23/10/2024
🌹🙌
Viltu slást í hópinn – eða tilnefna einhvern? Ef þú vilt þú vera með okkur í að skapa framtíð Íslands þá hvetjum við þig til að hafa samband!
BUJaH er ungliðahreyfing Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og er opin öllum sem hafa áhuga á að taka þátt í starfinu. Komdu og vertu með! nóvember 2013
I. II. III.
Lög Bersans
Samþykkt á aðalfundi 22. Heiti, heimili og markmið.
1. grein.
• Nafn félagsins er Bersinn - Ungir jafnaðarmenn í Hafnarfirði (skammst. BUJaH) og kennitala þess er 700301-3970. Félagið er ungliðahreyfing Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Heimili þess og varnarþing er í Hafnarfirði.
2. grein.
• Félagið er opinn og lýðræðislegur vettvangur fyrir skapandi umræður og félagsstarf ungs jafn
23/10/2024
🌹🙌
Viltu slást í hópinn – eða tilnefna einhvern? Ef þú vilt þú vera með okkur í að skapa framtíð Íslands þá hvetjum við þig til að hafa samband!
13/09/2022
Sæl öll!
Hér að neðan er skráningarform fyrir landsfund Samfylkingarinnar. Þau sem hafa áhuga eru beðin um að skrá sig hér að neðan. 🌹
Landsfundur Samfylkingarinnar 28. til 29. október 2022 Ég undirritaður óska eftir því að vera fulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði á landsfundi Samfylkingarinnar Jafnaðarmannaflokks Íslands 2022. Listinn verður borinn saman við félagaskrá og lagður fyrir félagsfund 26. september til samþykktar.
28/08/2022
Öflug stjórn Ungs Jafnaðarfólks kosin á landsþingi í gær🌹
Arnór Heiðar nýr forseti UJ - Vísir Arnór Heiðar Benónýsson var í dag kjörinn forseti Ungs jafnaðarfólks á landsþingi samtakanna og tekur við embættinu af Rögnu Sigurðardóttur. Á þinginu var einnig kjörið í bæði framkvæmdastjórn og miðstjórn samtakanna.
18/06/2022
Við þökkum kærlega fyrir frábæra mætingu í vöfflukaffi Bersans 17. júní!
Það var mikið um gleði, spjall og auðvitað fögnuð á þessum hátíðardegi 🇮🇸
Hér koma nokkrar myndir eftir Kristínu Söru, sjálfboðaliða í vöfflukaffinu og meðstjórnanda Bersans
25/09/2021
28/05/2021
Gunnar Þór Sigurjónsson var kjörinn formaður Bersans - UJ í Hafnarfirði á aðalfundi félagsins 6. maí 💥
📢 ,,Ég ætla ekki að horfa á meðan ójöfnuður eykst. Ég ætla að berja hnefanum í borðið og berjast fyrir jöfnuði og betra samfélagi"
Í nýkjörinni stjórn Bersans sitja:
👉 Hildur Rós Guðbjargardóttir varaformaður
👉 Gauti Skúlason ritari
👉 Kolbrún Lára Kjartansdóttir meðstjórnandi
👉 Sigurður Ingi Ricardo Guðmundsson meðstjórnandi
22/05/2021
Bersinn, ungir Jafnaðarmenn í Hafnarfirði, skorar á bæjarstjórn að gera betur.
Nú undirbúa íslendingar sig eins og flestar evrópuþjóðir undir það að poppa og njóta Eurovision í kvöld. Það gerum við meðvituð um þá staðreynd að Ísrael er meðal þátttökuþjóða — við ætlum því að sitja í okkar örugga umhverfi og skemmta okkur fjarri hörmunga, þrátt fyrir að hundruðir hafi fallið í Palestínu síðustu daga. Á meðan mæður syrgja myrtu börnin sín, á meðan sprengjubrot eru fjarlægð og blóðið þornar, þá gerum við lítið annað en hugsa um okkur sjálf. Þetta skeytingarleysi okkar sást vel á dögunum, þegar ungum flóttamönnum frá Palestínu var hent út á götuna hér í Bæjarhrauni, allslausum.
Sannleikurinn er sá að það er allt of auðvelt að friða samviskuna með því að skipta út prófile myndum og lýsa yfir andstöðu við þá stríðsglæpi sem hafa átt sér stað. Það er sérstaklega auðvelt þegar við í raun höfum enga aðstöðu til að bjóða fram raunverulega hjálparhönd. Hælisleitendur og flóttafólk býr við slæmar aðstæður í Hafnarfirði, rétt eins og í öðrum sveitarfélögum. Yfirfull húsnæðin eru til skammar og í raun svo slæm að meirihlutanum í Hafnarfirði fannst besti kosturinn í stöðunni vera að hunsa hjálparköll frá Flóttamannahjálp Sameinuþjóðanna. Það var til dæmis gert þegar óskað var eftir því að taka á móti börnum frá Le**os, börnum sem búa við hræðilegar aðstæður. Málinu var frestað og tafið á meðan aðstæður versna og við gerum ekki neitt.
Því sitjum við nú og fylgjumst með fréttum af því þegar saklausar fjölskyldur eru sprengdar og myrtar. Við vitum að samfélag eins og Hafnarfjörður er fullfært um að bjóða fram aðstoð til þeirra sem eiga um sárt að binda, en til þess þarf vilja. Viljann til að gera betur og hjálpa þeim sem minna mega sín. Við skorum því á bæjarstjórn Hafnarfjarðar að gera betur í þessum málaflokki svo Hafnfirðingar þurfi ekki að skammast sín fyrir að standa aðgerðarlausir á hliðarlínunni á meðan hjálparköllin berast ítrekað.