17/05/2026
Kæru Hvergerðingar.
Við í Okkar Hveragerði viljum þakka hjartanlega fyrir alla hvatninguna, stuðninginn, samtölin og traustið í þessari kosningabaráttu.
Við finnum fyrir því að fólk lætur sig samfélagið varða og það er ómetanlegt.
Við tökum næstu skref af auðmýkt, ábyrgð og vilja til að hlusta á íbúa. Hver sem framvindan verður munum við leggja okkur fram um að vinna af heilindum fyrir Hveragerði og íbúa bæjarins.
Takk fyrir traustið, hlýjuna og þátttökuna.
16/05/2026
Það sem skiptir mestu máli núna og í framhaldinu er að ekki sé slegið slöku við. Foreldrar, börn og starfsfólk skólans finna öll að þjónustan hefur tekið jákvæðum breytingum og að stuðningurinn skilar árangri. Nú þarf að halda áfram á þeirri braut, efla þjónustuna enn frekar, klára að fylla upp í þörf stöðugildi fagaðila og tryggja að öll börn fái nauðsynlegan stuðning í takt við þeirra þarfir og hann sé veittur á réttum tíma.
Greinina má lesa í heild sinni hér: https://www.visir.is/g/20262884507d/aheyrn-og-arangur-i-skolamalum-i-hveragerdi
16/05/2026
Sendu okkur skilaboð & við skutlum þér á kjörstað - Kjósum með hjartanu 🧡
16/05/2026
Á kjörtímabilinu hefur verið unnið að því að festa í sessi rekstrargrundvöll menningar- og viðburðastarfsemi með beinum samstarfssamningum sem stuðningur bæjarins við verkefni til lengri tíma og það er mikilvægt að þeirri vegferð verði haldið áfram inn í komandi ár.
Lifandi menning og listir í skáldabænum Hveragerði
Hveragerði er ekki aðeins þekkt fyrir yl, gróður og náttúrufegurð heldur einnig fyrir öflugt menningarlíf. Í litlu samfélagi hefur skapast einstakur jarðvegur fyrir listir, tónlist og samveru þar s…
16/05/2026
KJÖRDAGUR - Kjósum með hjartanu 🧡
15/05/2026
"Nú þegar mínu fyrsta og eina tímabili í bæjarstjórn Hveragerðis er að ljúka vil ég þakka íbúum Hveragerðis fyrir það ómetanlega traust sem mér og Okkar Hveragerði var sýnt í síðustu kosningum. Þessi tími hefur verið skemmtilegur og lærdómsríkur, þar sem óteljandi verkefni hafa mótað mig sem manneskju og kennt mér mikilvægar lexíur."
Greinina má lesa í heild sinni hér: https://www.dfs.is/frettir/kosningar/thakklaeti-og-audmykt-vid-leidarlok/