Þá er komið að síðasta hluta af viðtölum við unga frambjóðendur í Kraganum. Við kíktum á þær Hildi og Heklu sem skipa 2. og 6. sæti á lista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði🌹
Katrín - Ungt jafnaðarfólk í Kraganum
Ungt jafnaðarfólk í suðvesturkjördæmi
Þá er komið að 4. hluta af viðtölum við unga frambjóðendur í Kraganum. Við kíktum á hana Auði sem skipar 4. sæti á lista Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ🌹
11/05/2026
Kosninga pepp partý Katrínar verður haldið miðvikudaginn 13. maí kl 20:00 á kosningaskrifstofu Samfylkingarinnar í Hafnarfirði að Strandgötu 43 🤠
Öll velkomin og drykkir í boði!
Þá er komið að 3.hluta af viðtölum við unga frambjóðendur í Kraganum. Við förum á Eiðistorg og ræðum við Auði og Egil sem skipa 4. og 5. sæti á lista Samfylkingar, Viðreisnar og óháðra.
04/05/2026
Nafn: Auður Einarsdóttir
Aldur: 23 ára
Stjörnumerki: Sporðdreki 🦂
Ég stunda nám við lagadeild Háskóla Íslands og er að klára mitt 2 ár þar. Ég er ofboðslega mikill jafnréttissinni og brenn fyrir mannréttindum. En þar að auki er ég stemmingskona og hata ekki að fá mér kaldann á happy í góðum félagsskap.
En ég er í framboði fyrir Samfylkinguna til þess að láta gott af mér leiða í bæjarmálum þar sem mér er mjög annt um Mosfellsbæ. Ég ólst hér upp og skiptir það mig miklu máli að bæjarbúar hafi jöfn tækifæri til að blómstra í þessu frábæra sveitafélagi.
Þá er komið af 2. hluta af viðtölum við unga frambjóðendur. Við tölum við hann Ögmund Árna, sem skipar 5.sæti á lista Samfylkingar í Garðabæ.
Við byrjum á Kópavogi. Frambjóðendur; Jónas Már 1.sæti og Orri Thor 5.sæti
28/04/2026
7. sæti Mosfellsbæjar er enginn annar en okkar eigin Sigurður Óli, viðburðarstjóri Katrínar!
Nafn: Sigurður Óli Karlsson
Aldur: 21
Stjörnumerki: Steingeit 🐐
Sigurður Óli Karlsson hefur búið í Mosfellsbæ allt sitt líf og þekkir því bæinn og samfélagið vel. Hann gekk í Lágafellsskóla og síðar í Framhaldsskólann í Mosfellsbæ og er nú stjórnmálafræðinemi við Háskóla Íslands.
Sigurður hefur verið virkur í kirkjustarfi um árabil, bæði sem æskulýðsleiðtogi og kirkjuvörður í Lágafellskirkju, og hefur setið í sóknarnefnd frá 18 ára aldri. Þar hefur hann öðlast dýrmæta reynslu af félagsstarfi, ábyrgð og þjónustu við samfélagið.
Hann hefur einnig brennandi áhuga á leiklist og hefur tekið þátt í fjölmörgum sýningum með Leikfélagi Mosfellsbæjar. Þar nýtur hann sín vel og leggur sitt af mörkum til menningarlífs bæjarins.
Sigurður brennur fyrir enn betri Mosfellsbæ og vill leggja sitt af mörkum til að efla hann enn frekar.
27/04/2026
Næsti frambjóðandi er Þyrnir Hálfdán sem vermir 15. sæti lista Mosfellsbæjar!
Nafn: Þyrnir Hálfdan Þyrnisson
Aldur: 22
Stjörnumerki: Naut 🐮
Ég er Mosfellingur, áhugamaður um stjórnmál, íslensku, samfélagsmál, myndbandsupptökur og miðla. Mosfellsbær er staður fullur af tækifærum til þess að blómstra, og hefur þetta vaxandi bæjarfélag mótað mig sem mannveru.
Besti samkomustaðurinn í Mosfellsbæ er Áslákur, ekta sveitakrá þar sem hægt er að skemmta sér í pílu og snooker. Ég sé fyrir mér blómstrandi höfuðborgarsvæði fyrir alla óháð stétt og vona að slíkt eigi eftir að skila sér eftir framlag mitt í þessum kosningum.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Website
Address
Strandgata 43
Hafnarfjörður
220
