Hveragerði

Hveragerði

Share

Hveragerði ~ Blómstrandi bær Þorpsmyndun hófst í Hveragerði árið 1929, Hveragerðishreppur var stofnaður 1946 og varð bæjarfélag 1987. Þann 1.

janúar 2024 voru íbúar Hveragerðis 3265 talsins.

Photos from Hveragerði's post 11/06/2026

Kvenfélag Hveragerðis gaf bænum góða afmælisgjöf.

Ingimar Guðmundsson bæjarstjóri tók formlega við góðri gjöf frá Kvenfélagi Hveragerðis í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar. Gjöfin er útibekkur með blómaskreyttu byggðarmerki bæjarins fyrir ofan. Bekkurinn er staðsettur í Lystigarðinn Fossflöt og er kjörið að nýta hann í skemmtilegar og blómlegar myndatökur, eða bara til að slaka á og njóta.

Nánari upplýsingar í hlekk í ummælum hér fyrir neðan.

10/06/2026

8 metra afmæliskaka og sundlaugarsprell á 17. júní í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar.

Dagskráin er klár fyrir 17. júní 2026 í Hveragerði. Hátíðardagskráin í Lystigarðinum verður með hefðbundnu sniði en í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar í ár þá verða ákveðnir viðburðir að auki þetta árið.

Opnuð verður ný sýning um sögu sundlaugarinnar í Laugaskarði og þar verður líka Sundlaugarsprell í anda fyrri tíma.

Í lok hátíðardagskrár í Lystigarðinum verður boðið upp á 8 metra afmælisköku og loks verður Handverk og hugvit með skemmtilegan viðburð sem heitir Krummagull en hann verður útskýrður nánar í dagskrá hátíðarinnar.

Nánari upplýsingar í hlekk í ummælum.

🇮🇸🇮🇸🇮🇸

09/06/2026

Ný sýning um sögu sundlaugarinnar í Laugaskarði verður opnuð á 17. júní kl. 10:00.

Sýningin tekur mið af því að segja söguna í stuttu máli, bæði á íslensku og ensku, stutt ljósmyndum sem valdar hafa verið til að ramma söguna inn þannig að bæði íslensku- og enskumælandi gestir geti skoðað sýninguna og náð að skilja söguna á nokkrum mínútum.

Sýningin er sett upp í tilefni 80 ára afmælis bæjarins og mun vera stöðug sýning á neðri hæð sundlaugarbyggingarinnar. Ljósmyndirnar á sýningunni eru eftir ýmsa höfunda en sýninguna hannaði Guðrún Arndís Tryggvadóttir.

Photos from Veðurstofa Íslands's post 02/06/2026

Veðurstofan fjallar hér um skjálftahrinuna sem nú stendur yfir í Henglinum.

Starfsfólk Hveragerðisbæjar er í góðum og stöðugum samskiptum við Almannavarnir og sérfræðinga Veðurstofu Íslands vegna náttúruvár. Ekki er tilefni til sérstakra viðbragða vegna stöðunnar að svo stöddu.

Upplýsingum verður komið til almennings eftir þörfum og mun Veðurstofan gefa út nánari upplýsingar um alla atburði s.s. jarðskjálfta, á sínum samfélagsmiðlum. Þar geta áhugasamir fylgst með þróun mála.

Veðurstofa Íslands vinnur nú að nánari greiningu á gögnum um jarðskjálftahrinuna og gefur út frekari upplýsingar um hana á næstu dögum.

22/05/2026

Bæjarhátíðin Blómstrandi dagar er komin á Instagram (blomstrandidagar) - sjá hlekk í ummælum hér fyrir neðan.

Einnig er Hveragerðisbær á Instagram (hveragerdi.is) - einnig í hlekk hér fyrir neðan.

Fylgist með á Instagram. 📸

22/05/2026

Í sumar verður settur upp minninga- og söguveggur á bókasafninu í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar.

Átt þú skemmtilega bernskuminningu, sögur af fólki sem setti svip sinn á samfélagið eða stutta frásögn tengda Hveragerði sem þú ert til í að deila?

Endilega takið þátt og sendið inn skemmtilegar sögur og frásagnir. Nánari upplýsingar í hlekk í ummælum. 👇

21/05/2026

Nú styttist í þjóðhátíðardaginn okkar, 17. júní.

Líkt og síðustu tvö ár þá verður Varmahlíðarhúsið opið áður en hátíðahöldin hefjast fyrir þau sem klæðast þjóðbúningi. Þar er hægt að hjálpast að með skotthúfur og fleira sem fylgir búningunum. Það er því tæpur mánuður til stefnu til að fægja silfrið og gera búninginn kláran fyrir þjóðhátíðina. 🇮🇸

Want your business to be the top-listed Government Service in Hveragerdi?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Breiðamörk 20
Hveragerdi
810

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 15:00