08/06/2026
Vorverkin á bókasafninu eru ögn óvenjuleg þetta vorið. Öllum bókum hefur verið pakkað í kassa og það styttist í að safnið tæmist af öllum húsgögnum. Í sumar verður unnið að lagfæringum á þaki / lofti og í haust verður safnið sett saman aftur. 📦📚
08/06/2026
Þann 12. ágúst nk verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Almyrkvinn sést frá höfuðborgarsvæðinu, Reykjanesskaga, Vestfjörðum, Snæfellsnesi og Vesturlandi. Í Hafnarfirði verður sólin almyrkvuð í kringum 1 mínútu, en hér á Hvaleyrinni verður hún almyrkvuð í rúma 1 mínútu - svo það er um að gera að njóta sjónarspilsins í heimabyggð, þar sem hver sekúnda skiptir máli í þessu náttúruundri 💛☀️🌝
Í spilara RÚV er hægt að hlusta á fróðlegt og skemmtilegt viðtal við Sævar Helga Bragason: https://www.ruv.is/utvarp/spila/segdu-mer/24558/biehoo. Vefsíða hans Sólmyrkvi2026 er síðan kúffull af fróðleik: https://solmyrkvi2026.is/.
22/05/2026
Frábær rithöfundur með frábæra bók! Ævar heimsótti miðdeild (8. bekkur bættist við) og las uppúr fertugustu bók sinni: Skaðræðisskepnur: einu sinni var … Virkilega spennandi og grípandi saga með mögnuðum myndum 🐈⬛🐄👣
12/05/2026
Krakkakosningar fóru fram á bókasafninu í dag og áttu nemendur í 5.-10. bekk kost á að segja sína skoðun í sveitarstjórnarkosningunum sem eru nú yfirvofandi. Krakkafréttir á RÚV litu inn og tóku upp innslag 🙂 KrakkaRÚV
05/05/2026
Nú styttist í venjubundin vorverk: að skila öllum bókum á safnið. Þau eru óvenju snemma á ferðinni í ár þar sem pakka þarf niður bókasafninu vegna fyrirhugaðra framkvæmda í sumar.
20/03/2026
♥️Ævar og ævintýrin♥️ Hipp hipp húrra til allra nemenda Hvaleyrarskóla sem unnu frábær verkefni tengd bókum Ævars Þórs Benediktssonar síðustu daga og buðu svo á opið hús í morgun þar sem hægt var að skoða öll ósköpin. Það voru stoltir nemendur sem sýndu vinnu sína og ekki síður stoltir kennarar og starfsmenn sem sáu nemendur sína láta ljós sitt skína. Ævar sjálfur mætti svo á staðinn og átti ekki til orð yfir öllu umfanginu og fjölbreytninni! ♥️Takk besti Ævar fyrir okkur!♥️
20/03/2026
Í dag lauk þemadögum með opnu húsi í Hvaleyrarskóla þar sem allir árgangar unnu með bækur Ævars Þórs Benediktssonar, enda yfirskriftin Ævar og ævintýrin. Skólasafnið vann með nemendum í 3. MI og 3. RAG að risaeðlum, en bókin Þín eigin saga - risaeðlur varð fyrir valinu hjá þeim árgangi.
03/03/2026
Nemendur í 1. bekkjum skólans gerðu vöfflur eftir að hafa hlustað á bókina Einn góðan veðurdag og nemendur í 2. bekkjum útbjuggu Stafrófsstræti líkt og kemur fyrir í bókinni Stórhættulega stafrófið 💚📚