12/06/2026
Fræðsludagskrá sumarsins 2026 🪻
🌱Fjölbreytt fræðsludagskrá hefst núna á mánudaginn 15. júní í Snæfellsjökulsþjóðgarði
💚Fræðslugöngur, barnastundir og sérstakir viðburðir í boði fyrir öll.
Hlökkum til að sjá ykkur í sumar!
💚🪻🌱
07/06/2026
⚓Í dag, á sjómannadaginn sendum við öllum sjómönnum og fjölskyldum þeirra bestu kveðjur og þakkir fyrir þeirra mikilvæga starf.
🌊Við Malarrif í þjóðgarðinum stendur Malarrifsviti, sem um áratuga skeið hefur verið mikilvægt leiðarljós fyrir sjófarendur. Áður fyrr gegndu vitar lykilhlutverki við að leiðbeina skipum, vara við hættum og auka öryggi á sjó. Í dag hafa GPS-tæki og önnur nútímatækni tekið við mörgum af þeim verkefnum, en vitarnir standa enn vörð sem mikilvægar öryggis- og menningarminjar.
Til hamingju með sjómannadaginn!
⚓🌊
30/05/2026
💚Í maí hafa verið góð skilyrði fyrir fjölbreytt viðhaldsverkefni.
🥾Landverðir þjóðgarðsins hafa nýtt tímann vel til að sinna mikilvægu viðhaldi á innviðum og lagfæra skemmdir.
⚒️Til að halda svæðinu í sem bestu ástandi er notast við fjölbreytt verkfæri og aðferðir við viðhald og endurheimt.
🌿Við minnum gesti á mikilvægi þess að ganga eftir merktum stígum og fylgja stikum. Með því verndum við viðkvæman gróður og komum í veg fyrir að nýir villustígar myndist.
Sjáumst í þjóðgarðinum okkar allra!
💚🥾🌿
29/05/2026
Vel heppnaður dagur á opnun ljósmyndasýningarinnar Melrakki eftir Phil Garcia í þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi í dag, 29. maí.
Gestir nutu einnig áhugaverðs erindis Esterar Rutar spendýravistfræðings um íslenska refinn sem vakti mikinn áhuga.
Sýningin stendur til 23. maí og er að sjálfsögðu opin öllum. Bókin þeirra Melrakki fæst hjá okkur á báðum gestastofunum okkar fyrir áhugasama.
Takk kærlega fyrir komuna!
💚🦊🌱
26/05/2026
Sögugangan með Magnúsi minjaverði um Öndverðanes þann 21. maí tengdi saman náttúru og menningu á skemmtilegan máta.
Eitt af verkefnum þjóðgarðsins er að efla minjaheildarsvæðið á Öndverðanesi. Var gangan einn af mörgum þáttum í þeirri uppbyggingu sem er framundan.
Í göngunni voru ræddar mögulegar útfærslur verkefnisins og kom skýrt fram mikill áhugi á menningarminjum.
Takk fyrir leiðsögnina Magnús!
22/05/2026
Í gær tókum við á móti frábærum útskriftarhópi frá leikskólanum í Snæfellsbæ á Malarrifi.
☀️ Mikil gleði og áhugi einkenndi þennan flotta hóp sem fékk góða kynningu frá Guðmundi landverði og fór svo í náttúrubingó um svæðið í blíðskaparveðri.
🌿 Við hlökkum til að kynnast þeim enn betur á næstu árum þegar þau heimsækja okkur með grunnskóla Snæfellsbæjar.
💚 Til hamingju með áfangann, framtíðin er svo sannarlega björt!
21/05/2026
Melrakki | Sýningaropnun & fræðsluerindi
Þann 29. maí mun ljósmyndasýningin Melrakki, eftir Phil Garcia, opna í þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi. Í tilefni af sýningaropnuninni verður Ester Rut Unnsteinnsdóttir spendýravistfræðingur með áhugavert erindi um íslenska refinn.
Sýningin Melrakki samanstendur af átta stórum ljósmyndum af íslenska refnum í sínu náttúrulega umhverfi. Ljósmyndirnar veita einstaka innsýn í líf þessa harðgerða dýrs í íslenskri náttúru og skapa um leið vettvang til samtals og fræðslu um refinn og stöðu hans á Íslandi.
ÍEster starfar hjá Náttúrufræðistofu Íslands þar sem hún ber ábyrgð á vöktun íslenska heimskautarefsins. Ester hefur rannsakað stofn heimskautarefsins á Hornströndum í nærri 30 ár og tók m.a. þátt í því að stofna Melrakkasetrið á Súðavík árið 2010. Ester hefur unnið náið með Phil Garcia sem og öðrum ljósmyndurum og heimildamyndagerðarfólki í gegnum árin í verkefnum tengdum refnum.
Phil Garcia er franskur atvinnuljósmyndari búsettur á Flateyri. Ljósmyndir hans hafa hlotið alþjóðlegar viðurkenningar og verið sýndar á helstu náttúruljósmyndahátíðum Evrópu.
Frá árinu 2013 hefur Phil rannsakað og skráð harðbýlt líf heimskautarefsins á Íslandi
Saman gáfu þau Ester Rut og Phil Garcia, ásamt Rán Flygenring út bókina Melrakki, the Surviving Arctic Fox, sem telst vera helsta heimildarritið um heimskautarefinn á Íslandi.
Phil er einnig eigandi ferðaskrifstofunnar Explographe sem sérhæfir sig í ljósmyndaferðum. Hann skipuleggur ferðir til að miðla þekkingu sinni og hugmyndafræði til ljósmyndara sem vilja fræðast um íslenskt dýralíf, verndun þess og ábyrga ljósmyndun á því.
🦊💚🌿
Fyrirlesturinn hefst kl 12:00 þann 29. maí.
Umræður og léttar kaffiveitingar eftir á.
Við hlökkum til að sjá sem flesta!
👇Hlekkur á viðburð í fyrstu athugasemd.
English below in link for event