Hrunamannahreppur

Call Directions Website Contact the organization

Hrunamannahreppur Hrunamannahreppur er sveitarfélag í uppsveitum Árnessýslu. Íbúar eru um 900.
Á Flúðum búa um 500. Sveitarstjóri Hrunamannahrepps er Aldís Hafsteinsdóttir.

Hrunamannahreppur er í uppsveitum Árnessýslu og búa þar um 900 manns. Hrunamannahreppur er einnig þekktur undir nöfnunum Gullhreppurinn og Ytri-hreppur. Tengjast þessi nöfn Stóru-Laxá sem skilur að Hrunamannahrepp og Skeiða-og Gnúpverjahrepp. Hvítá aðskilur svo hreppinn frá Bláskógabyggð. Í Hrunamannahreppi er blómleg byggð. Atvinnuvegir snúast aðallega um landbúnað og er ein mesta garðyrkja landsins stunduð í hreppnum. En auðvitað er einnig stundaður hefðbundinn búskapur eins og nautgripa-, sauðfjár- og hrossarækt. Ekki er minni áhersla lög á þær greinar. Þéttbýliskjarni Hrunamannahrepps heitir Flúðir og býr þar um helmingur íbúa hreppsins. Á Flúðum er eina sveppaverksmiðja landsins sem sér öllu Íslandi fyrir sveppum allan ársins hring. Á Flúðum er líka eina límtrésverksmiðja landsins. Félagslíf í hreppnum er gott og eru starfrækt ýmiskonar félög í hreppnum þar sem fólk kemur saman og skemmtir sér. Í hreppnum er alltaf eitthvað um að vera og er íþróttahúsið fullsetið alla daga allan veturinn. Margir kórar er í hreppnum og það telst nánast undantekning ef fólk er ekki í kór. Í Hrunamannahreppi er boðið uppá eiginlega alla helstu þjónustu sem þarf. Þar er skóli, leikskóli, sundlaug, vínbúð, félagsheimili, matvöruverslun, veitingarstaðir, golfvellir, bar, hótel og margt fleira. Í hreppnum er nóg af tækifærum því nóg er af landi, heitu og köldu vatni. Þekktustu náttúruperlur hreppsins eru án efa Gullfoss og Kerlingarfjöll en auðvitað er fullt af öðrum flottum stöðum sem færri vita um. Hrunamannahreppur er blómlegt og lifandi sveitarfélag sem hefur upp á margt að bjóða. Jafnframt er Hrunamannahreppur elsta ósameinaða sveitarfélag landsins yfir 1100 ára samkvæmt Landnámu. Heimasíða hreppsins er www.fludir.is og netfang [email protected]
Sími: 480-6600
Þessi síða er hugsuð til þess að fræða fólk um það sem er að gerast í hreppnum og svara spurningum um hann ef einhverjar eru. Umsjónarmaður síðurnar er Aldís Hafsteinsdóttir, sveitarstjóri.

Ánægjuleg viðurkenning á góðu starfi starfsmanna og stjórnenda stofnana Hrunamannahrepps.  Til hamingju Hrunamenn 🥰
15/10/2026

Ánægjuleg viðurkenning á góðu starfi starfsmanna og stjórnenda stofnana Hrunamannahrepps. Til hamingju Hrunamenn 🥰

Sveitarfélag ársins er Hrunamannahreppur, en niðurstöður könnunar þess efnis voru kynntar á viðburði á Hótel Selfossi í dag.

Pésinn, fólk, fréttir og fjör í Hrunamannahreppi !Við minnum á að efni í næsta tölublað þarf að berast fyrir 29. septemb...
18/09/2026

Pésinn, fólk, fréttir og fjör í Hrunamannahreppi !

Við minnum á að efni í næsta tölublað þarf að berast fyrir 29. september nk.
..svo getur verið gaman að lesa gamla Pésa, kíktu á síðunna okkar:

https://www.fludir.is/is/stjornsysla/stjornsysla/pesinn

Áttu fallega mynd af krökkunum á hestbaki niðri í mýrinni, af heimsfræga heljarstökkinu á ærslabelgnum eða jafnvel eina ...
18/09/2026

Áttu fallega mynd af krökkunum á hestbaki niðri í mýrinni, af heimsfræga heljarstökkinu á ærslabelgnum eða jafnvel eina góða af sólsetrinu við Bláfell?

Þú þarft ekki að vera atvinnuljósmyndari til að taka þátt í ljósmyndasamkeppninni „Mannlíf og náttúra í Hrunamannahreppi“.

Nánari upplýsingar um keppnina má finna hér:

Í tilefni af 1150 ára afmælishátíð Hrunamannahrepps hefur verið ákveðið að efna til ljósmyndasamkeppni. Allir eru hvattir til að vera vakandi fyrir hinu fa

Fimmtudaginn 10. september og föstudaginn 11. september má búast við umferðartöfum í Hrunamannahreppi vegna fjárrekstra.
09/09/2026

Fimmtudaginn 10. september og föstudaginn 11. september má búast við umferðartöfum í Hrunamannahreppi vegna fjárrekstra.

Fimmtudaginn 10. september og föstudaginn 11. september má búast við umferðartöfum í Hrunamannahreppi vegna fjárrekstra Tafir geta orðið á umferð á Skeiða

Miðvikudaginn 9. september kl. 16-18 verða haldnar skemmtilegar sköpunarsmiðjur í Félagsheimilið Flúðum - bókasafni. Góð...
09/09/2026

Miðvikudaginn 9. september kl. 16-18 verða haldnar skemmtilegar sköpunarsmiðjur í Félagsheimilið Flúðum - bókasafni.

Góð fjölskyldu samverustund þar sem unnið verður með ýmislegt sem tengist réttum.

Hrunamannahreppur fékk viðurkenningu frá UNICEF á Íslandi sem Barnvænt sveitarfélag þann 14. nóvember 2025 við hátíðlega...
07/09/2026

Hrunamannahreppur fékk viðurkenningu frá UNICEF á Íslandi sem Barnvænt sveitarfélag þann 14. nóvember 2025 við hátíðlega athöfn í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum.
Viðurkenningin fékkst eftir nokkurra ára innleiðingarferli á verkefninu með aðkomu margra aðila, en aðkoma barna og ungmenna var sú mikilvægasta.
Myndbandið sem fylgir þessari færslu er verkefni ungmennaráðs Hrunamannahrepps inn í lokaskýrslu sveitarfélagsins sem Barnvænt sveitarfélag.

Hugmyndin var að gera texta við íslenskt lag sem fangar mikilvægi þess að börn séu höfð með í ráðum um málefni sem þau varða.

Við lagið var gert myndband sem nær utan um mikið af þeirri þjónustu og þau tækifæri sem sveitarfélagið Hrunamannahreppur býður börnum upp á.

Myndbandið er verkefni ungmennaráðs inn í lokaskýrslu Hrunamannahre...

01/09/2026

Það er að spyrja að því, það er sól og blíða á Flúðum í dag, þriðjudagurinn 1. sept. ☀️

Heilsuvikan er á fullu og nóg eftir í dag

kl. 16:15-17:15
Opin fjölskyldutími í íþróttahúsinu. Leikir og þrautir fyrir börn og fullorðna.

kl. 17:00
Boccia leikur fyrir framan íþróttahúsið þar sem farið er yfir undirstöðu atriði íþróttarinnar með leiðbeinanda.

Nánar inn á https://www.fludir.is/is/moya/calendar/heilsuvika-thridjudagur

Heilsuvika HrunamannahreppsHeilsuvikan er í fullum gangi og í dag, mánudaginn 31. ágúst, er sund í aðalhlutverki !Mánuda...
31/08/2026

Heilsuvika Hrunamannahrepps

Heilsuvikan er í fullum gangi og í dag, mánudaginn 31. ágúst, er sund í aðalhlutverki !

Mánudagurinn 31. ágúst:

- Sund fyrir 3-4 ára kl. 17:15-18:00
- Sund fyrir 5-6 ára kl. 18:00-18:45
- Flot í sundlauginni kl. 19:00
- Flot í sundlauginni kl. 20:00

Hvetjum ykkur til að mæta, njóta og taka þátt, enda er fátt betra en góð sundferð.

Sjáumst í sundi ! ;)

Árlega uppskeruhátíðin er laugardaginn 5. september. Gerum okkur glaðan dag saman, fyllum á búrið og styðjum við okkar f...
30/08/2026

Árlega uppskeruhátíðin er laugardaginn 5. september.

Gerum okkur glaðan dag saman, fyllum á búrið og styðjum við okkar fólk, ræktendur og framleiðendur hér í sveitinni.

Address

Akurgerði 6
Hruni
845HRUNAMANNAHREPPUR

Opening Hours

Monday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 12:00
13:00 - 16:00
Friday 09:00 - 12:30

Telephone

+3544806600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hrunamannahreppur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Hrunamannahreppur:

Shortcuts

Share