10/06/2026
Nýkjörin bæjarstjórn Hveragerðis fyrir kjörtímabilið 2026–2030 kom saman í fyrsta sinn í gær á 605. fundi bæjarstjórnar sem haldinn var í fundarsal bæjarskrifstofunnar.
Fundinn sátu Ingimar Guðmundsson, María Rún Þorsteinsdóttir og Sigmar Karlsson, bæjarfulltrúar D-listans. Auk þeirra sat Hjalti Helgason fundinn um stund og tók þátt í afgreiðslu 32. dagskrárliðar, sem laut að ráðningu nýs bæjarstjóra, Ingimars Guðmundssonar.
Öll mál á dagskrá voru samþykkt samhljóða. Góður andi ríkti á fundinum og vænta bæjarfulltrúar þess að eiga farsælt samstarf á komandi kjörtímabili.
30/05/2026
Frábær mæting og rosaleg stemning á sumarfögnuði Sjálfstæðisfélags Hveragerðis.
29/05/2026
Boðað er til almenns fundar í Sjálfstæðisfélagi Hveragerðis á morgun, laugardaginn 30. maí, klukkan 10:30 í Mánamörk 1, í upphafi sumargleðinnar.
Fundurinn er boðaður með vísan til 57. gr. skipulagsreglna Sjálfstæðisflokksins.
Á fundinum mun Ingimar Guðmundsson, oddviti D-listans og verðandi bæjarstjóri í Hveragerði, kynna málefnasamning vegna myndunar nýs meirihluta í Hveragerði.
Beðist er velvirðingar á stuttum fyrirvara sem eðli máls samkvæmt reyndist óhjákvæmilegur.
Stjórn Sjálfstæðisfélags Hveragerðis.
28/05/2026
Nýr meirihluti í Hveragerði
Nýr meirihluti hefur verið myndaður í Hveragerði þar sem D-listinn og S-listinn hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf á komandi kjörtímabili.
Mikill samhljómur var á meðal framboðanna í aðdraganda kosninga og mátti finna margar sameiginlegar áherslur í stefnumálum þeirra. Þessi samhljómur skapaði sterkan grundvöll fyrir samstarfi. Viðræður D-listans og S-listans hafa verið góðar og einkennst af trausti, málefnum og sameiginlegum vilja til að vinna af ábyrgð fyrir Hveragerði á komandi kjörtímabili.
Ingimar Guðmundsson verður bæjarstjóri
Ingimar Guðmundsson, oddviti og bæjarstjóraefni D-listans, verður næsti bæjarstjóri Hveragerðisbæjar. Þá mun Birgitta Ragnarsdóttir, oddviti S-listans, verða formaður bæjarráðs og María Rún Þorsteinsdóttir, 2. sæti D-listans, verða forseti bæjarstjórnar.
„Mér þykir einstaklega vænt um Hveragerði. Hér ólst ég upp og hér líður mér best,“ segir Ingimar Guðmundsson, verðandi bæjarstjóri Hveragerðis. „Það er mikill heiður að fá að starfa í þágu Hvergerðinga. Við erum metnaðarfull, höfum skýra sýn og er ég, ásamt þessu frábæra fólki á D-listanum og S-listanum, tilbúinn að leiða Hveragerði inn í framtíðina.“
Ábyrgð – Bæjarbragur – Lífsgæði
Framboðin hafa gert með sér málefnasamning undir yfirskriftinni Ábyrgð – Bæjarbragur – Lífsgæði. Þar kemur meðal annars fram að markmið samstarfsins sé að sameina áherslur um ábyrga fjármálastjórn, vandaða stjórnsýslu, sterka þjónustu við íbúa, verndun bæjarbrags, öfluga lýðheilsu, græn svæði og fjölbreytt samfélagslíf.
„Viðræðurnar voru mjög góðar, uppbyggilegar og lausnamiðaðar frá fyrsta degi. Það kom mér skemmtilega á óvart hversu mikill samhljómur var í stóru málunum,“ segir Birgitta Ragnarsdóttir, oddviti S-listans og verðandi formaður bæjarráðs. „Við deilum sameiginlegri sýn um ábyrga stjórnsýslu, sterka þjónustu og metnaðarfulla framtíð fyrir Hveragerði. Ég hlakka til þess að fá að vinna með þessum öfluga hópi að áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins okkar.”
Í málefnasamningnum eru tilgreind nokkur verkefni sem verða sett sérstaklega í forgang. Þar má meðal annars nefna að aðalskipulag verði endurskoðað með aðkomu íbúa, hugað verði að því að nýr gervigrasvöllur verði nothæfur yfir vetrartímann og að sett verði upp stöðuyfirlit yfir kostnaðarsöm verkefni og stærri framkvæmdir sem bærinn stendur frammi fyrir.
Málefnasamninginn má sjá hér: https://www.blahver.is/malefnasamningur-2026-2030
28/05/2026
Ekki láta þig vanta á síðasta laugardagskaffi vetrarins.
21/05/2026
Það verður gríðarlega áhugavert erindi í laugardagskaffinu þegar Erna Bjarnadóttir fræðir okkur um ESB.
Verið velkomin.
20/05/2026
D-listinn og S-listinn hefja formlegar meirihlutaviðræður.
D-listinn og S-listinn hafa komist að samkomulagi um að hefja formlegar viðræður um myndun meirihluta í bæjarstjórn Hveragerðis.
Niðurstaða kosninganna sýnir skýrt ákall kjósenda um breytingar, ný vinnubrögð og ábyrga forystu í þeim verkefnum sem fram undan eru. D-listinn hlaut 43,9% fylgi, 869 atkvæði og bætti við sig manni. S-listinn hlaut 12,9% fylgi, 256 atkvæði og náði inn fulltrúa í bæjarstjórn eftir að hafa boðið fram á ný eftir margra ára fjarveru. Samanstanda því 1.125 atkvæði (56,8%) að baki listunum tveimur.
Í samtölum fulltrúa listanna hefur komið skýrt fram að í mörgum mikilvægum málaflokkum eru áherslur þeirra samhljóða og víða má finna sameiginlega sýn á framtíð og uppbyggingu bæjarfélagsins. Báðir listar leggja áherslu á vandaða stjórnsýslu, betri upplýsingagjöf og samstarf við íbúa og félög, ábyrga meðferð fjármuna, fjölskylduvænt samfélag, bætta þjónustu og uppbyggingu sem tekur mið af sérstöðu og bæjarbrag Hveragerðis.
Viðræðurnar munu fara fram af ábyrgð og með það að markmiði að kanna hvort unnt sé að mynda farsælan og málefnalegan meirihluta í bæjarstjórn sem geti aukið traust meðal íbúa, svarað ákalli um breytingar og öfluga forystu í stjórnun bæjarfélagsins.
Við viljum gera góðan bæ betri.
Við viljum starfa af ábyrgð fyrir betri lífsgæði
19/05/2026
Ingimar Guðmundsson, oddviti D-listans, ræddi við mbl um kosningabaráttuna og úrslitin.
„Við erum einstaklega stolt og ánægð með kosningabaráttuna okkar,“
Ákall kjósenda um breytingar
„Við erum einstaklega stolt og ánægð með kosningabaráttuna okkar,“ segir Ingimar Guðmundsson, oddviti sjálfstæðismanna í Hveragerði, en flokkur hans fékk 43,9% fylgi, þrjá menn kjörna og bættu við sig einum manni.
17/05/2026
Takk! Takk! Takk!
43,9% er frábær árangur og skýrt ákall Hvergerðinga um að D-listinn leiði næstu 4 árin.
Við í D-listanum göngum stolt frá kosningabaráttunni enda einbeittum við okkur að því að tala einungis um málefnin, núverandi stöðu bæjarins og framtíðina. Framboðið byggði á skýrri sýn sem við fylgdum í hvívetna og það er þessi sýn sem skilar okkur á D-listanum svo góðum árangri.
Árangur sem þessi næst ekki af sjálfu sér. Við erum einstaklega þakklát öllum þeim sem komu að baráttunni með okkur á einn eða annan hátt. Öllum þeim sem kusu okkur og öllum þeim fjölmörgu Hvergerðingum sem treysta okkur til að leiða Hveragerði.
Kosningar eru eitt en nú hefst vinnan. Það eru fjölmargar áskoranir og krefjandi verkefni framundan, en við erum tilbúin til þess að vinna að þeim af ábyrgð til að tryggja Hvergerðingum betri lífsgæði.
Frambjóðendur D-listans