Útskrift frá Flensborgarskólanum vorið 2026💛
Flensborgarskólinn í Hafnarfirði
Flensborgarskólinn í Hafnarfirði er ríkisrekinn framhaldsskóli sem starfar eftir áfangakerfi.
Skólinn býður upp á fjölbreytt nám en stærstur hluti nemenda stundar nám á bóknámsbrautum til stúdentsprófs
29/05/2026
Fimm drengir með hæstu einkunnir Flensborgarskólans
Flensborgarskólinn í Hafnarfirði brautskráði í dag 101 nemenda og útskrifuðust þau af fjórum brautum skólans; 6 af félagsvísindabraut, 13 af raunvísindabraut, 16 af viðskipta- og hagfræðibraut og 61 af opinni braut. Fimm nemendur luku námi á starfsbraut. Yfir helmingur þeirra lauk einnig námi af einu af eftirtöldum sviðum skólans; félagslífssviði, listasviði, tæknisviði og íþróttaafrekssviði.
Hæstu einkunn hlaut Daði Þór Friðriksson með 9,66 en hann hlaut Menntaverðlaun Háskóla Íslands fyrir framúrskarandi árangur í raungreinum á stúdentsprófi. Daði Þór hlaut einnig styrk frá Rio Tinto fyrir góðan árangur í raungreinum, verðlaun frá skólanum fyrir framúrskarandi árangur í spænsku og íþróttaafreksgreinum en Daði Þór er afreksmaður í sundi. Hann hlaut viðurkenningu frá stærðfræðafélaginu fyrir góðan árangur í stærðfræði og þá hlaut hann viðurkenningu frá Efnafræðifélagi Íslands sem veitt eru nemendum sem sýna afburða árangur í efnafræði en Daði Þór gerði sér lítið fyrir og sigraði landskeppni framhaldsskólanna í greininni fyrr á árinu.
Adam Ernir Níelsson varð semidúx Flensborgarskólans með einkunnina 9,26. Adam Ernir hlaut Raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík fyrir framúrskarandi árangur á stúdentsprófi og í íþrótt sinni, frjálsum íþróttum. Hann fékk einnig verðlaun frá skólanum fyrir framúrskarandi árangur í ensku og spænsku.
Það er sérstakt fagnarefni að þessu sinni að fimm vaskir drengir skipa hóp þeirra nýstúdenta sem luku prófi með yfir 9 í meðaleinkunn. Mátti vart sjá mun á einkunnum þeirra, enda afburðarnámsmenn allir og frábærar fyrirmyndir.
Þá voru fimm nýnemar, þær Anna Heiða Óskarsdóttir, Arnheiður Ísleif Ólafsdóttir, Ebba Guðríður Ægisdóttir, Ingibjörg Magnúsdóttir og Júlía Gunnarsdóttir Haarde, verðlaunaðir fyrir frábæran námsárangur á fyrsta námsári.
Nýstúdínan Steiney Lilja Einarsdóttir söng við athöfnina og Emilía Ósk Grétarsdóttir flutti ávarp fyrir hönd nýstúdenta. Emilía Ósk minntist áranna í Flensborg með hlýju og hrósaði metnaðarfullu skólastarfi, góðum kennurum og góðum anda. Erla Sigríður Ragnarsdóttir, skólameistari, kallaði í sínu ávarpi, eftir auknu samtali um helstu áskoranirnar á framhaldsskólastiginu og markvissri stefnumótun á sviði framfara, þ.m.t. nýtingu og þróunar gervigreindar. Skólameistari treystir á að hlustað sé á fagfólk í framhaldsskólum landsins enda velferð og aukin stoðþjónusta á skólastiginu framfaramál samfélagsins alls.
Til hamingju nýstúdentar!⭐️
27/05/2026
Skólameistari undirritar námsferla nemenda í undirbúningi fyrir brautskráningu sem fer fram við hátíðlega athöfn á morgun kl. 14.
Við hlökkum til að sjá ykkur öll🎉
11/05/2026
Efnafræðikennari skólans til margra ára, Hildur Einarsdóttir, var í skemmtilegu viðtali við Morgunblaðið nýlega en viðtalið birtist í sunnudagsblaðinu um helgina💛
06/05/2026
Nýjasta fréttabréf til nemenda og foreldra er komið út, stútfullt af góðum upplýsingum fyrir síðustu daga annarinnar💛
20/04/2026
Daði Þór Friðriksson gerði sér lítið fyrir á dögunum og sigraði landskeppni í efnafræði sem Efnafræðifélag Íslands stendur árlega fyrir. Keppnin hefst á forkeppni en um 14 efstu þar fá þátttökurétt í úrslitakeppninni sem er bæði fræðileg og verkleg. Daði Þór tók einnig þátt í keppninni á síðasta skólaári en þá kom sigurvegarinn einnig úr Flensborg, Bergur Fáfnir Bjarnason. Bergur Fáfnir tók í kjölfarið þátt í ólympíuliði Íslands í efnafræði það ár og stundar nú nám í efnaverkfræði við Háskóla Íslands.
Þess má einnig geta að bæði Bergur Fáfnir og Daði Þór hafa haldið utan um jafningjakennslu í stærðfræði síðasta árið sitt hér í Flensborg. Svo eru þeir líka sterkir sundmenn hjá SH. Þeim er sannarlega ýmislegt til lista lagt.
Til hamingju með sigurinn, Daði Þór!💛
17/04/2026
Flensborgarar eru svo sannarlega í aðalhlutverkum í rimmu FH og Hauka í handboltanum þessa dagana. Sjá nánar í meðfylgjandi frétt. ⚽
Flensborgarar berjast um Fjörðinn! FH og Haukar etja kappi um þessar mundir um laust sæti í úrslitaviðureign Íslandsmótsins í handbolta...
17/04/2026
Nemendur okkar í valáfanga í þýsku eru stödd í Berlín þessa dagana. Þar njóta þau leiðsagnar Þórunnar Elínar þýskukennara og hefur allt gengið eins og í sögu. Nemendur hafa m.a. heimsótt Kaiser Wilhelm kirkjuna og dýragarðinn og fræðst um sögu múrsins og minningar frá fyrri tíð. Nú eru þau á heimleið eftir afar vel heppnaða ferð - Kommt gut nach Hause!🇩🇪🧡🇩🇪
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Contact the business
Telephone
Website
Address
Hringbraut 10
Hafnarfjörður
220HAFNARFIRÐI
Opening Hours
| Monday | 09:00 - 17:00 |
| Tuesday | 08:00 - 15:30 |
| Wednesday | 08:00 - 15:30 |
| Thursday | 08:00 - 15:30 |
| Friday | 08:00 - 17:00 |
