Snæfellsbær

Snæfellsbær

Share

Snæfellsbær er fjölskylduvænn bær í náttúruparadís á Snæfellsnesi. Bæjarfélagið er um 680 ferkílómetrar að stærð og íbúar þess eru ríflega 1700 talsins.

Flestir búa í þéttbýliskjörnunum Ólafsvík, Rifi og Hellissandi, en aðrir íbúar eru dreifðir um sveitir þess, Fróðárhrepp, Breiðuvík og Staðarsveit, eða minni þéttbýliskjarna á Hellnum og Arnarstapa. Helstu atvinnuvegir í Snæfellsbæ eru sjávarútvegur, landbúnaður og ferðaþjónusta. Styrkum stoðum hefur verið rennt undir menntun með öflugu skólakerfi þar sem lögð er áhersla á metnaðarfullt og lifandi

Drög að nýrri menntastefnu Snæfellsbæjar - óskað eftir ábendingum frá íbúum 17/04/2026

📣 Vilt þú hafa áhrif á menntastefnu Snæfellsbæjar?

Undanfarna mánuði hefur verið unnið að því að greina greina stöðu í mennta- og uppeldisstarfi í Snæfellsbæ og móta framtíðarsýn til næstu ára.

Verkefnið gengur vel og nú er óskað eftir ábendingum íbúa við drög að endurskoðaðri stefnu.

Eru íbúar hvattir til að láta sitt ekki eftir liggja og koma ábendingum á framfæri. 🤝

🔗 Drög að endurskoðaðri stefnu má nálgast í meðfylgjandi frétt.

Drög að nýrri menntastefnu Snæfellsbæjar - óskað eftir ábendingum frá íbúum

Tjaldsvæði Snæfellsbæjar opna fyrir sumarið 16/04/2026

Tjaldsvæði Snæfellsbæjar á Hellissandi opnaði í gær fyrir sumarið og á næstu dögum mun tjaldsvæðið í Ólafsvík opna fyrir gestum.

Tjaldsvæðin hafa notið mikilla vinsælda síðustu ár og fer gestum fjölgandi með hverju ári.

⛺️💯👏

Tjaldsvæði Snæfellsbæjar opna fyrir sumarið Tjaldsvæðið á Hellissandi opnaði í gær, 15. apríl, fyrir sumarið. Tjaldsvæðið í Ólafsvík opnar á næstu dögum.

Fyrri umræða um ársreikning Snæfellsbæjar fyrir árið 2025 14/04/2026

Á 400. fundi bæjarstjórnar 9. apríl sl. var ársreikningur Snæfellsbæjar fyrir árið 2025 tekinn til fyrri umræðu.

Í stuttu máli má segja að rekstur Snæfellsbæjar hafi komið mun betur út en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir og var rekstur samstæðunnar jákvæður um 630 m.kr. á meðan rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð að fjárhæð 416 m.kr.

Þetta er besta afkoma Snæfellsbæjar frá upphafi, þrátt fyrir að framkvæmdir og fjárfestingar í sveitarfélaginu hafi jafnframt verið meiri á árinu 2025 en áður.

🔗 Nánar um lykiltölur frá fyrri umræði í meðfylgjandi frétt.

Fyrri umræða um ársreikning Snæfellsbæjar fyrir árið 2025

Framlengdur framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga 10/04/2026

Sveitarstjórnarkosningar fara fram laugardaginn 16. maí 2026.

Frestur til að skila framboðslistum rann út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026.

Einungis eitt framboð skilaði inn lista.

Skv. 3. mgr. 46. gr. kosningalaga nr. 112/2021 framlengist framboðsfrestur því um tvo sólarhringa.

🔗 Nánar í meðfylgjandi frétt.

Framlengdur framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga

Bæjarstjórnarfundur 9. apríl 2026 09/04/2026

Vakin er athygli á því að 400. fundur bæjarstjórnar Snæfellsbæjar verður haldinn í Ráðhúsi Snæfellsbæjar fimmtudaginn 9. apríl 2026 kl. 16:00.

Fundarboð og dagskrá fundar má nálgast í meðfylgjandi frétt.

Bæjarstjórnarfundur 9. apríl 2026 Vakin er athygli á því að 400. fundur bæjarstjórnar Snæfellsbæjar verður haldinn í Ráðhúsi Snæfellsbæjar fimmtudaginn 9. apríl 2026 kl. 16:00.

Hunda- og kattahreinsun fimmtudaginn 9. apríl 2026 09/04/2026

Minnt er á að í dag, fimmtudaginn 9 apríl 2026, verður hunda- og kattahreinsun í Áhaldahúsinu í Ólafsvík frá kl. 13:00 - 17:00.

Nánar 👇

Hunda- og kattahreinsun fimmtudaginn 9. apríl 2026 Þeim sem láta hreinsa og bólusetja hunda og ketti annars staðar er bent á að koma tilkynningum eða skírteinum um slíkt til bæjarskrifstofu.

08/04/2026

Það er óhætt að segja að Hafnir Snæfellsbæjar séu lífæð sveitarfélagsins og má hrósa sjómönnum, fiskvinnslufólki og öðrum þjónustuaðilum sjávarútvegsins fyrir afar góðan marsmánuð.

Í mars komu á land 6.300 tonn í 340 löndunum og er það aukning um 9% frá sama mánuði árið 2025. Stærsti dagurinn var tæp 700 tonn.

Frá 1. janúar 2026 hafa komið á land 18.100 tonn, eða 10% aukning frá sama tíma í fyrra.

Vel gert sjómenn, fiskvinnslufólk og allir þjónustuaðilar sjávarútvegsins.

📸 Alfons Finnsson

31/03/2026

Tilkynning til íbúa í Ólafsvík 📣
Í dag, 31. mars, verður hafist handa við að moka snjó af þvergötum í Ólafsvík.
🚧 Byrjað verður kl. 9:30 og unnið fram eftir degi.
🤝 Íbúar eru vinsamlegast beðnir að huga vel að lagningu ökutækja og færa bíla af götum fyrir þann tíma svo snjómokstur gangi sem greiðast fyrir sig.

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar óskar eftir starfsmanni í aðhlynningu 30/03/2026

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar auglýsir eftir sjúkraliða / almennum starfsmanni í aðhlynningu.

Um er að ræða 50% vaktavinnu. Umsóknarfrestur til 9. apríl nk.

👇👇👇

Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar óskar eftir starfsmanni í aðhlynningu Dvalar- og hjúkrunarheimilið Jaðar auglýsir eftir sjúkraliða / almennum starfsmanni í aðhlynningu. Um er að ræða 50% vaktavinnu.

Fjölbreytt og skemmtileg sumarvinna hjá Snæfellsbæ 26/03/2026

Vilt þú vinna úti í sumar?

Snæfellsbær leitar að drífandi einstaklingum til að starfa við fjölbreytta og skemmtilega útivinnu í sumar.

🪏 Sumarvinna með áhaldahúsi Snæfellsbæjar
👷 Flokkstjórar vinnuskólahópa

Umsóknarfrestur er til 29. apríl 2026.

🔗 Nánari upplýsingar í hlekk.

Fjölbreytt og skemmtileg sumarvinna hjá Snæfellsbæ Snæfellsbær leitar að drífandi einstaklingum til að starfa við fjölbreytta og skemmtilega útivinnu í sumar sem hefur það að leiðarljósi að fegra umhverfi Snæfellsbæjar.

Hunda- og kattahreinsun fimmtudaginn 9. apríl 2026 25/03/2026

Hunda- og kattahreinsun, sem áður var auglýst fimmtudaginn 26. mars, hefur verið frestað vegna veðurs.

👉 Ný tímasetning 9. apríl 2026.

Hunda- og kattahreinsun fimmtudaginn 9. apríl 2026 Þeim sem láta hreinsa og bólusetja hunda og ketti annars staðar er bent á að koma tilkynningum eða skírteinum um slíkt til bæjarskrifstofu.

Want your business to be the top-listed Government Service in Hellissandur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Klettsbúð 4
Hellissandur
360

Opening Hours

Monday 09:00 - 12:00
13:00 - 15:30
Tuesday 09:00 - 12:00
13:00 - 15:30
Wednesday 09:00 - 12:00
13:00 - 15:30
Thursday 09:00 - 12:00
13:00 - 15:30
Friday 09:00 - 12:00
13:00 - 14:00