Á-listinn Rangárþingi ytra

Directions Website Contact the organization

Á-listinn Rangárþingi ytra Við stöndum fyrir ábyrga fjármálastjórn, aukin lífsgæði, fjölbreytt atvinnulíf, sterkar menntastofnanir og opna stjórnsýslu.

Við stuðlum að innviðauppbyggingu í þágu öryggis og hagkvæmni fyrir alla íbúa, jafnt í þéttbýli sem dreifbýli.

Skuldahlutfall Rangárþings ytra Í liðinni viku fór árleg fjármálaráðstefna sveitarfélaga fram þar sem fjárhagsstaða og f...
11/10/2026

Skuldahlutfall Rangárþings ytra

Í liðinni viku fór árleg fjármálaráðstefna sveitarfélaga fram þar sem fjárhagsstaða og framtíðaráskoranir sveitarfélaga voru til umfjöllunar.

Ein mikilvægasta lykiltalan í ársreikningum sveitarfélaga, og sú sem fær oft mesta athygli, er skuldahlutfall.

Meðfylgjandi mynd sýnir þróun skuldahlutfalls A- og B-hluta Rangárþings ytra frá stofnun sveitarfélagsins árið 2002.

Nú standa yfir fordæmalausar framkvæmdir í Rangárþingi ytra. Það hefur frá upphafi verið ljóst að svo umfangsmikil uppbygging myndi leiða til hækkunar skuldahlutfallsins. Okkar verkefni er að tryggja að sú hækkun verði viðráðanleg og skuldsetningin fari ekki úr böndum.

Áætlanir hafa að mestu staðist, en það reynir á. Tekjur eru ekki alltaf fyrirsjáanlegar. Þess vegna þarf stöðugt að endurmeta forsendur, forgangsraða og gæta að rekstrarlegu svigrúmi.

Við viljum halda áfram öflugri uppbyggingu, en um leið gæta jafnvægis í fjármálunum. Fjárfestingar dagsins í dag eiga að styrkja samfélagið til framtíðar, ekki skapa ósjálfbæra skuldabyrði.

Ókeypis blóðsykurmælingar á Hellu í dag 🩸Lionshreyfingin býður upp á ókeypis blóðsykurmælingar í Miðjunni á Hellu í dag,...
09/10/2026

Ókeypis blóðsykurmælingar á Hellu í dag 🩸

Lionshreyfingin býður upp á ókeypis blóðsykurmælingar í Miðjunni á Hellu í dag, föstudaginn 9. október, kl. 14:00-17:00. Blóðsykurmæling getur gefið mikilvægar vísbendingar um heilsufar.

Við þökkum Lionsfélögum fyrir þetta góða framtak og þeirra mikilvæga sjálfboðastarf í þágu samfélagsins.

Mikil íbúafjölgun í Rangárþingi ytra undanfarin ár---Nýlega birti Þjóðskrá tölur um íbúafjölda í sveitarfélögum síðustu ...
08/10/2026

Mikil íbúafjölgun í Rangárþingi ytra undanfarin ár
---
Nýlega birti Þjóðskrá tölur um íbúafjölda í sveitarfélögum síðustu 7 árin, eða frá 1. desember 2019 til 1.október 2026. Samkvæmt þeim hefur íbúum í Rangárþingi ytra fjölgað úr 1.684 í 2.105 íbúa, sem er fjölgun um 421 íbúa eða heil 25%.

Þetta er sérstaklega athyglisverð þróun þegar litið er til næstu sjö ára þar á undan sem var fjölgun um 164 íbúa eða 10,8%

Íbúafjölgunin er því verið meira en tvöfalt meiri á síðara tímabilinu.

Við í Á-listanum fögnum þessari jákvæðu þróun. Fjölgun íbúa styrkir samfélagið, skapar ný tækifæri fyrir atvinnulífið og eykur möguleika á fjölbreyttari þjónustu.

Mikilvægt er þó að vöxturinn sé hóflegur og vel skipulagður og að uppbygging innviða og þjónustu haldist í hendur við fjölgun íbúa.

Markmiðið er ekki aðeins að fjölga íbúum heldur að tryggja að Rangárþing ytra verði áfram öflugt og fjölskylduvænt samfélag þar sem gott er að búa.

Miklar innviðafjárfestingar í Rangárþingi ytra Rangárþing ytra stendur nú í umfangsmesta fjárfestingartímabili sveitarfé...
03/10/2026

Miklar innviðafjárfestingar í Rangárþingi ytra

Rangárþing ytra stendur nú í umfangsmesta fjárfestingartímabili sveitarfélagsins. Samtals eru þetta um 3 milljarðar króna á aðeins fjórum árum. Fjárfestingarnar snúa meðal annars að skólamannvirkjum, íþróttaaðstöðu, gatnakerfi, opnum svæðum og annarri grunnþjónustu sveitarfélagsins.

Þróunin sést vel á grafinu hér að neðan.

Betur fór en á horfðist á Hellu í dag.Innilegar þakkir til okkar öfluga slökkviliðs fyrir skjót og fagleg viðbrögð. Það ...
27/09/2026

Betur fór en á horfðist á Hellu í dag.

Innilegar þakkir til okkar öfluga slökkviliðs fyrir skjót og fagleg viðbrögð. Það er ómetanlegt að vita af slíkum fagmönnum þegar á reynir.

🚒

Eldur kviknaði á geymslusvæði á Hellu. Hann kom upp í plaströrum sem lágu á jörðinni við gámaþyrpingu. Eldsupptök eru ókunn.

⚽️ FIFA Quality-vottun í hús!Nýi gervigrasvöllurinn á Hellu, Stracta-völlurinn, hefur fengið FIFA Quality-vottun, eins o...
24/09/2026

⚽️ FIFA Quality-vottun í hús!

Nýi gervigrasvöllurinn á Hellu, Stracta-völlurinn, hefur fengið FIFA Quality-vottun, eins og stefnt var að. Eiríkur sveitarstjóri fjallar um það í grein sinni.

Fyrsta skóflustungan var tekin í júlí 2024 og völlurinn er hluti af áframhaldandi uppbyggingu íþróttasvæðisins. Undirbúningur frjálsíþróttaaðstöðu er þegar hafinn.

Hitun gervigrasvallarins er næsta mikilvæga skref. Hitalagnir eru þegar undir vellinum og unnið er að lausnum til að ljúka því verkefni. Hitun myndi lengja nýtingartímann verulega og gera góða aðstöðu enn betri.

Markmiðið er alltaf að skapa betri aðstöðu fyrir börn og ungmenni og að mæta óskum íþróttahreyfingarinnar.

Róm var ekki byggð á einum degi - en við teljum okkur vera á réttri leið.

Nýr gervigrasvöllur á Hellu, Stracta-völlurinn, hefur staðist ítarlega úttekt óháða prófunaraðilans Sports Labs og fær FIFA Quality-vottun. Niðurstaðan staðfestir gæði vallarins og er ánægjulegur á…

Hóflegar álögur í Rangárþingi ytra Nýr samanburður á fasteignagjöldum í Morgunblaðinu í dag sýnir að Rangárþing ytra ste...
22/09/2026

Hóflegar álögur í Rangárþingi ytra
Nýr samanburður á fasteignagjöldum í Morgunblaðinu í dag sýnir að Rangárþing ytra stendur vel í samanburði við önnur sveitarfélög. Fyrir 150 m² hús með 80 milljóna króna fasteignamat eru heildargjöldin 491 þús. kr. á ári.

Það er sérstaklega athyglisvert þar sem Rangárþing ytra er aðeins með tæplega 2.000 íbúa. Flest sveitarfélögin sem eru með lægri álögur eru fjölmennari og njóta því almennt meiri stærðarhagkvæmni í rekstri og þjónustu.

Hófleg gjaldtaka og ábyrg fjármálastjórn eru skýrar áherslur Á-listans og hafa verið alla tíð.
---
Heimild: Morgunblaðið, 22. september 2026, bls. 10 - „Margfaldur munur á gjaldheimtu“.

Íþróttavallarsvæðið á Hellu - Af fundi Framkvæmda- og eignanefndar 21. september 2026:⚽️🥅🤸🟢 Töluvert hefur verið unnið í...
21/09/2026

Íþróttavallarsvæðið á Hellu - Af fundi Framkvæmda- og eignanefndar 21. september 2026:
⚽️🥅🤸

🟢 Töluvert hefur verið unnið í umhverfi íþróttavallar og gerðar úrbætur fyrir frjálsar íþróttir þar sem útbúin hafa verið kastsvæði ásamt því að vinna með að tyrfa svæðið og snyrta.

🟢 Einnig er búið að smíða tvö vegleg varamanna skýli fyrir knattspyrnuvöllinn.

🟢 Lausu kennslustofurnar sem notaðar voru fyrir verknám og myndlist losnuðu í vor. Þar hefur nú verið byrjað að innrétta búningsklefa og snyrtingar fyrir íþróttasvæðið. Búið er að klæða húsið að utan. Milliveggir eru komnir en eftir er að ganga frá sturtum, mála og ganga frá gólfefnum. Búð er að leggja frárennsli utan með húsi fyrir sturtur og snyrtingar.

🟢 Kallað var eftir upplýsingum frá verktaka gervigrasvallarins varðandi áhrif vetraraðstæðna á völlinn. Samkvæmt skriflegu svari verktaka eru fæstir vellir af þessari gerð upphitaðir og það þá gert til þess að auka nýtingu en hefur ekki áhrif á endingu og gæði.

🟢 Hitalagnir undir vellinum voru vatnstæmdar. Áfram verða skoðaðar mögulegar leiðir til að koma hitun á völlinn.

🟢 Knattspyrnuvöllurinn var tekinn út af óháðum skoðunaraðila og kom sú úttekt vel út. Gervigrasvöllurinn hefur staðist allar úttektir og fengið alþjóðlega FIFA vottun.

Nýbygging leikskóla á Hellu - af fundi Framkvæmda- og eignanefndar 21. september 2026:👶👧🧒🟧 Lagt fram minnisblað um stöðu...
21/09/2026

Nýbygging leikskóla á Hellu - af fundi Framkvæmda- og eignanefndar 21. september 2026:
👶👧🧒
🟧 Lagt fram minnisblað um stöðu framkvæmda við nýbyggingu leikskóla frá forstöðumanni eigna- og framkvæmdasviðs. Unnið er að reisingu burðarvirkis nýs leikskóla og eru áætluð verklok í lok október 2026. Í framhaldi af því verður húsinu lokað.

🟧 Áætlaður framkvæmdakostnaður leikskóla er 1,41 milljarður króna eða um 920 þúsund krónur per fermetra. Það er fyrir utan lóðafrágang. Gengið var til samninga við Steypustöðina um framleiðslu og reisingu burðarvirkis og Stórverk um jarðvinnu og lagnir í grunni.

🟧 Gert var ráð fyrir 760 milljónum króna á fjárfestingaráætlun þessa árs í leik- og grunnskóla. Ljóst er að auki þurfi við fjárheimildir í fjárfestingaráætlun ársins ef ljúka á við þær framkvæmdir sem stefnt var að.

Address

Suðurlandsvegur 1-3
Hella
850

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Á-listinn Rangárþingi ytra posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Á-listinn Rangárþingi ytra:

Shortcuts

Share