26/05/2026
Námskeiðsdagskrá haustannar 2026 er komin á vefinn.
Fjölbreytt námskeið fyrir aðstandendur, fagfólk og aðra sem starfa með börnum og ungmennum með öðruvísi taugaþroska og/eða fatlanir sem geta leitt til áskorana í daglegu lífi.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur á næstu önn!
Skráning og nánari upplýsingar:
www.rgr.is
12/05/2026
Hin árlega vorráðstefna Ráðgjafar- og greiningarstöðvar fór fram dagana 7. og 8. maí á Hilton Reykjavík Nordica og í streymi. Í ár var ráðstefnan haldin í samstarfi við Gló Æfingastöð undir yfirskriftinni Sköpum tækifæri – þátttaka og framtíð fatlaðra barna.
Tæplega 510 manns tóku þátt í ráðstefnunni, bæði í sal og í streymi. Ráðstefnan er einn stærsti vettvangur þeirra sem starfa með fötluðum börnum og ungmennum og skapar mikilvægt samtal um viðhorf, þjónustu og framtíð fatlaðra barna.
Á ráðstefnunni var sjónum beint að því að horfa á það sem barnið getur gert í stað þess að einblína eingöngu á áskoranir og frávik. Þar voru meðal annars F-orðin fyrir þroska barna í brennidepli: Færni, Fjölskylda, Form, Vinir/Félagar, Fjör og Framtíð. Þau minna á mikilvægi þess að færa áherslu frá takmörkunum yfir í styrkleika, færni, þátttöku og lífsgæði barna.
Einnig var fjallað um hvernig samfélagið, þjónustukerfi, skólar, tómstundir og nærumhverfi barna geta skapað raunveruleg tækifæri til þátttöku í daglegu lífi. Rauði þráðurinn var að þátttaka fatlaðra barna er ekki aðeins einstaklingsbundið viðfangsefni heldur sameiginleg ábyrgð samfélagsins.
Dagskráin var fjölbreytt og dró fram ólík sjónarhorn, bæði fræðileg og byggð á lifaðri reynslu. Í erindum og samtölum ráðstefnunnar var lögð áhersla á að horfa til styrkleika barna, aðstæðna þeirra og þeirra tækifæra sem samfélagið skapar. Umræðan undirstrikaði mikilvægi þess að hlusta á raddir barna, ungmenna og fjölskyldna og þróa þjónustu sem styður við þátttöku, lífsgæði og framtíðarsýn.
Ráðstefnunni lauk með áhrifamiklum hætti og ljóst var að viðfangsefnið snerti þátttakendur djúpt. Eftir stóð sterk áminning um að tækifæri til þátttöku eiga ekki að vera háð tilviljunum, heldur þurfa þau að vera hluti af því hvernig við skipuleggjum þjónustu, skóla, tómstundir og samfélag.
Ráðgjafar- og greiningarstöð þakkar Gló Æfingastöð kærlega fyrir gott og gefandi samstarf við undirbúning og framkvæmd ráðstefnunnar. Samstarfið er sprottið úr sameiginlegum vilja til að halda áfram að bæta þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra og stuðla að inngildandi samfélagi.
Einnig færum við fyrirlesurum, fundarstjórum, þátttakendum og öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum við að gera ráðstefnuna að veruleika bestu þakkir.
Breytingar verða ekki til í einu kerfi, einni stofnun eða einni fagstétt. Þær verða til þegar fólk kemur saman, deilir þekkingu, hlustar hvert á annað og stefnir í sömu átt.
06/05/2026
✨ Tækifæri í stað takmarkana
F-orðin verða í brennidepli á vorráðstefnu Ráðgjafar- og greiningarstöðvar, sem haldin er í samstarfi við Gló Æfingastöð og hefst á morgun.
F-orðin minna okkur á að horfa á börn út frá styrkleikum, þátttöku og tækifærum en ekki eingöngu út frá takmörkunum.
Þau eru hluti af mikilvægri viðhorfsbreytingu í því hvernig við styðjum við þroska, velferð og þátttöku fatlaðra barna í daglegu lífi.
👇Í greininni hér að neðan skrifar Berljót Borg, framkvæmdastjóri Gló stuðningsfélags, um mikilvægi þess að skapa börnum raunveruleg tækifæri til þátttöku.
📍 Vorráðstefna 2026
🗓 7. og 8. maí
👉 Hægt er að skrá sig í streymi til kl. 12:00 í dag: https://www.rgr.is/is/fraedsla-og-namskeid/namskeid/namskeid-a-naestunni/vorradstefna-2026-skopum-taekifaeri-thatttaka-og-framtid-fatladra-barna
www.visir.is
05/05/2026
Tæplega 500 þátttakendur eru nú skráðir á Vorráðstefnu 2026 ✨
Við erum afar þakklát fyrir þessar frábæru viðtökur og hlökkum til að eiga tvo innihaldsríka daga með stórum og fjölbreyttum hópi þátttakenda.
Þótt fullbókað sé í salinn er enn hægt að skrá sig í streymi til kl. 12:00 á morgun, miðvikudaginn 6. maí.
Ráðstefnan fer fram 7.–8. maí undir yfirskriftinni „Sköpum tækifæri – þátttaka og framtíð fatlaðra barna“.
👉 Nánari upplýsingar, dagskrá og skráning í streymi: https://www.rgr.is/is/fraedsla-og-namskeid/namskeid/namskeid-a-naestunni/vorradstefna-2026-skopum-taekifaeri-thatttaka-og-framtid-fatladra-barna
04/05/2026
Að tilheyra og taka þátt: kraftur íþróttaiðkunar fyrir öll börn ⚽️🤝
Kolbrún Kristínardóttir, yfirsjúkraþjálfari á Gló Æfingastöð, og Hákon Atli Bjarkason, afreksíþróttamaður og íþróttaþjálfari, fjalla um mikilvægi hreyfingar og um jákvæð áhrif íþróttaþátttöku ekki síst til sjálfsstyrkingar og félagslegrar tengingar. Þau leggja áherslu á að öll börn eigi að fá tækifæri til að taka þátt í íþróttastarfi á sínum forsendum. Erindið byggir meðal annars á samstarfsverkefni Gló Æfingastöðvar, ÍFR og ÍBR sem miðaði að því að auka þátttöku barna með hreyfihömlun í íþróttum.
👉 Vorráðstefna 2026: Sköpum tækifæri – þátttaka og framtíð fatlaðra barna
📍 Hilton Reykjavík Nordica & í streymi
🗓 7.–8. maí