum afar þakklát og hlökkum til að halda áfram góðu samstarfi!
Á mynd má sjá Kristján formann Sjóflokks, Ingibjörg fyrrum gjaldkera Hraunprýðis, Erlu gjaldkera Hraunprýðis/aðstoðargjaldkera BSH, Smára fyrrum varaformann BSH og Sigurbjörgu fyrrum formann Hraunprýðis.
22/04/2026
Á aðalfundi sem haldinn var á mánudaginn, 20.apríl, skrifuðu 10 einstaklingar undir eið sveitarinnar og urðu þar með fullgildir félagar í Björgunarsveit Hafnarfjarðar.
Til hamingju öll!
04/03/2026
Skátafélagið Hraunbúar hlýtur skyndihjálparnámskeið að gjöf.
Björgunarsveit Hafnarfjarðar færði skátafélaginu Hraunbúum veglega gjöf í formi skyndihjálparnámskeiðs sem haldið var fyrir foringja og starfsmenn félagsins.
Þrír leiðbeinendur sáu um kennsluna og luku alls 17 þátttakendur námskeiðinu. Farið var ítarlega yfir helstu grunnatriði skyndihjálpar, þar á meðal endurlífgun, rétta aðkomu að slysi, stöðvun blæðinga og meðferð sára og beinbrota. Einnig var fjallað um viðbrögð við bráðum sjúkdómum, ofkælingu og hitakvillum.
Markmið námskeiðsins var að efla þekkingu og viðbragðsgetu þeirra sem starfa innan félagsins og stuðla þannig að auknu öryggi í starfi Hraunbúa.
Námskeiðið tókst afar vel og voru þátttakendur mjög ánægðir með bæði innihald og framkvæmd.
24/02/2026
Í gær var haldin stór glæsileg tækja sýning í húsnæði okkar þar sem björgunarsveitir allsstaðar af landinu hittust með sýn mismunandi og flottu tæki! 🚒
Um 20 tæki voru til sýnis, hvert öðru glæsilegra, og virkilega gaman að sjá hversu gríðarlega mikil þróun hefur átt sér stað á búnaði sveitanna í gegnum tíðina.
Frábært kvöld að baki!
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Contact the business
Website
Address
Hvaleyrarbraut 32
Hafnarfjörður
220
