Rangárþing eystra

Rangárþing eystra

Share

Rangárþing eystra hefur uppá margt að bjóða. Við ætlum að halda ykkur upplýstum og koma því á framfæri

18/06/2026

Í tilefni sumarsólstöðu bjóða listamennirnir Lemos + Lehmann til notalegrar morgunstundar í Tumastaðaskógi, sunnudaginn 21.júní kl. 11:00.

Þar opna þau verkefnið „Finndu þína eigin á“, sem samanstendur af þremur tímabundnum innsetningum sem gerðar voru sérstaklega fyrir skóginn. Að opnun lokinni er fólki á öllum aldri boðið að eiga góða samveru úti í náttúrunni. Gengið verður um, hlustað og umhverfið skoðað í sameiningu.

Allir hjartanlega velkomnir!
Verkefnið er styrkt af Menningarsjóði Rangárþings eystra.
Slóð á Facebook viðburð: https://fb.me/e/cBCZewsQy

To celebrate the summer solstice, local artists Lemos + Lehmann invite you to a gentle morning gathering in Tumastaðir Forest on [DATE] at [TIME].

They will present "Find Your Own River," featuring three temporary installations created specially for the forest. Following the opening, visitors of all ages are welcome to join a shared walk to explore, listen, and enjoy nature together.

Everyone is welcome!
Supported by the Cultural Fund of Rangárþing eystra.
Facebook event: https://fb.me/e/cBCZewsQy

Bætt íþróttaaðstaða: Nýtt gras á gervigrasvöllinn og stærri frisbígolfvöllur 18/06/2026

Gervigrasvöllurinn við Hvolsskóla hefur fengið glænýtt og glæsilegt gras! Völlurinn okkar er gríðarlega mikið notaður af upprennandi fótboltastjörnum – og hver veit nema við sjáum einhverja af þessum duglegu krökkum á HM í framtíðinni! 🇮🇸 (Takk fyrir vel unnið verk, Altís!)

En það er ekki allt... Við höfum einnig stækkað frisbígolfvöllinn okkar úr 9 körfum í 18! 🌳 Völlurinn er nú sá tíundi á landinu sem státar af 18 holum, sem er mikið fagnaðarefni fyrir alla áhugamenn um íþróttina.

Við hvetjum alla til að kíkja út, hreyfa sig og njóta þessarar frábæru viðbótar við útivistaraðstöðuna í sveitarfélaginu okkar. ☀️

Lestu nánar um málið á heimasíðunni okkar: https://www.hvolsvollur.is/is/frettir/baett-ithrottaadstada-nytt-gras-a-gervigrasvollinn-og-staerri-frisbigolfvollur

Bætt íþróttaaðstaða: Nýtt gras á gervigrasvöllinn og stærri frisbígolfvöllur Gervigrasvöllurinn við Hvolsskóla hefur nú fengið nýtt gras. Fyrirtækið Altís sá um verkið og uppsetningu á vellinum.

16/06/2026

Rangárþing eystra auglýsir lausan til umsóknar skólaakstur við Hvolsskóla. Skv. núverandi fyrirkomulagi er um að ræða akstursleið í Landeyjum. Akstursleiðir geta þó verið breytilegar eftir notkun og þörf hverju sinni. Skólabílstjóri þarf að hafa öll tilskilin réttindi til aksturs farþega og bifreið sem notuð verður skal vera í fullkomnu ástandi. Viðkomandi þarf að vera reglusamur, stundvís og þjónustulipur og hann þarf að hafa hreint sakavottorð. Umsóknir þurfa að berast á skrifstofu Rangárþings eystra í síðasta lagi 6. júlí 2026.Nánari upplýsingar veitir Birna Sigurðardóttir, skólastjóri í síma 488-4240, [email protected] eða Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri í síma 488-4200, [email protected]

15/06/2026

17.júní hátíðarhöld verða haldin í Goðalandi í Fljótshlíð kl 15:00. Fullt af skemmtilegum atriðum og kökuhlaðborð kvenfélagsins svíkur engan!

12/06/2026

Mánudaginn 15. júní fer jarðarför Bergs Ottós Thomsen Kárasonar fram frá Skálholtskirkju. Að athöfn lokinni verður Bergur Ottó jarðsettur í nýja kirkjugarðinum á Hvolsvelli kl. 16:00. Andlát Bergs Ottós hefur markað djúp spor á samfélagið okkar allt. Okkur langar að koma saman og sýna fjölskyldu Bergs Ottós samstöðu og styrk og taka utan um hvert annað með því að mynda heiðursvörð frá gamla leikskólanum að afleggjaranum að Hallgerðartúni. Áætlað er að koma saman um kl. 15:30 við gamla leikskólann.

12/06/2026

Þær gleðifréttir bárust í gær að Védís Ösp Einarsdóttir hefur verið valin í lokahóp undir 19 ára landsliðs Íslands fyrir Evrópumeistaramótið í Bosníu sem hefst í lok júní. Rangárþing eystra sendir hamingjuóskir til Védísar og baráttukveðjur til íslenska landsliðsins. ÁFRAM ÍSLAND 🇮🇸

Halldór Jón Sigurðsson, landsliðsþjáfari U19 kvenna, hefur valið hóp sem tekur þátt í lokakeppni EM 2026.

Mótið fer fram í Bosníu og Hersegóvínu dagana 25. júní - 10. júlí og er Ísland þar í riðli með Austurríki, Spáni og Sviss.

Want your business to be the top-listed Government Service in Hvolsvöllur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Austurvegi 4
Hvolsvöllur
860

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 13:00