Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði

Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði

Share

Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði

03/06/2026

Kynningarfundur um nýjan meirihluta í Hafnarfirði 💙

Í dag er fyrsti bæjarstjórnarfundur nýs meirihluta. Af því tilefni bjóða bæjarfulltrúarnir ykkur á kynningarfund í kvöld kl. 20:00 á Norðurbakka. Þessi fundur kemur í staðinn fyrir fundinn sem áður var auglýstur á laugardaginn síðasta.

Sjálfstæðisstefnan er áberandi í nýja samstarfssáttmálanum, þar sem ábyrg fjármál, frelsi einstaklinga og öflugt atvinnulíf eru í forgrunni. Við höfum tryggt að útsvar og fasteignagjöld hækki ekki umfram verðlag á kjörtímabilinu.

Orri Björnsson tekur við sem formaður bæjarráðs og mun leiða vinnuna fyrir okkar hönd. Þórður Þórarinsson verður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Hann er traustur og reyndur leiðtogi.

Við hvetjum ykkur til að mæta í kvöld. Við munum fara betur yfir stefnumálin og hlökkum til að ræða næstu skref með ykkur.

Sjáumst klukkan 20:00

https://fb.me/e/etbfeKcAX

26/05/2026

Sjálfstæðisstefnan er áberandi í nýjum samstarfssáttmála meirihlutans í Hafnarfirði þar sem ábyrg fjármál, frelsi einstaklinga og öflugt atvinnulíf eru í forgrunni. Samkomulagið byggir á traustum rekstri sveitarfélagsins, einfaldari stjórnsýslu og aukinni skilvirkni án þjónustuskerðingar. Á kjörtímabilinu verður útsvar ekki hækkað og fasteignagjöld munu ekki hækka umfram verðlag. Jafnframt verður ráðist í rekstrar- og stjórnsýsluúttekt til að tryggja betri nýtingu fjármuna bæjarbúa.

Lögð er sérstök áhersla á fjölskyldur og aukið valfrelsi með hækkun heimagreiðslna og auknum stuðningi við dagforeldra. Sjálfstætt starfandi leik- og grunnskólar fá áfram stuðning og unnið verður að því að einfalda daglegt líf fjölskyldna.

Samstarfið setur einnig atvinnulíf og verðmætasköpun í öndvegi með því að halda álögum á fyrirtæki í lágmarki, tryggja lóðaframboð og bæta þjónustu við fyrirtæki og frumkvöðla. Áhersla verður lögð á öflugt skipulag, uppbyggingu innviða og ábyrga stefnu í málefnum hælisleitenda með hagsmuni bæjarbúa að leiðarljósi.

Nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar verður Þórður Þórarinsson.

https://xdhafnarfjordur.is/samstarfssattmali-meirihluta-sjalfstaedisflokks-vidreisn-og-samfylkingar-2026-2030-i-hafnarfirdi/

25/05/2026

Boðað er til fundar í fulltrúaráði Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði.

Fundurinn fer fram að Norðurbakka 1, þriðjudaginn 26. maí 2026 kl. 17:00.

Með kveðju
Kristjana Ósk Jónsdóttir
Formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði

16/05/2026

Áttu eftir að kjósa XD? Ekkert mál því það er opið í Lækjarskóla og á Ásvöllum til kl. 22 í kvöld! Sjáumst svo á Betri stofunni 🥳🥳

Photos from Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði's post 16/05/2026

Kosið er í dag! 🗳️ X við D til að tryggja áframhaldandi stöðugleika og góða stjórn í Hafnarfirði. Við þurfum á þínum stuðningi að halda, þitt atkvæði skiptir máli!
🔵 Kjörstaðir eru opnir frá kl. 09:00 til 22:00.
🔵 Kosið er í Lækjarskóla og Íþróttamiðstöðinni Ásvöllum.
🔵 Kosningakaffi á Norðurbakka 1 milli kl. 10:00-18:00 í dag. Komdu við hjá okkur eftir að þú ert búin að kjósa.

Kjósum XD áfram við stjórn Hafnarfjarðar! 💙⚓️

16/05/2026

Kosið er í dag! 🗳️ X við D til að tryggja áframhaldandi stöðugleika og góða stjórn í Hafnarfirði. Við þurfum á þínum stuðningi að halda, þitt atkvæði skiptir máli!
🔵 Kjörstaðir eru opnir frá kl. 09:00 til 22:00.
🔵 Kosið er í Lækjarskóla og Íþróttamiðstöðinni Ásvöllum.
🔵 Kosningakaffi á Norðurbakka 1 milli kl. 10:00-18:00 í dag. Komdu við hjá okkur eftir að þú ert búin að kjósa.

Kjósum XD áfram við stjórn Hafnarfjarðar! 💙⚓️

16/05/2026

Gleðilegan kjördag 💙
D-liðið er klárlega skemmtilegasta liðið! Setjum X við D og höldum gleðinni áfram í Hafnarfirði 👏🏼

15/05/2026

Sjálfstæði og sjálfsákvörðunarréttur fatlaðs fólk eru sjálfsögð mannréttindi 💙

Want your business to be the top-listed Government Service in Hafnarfjörður?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Norðurbakki 1
Hafnarfjörður
220