22/03/2026
Öflug helgi hjá okkar fólki. Tveir félagar fóru á Akureyri á snjóflóðanámskeið þar sem mikið var pælt í snjóalögum, snjóflóðagryfjur mokaðar og leit í snjóflóðum æfð. Aðrir tveir félagar tóku fagnámskeið í ferðamennsku og rötun, sem meðal annars fól í sér gönguskíðaferð og gistingu í tjaldi í fjallasölum Skagafjarðar. Frábær helgi í alla staði, í allskonar veðri og með frábærum félögum úr öðrum björgunarsveitum 😃
31/12/2025
Takk kærlega fyrir frábæran stuðning með flugeldakaupunum í ár, við erum í skýjunum! Það verður flugeldasýningin okkar líka, en kveikt verður upp í brennunni kl 20:30 og sýningin hefst svo um 21 eða svo. Sjsáumst þar og gleðilegt nýtt ár!! 🥳
30/12/2025
⚠️Innköllun á rakettupakka 2!⚠️
30/12/2025
Ef þið hafið verslað þetta þá alls ekki skjóta því upp en komið með það til okkar og fáið annað í staðinn.
INNKÖLLUN Á "RAKETTUPAKKA 2" VEGNA GALLA!
Slysavarnafélaginu Landsbjörg bárust í kvöld, þriðjudagskvöld, ábendingar um að galli væri í einhverjum rakettum sem seldar hafa verið í Rakettupakka 2.
Við prófun kom í ljós að einhverjar þeirra sprungu of snemma.
Því hefur verið tekin sú ákvörðun um að taka Rakettupakka 2 úr sölu og kalla inn þá pakka sem hafa verið seldir.
Þau sem hafa keypt Rakettupakka 2 eru hvött til að koma með hann á næsta sölustað og skipta honum út fyrir aðra vöru.
Hægt verður að skipta út pakkanum á gamlársdag, þar til sölustaðir loka, sem og á opnunartíma fyrir þrettándann.
Slysavarnafélaginu Landsbjörg þykir miður að viðskiptavinir verði fyrir óþægindum vegna þessa, en öryggi okkar allra þarf alltaf að vera í fyrirrúmi.
30/12/2025
Sumir stórir neyðarkallar eru miklir partýpinnar og kíkja í áramótapartý 🎉 takk kærlega fyrir stuðninginn og Tjaldsvæðið í Hveragerði og gleðilegt nýtt ár!
29/12/2025
Ef þið viljið styrkja okkur og um leið taka þátt í að efla skógrækt landsins, minnum við á þetta flotta verkefni 🌱