10/03/2026
Daginn daginn.
Eruð þið að lesa erlendar bækur ?
Eru einhverjar seríur í uppáhaldi hjá ykkur sem við erum ekki með Islenskar eða erlendar ?
Eruð þið að fylgjast með The Bridgertons á Netflix ?
Eða einhverjum öðrum seríum á erlendum stöðvum ?
18/02/2026
Eins og venja er á öskudag komu yfir 80 börn ásamt nokkrum fullorðnum hér á Bókasafnið í dag Sungu þau fyrir okkur og þágu sælgæti fyrir Í dag voru vinsælustu lögin "Gulur, rauður grænn og blár" og "Krummi svaf i klettagjá" en óvenjulítið um stælingar af Gamla Nóa
05/02/2026
Hér er linkur beint inná bókasafnið okkar, þú getur athugað hvort við eigum tiltekna bók og hvort hún er inni, endilega skoðið og grúskið. Til að taka frá bók þarf að vera skráður notandi en það er ekkert mál, getum hjálpað með það ef þið viljið :)
Alla vega hér er linkur og endilega vistið hann í tölvunni ykkar :)
htv.leitir.is
12/01/2026
Næstkomandi föstudag, 16. janúar, verður lokað hjá okkur á bóka- og héraðsskjalasafninu.
05/12/2025
Við minnum á bókakynninguna sem verður í dag hér á bókasafninu kl 16:00
02/12/2025
Á föstudaginn kl 16:00 verður bókakynning hjá okkur á bókasafninu. Endilega komið við og fáið ykkur kaffi og með því :)
15/09/2025
Því miður er enn verið að vinna í götunni og nánast engin bílastæði hér fyrir utan, biðjum við ykkur að leggja fyrir neðan hús í staðinn, við biðjumst velvirðingar á þessu brölti og seinagangi.
En til að kæta ykkur þá er gott að segja ykkur það að það eru 100 dagar til jóla :)
04/09/2025
Viltu bjarga blómum, silfurfoss (sumarblóm), kólus, aloe Vera og einhver kaktus. Fyrstu kemur fyrstur fær en farið varlega því framkvæmdir eru í götunni svo farið varlega ❤️
31/07/2025
Á morgun föstudaginn 1.ágúst verður breyttur opnunartími á bókasafninu, opið verður frá kl.10 til kl.14. Endilega komið og náið ykkur í bók fyrir helgina 😊
30/07/2025
Bændablaðið er enn í sumarfríi EEENNN SJÓNAUKINN er komin í hús :) því ber að fagna að hann er mættur aftur á stjá, nú ef þú átt ekki leið á bókó þá liggur sjónaukinn frammi á þessum helstu stöðum :) griptu hann með þér :)