24/03/2022
Rafíþróttamót Samfés og ELKO verður haldið 8-9. apríl í íþróttahúsinu Digranesi í Kópavogi. Þessi rafíþróttaviðburður er fyrir ungt fólk á aldrinum 13 til 25 ára.
Þátttakendur geta skráð sig, spilað og eða tekið þátt á móti í CS:GO, Fortnite, Rocket League, Valorant, FIFA og League of Legends.
Ungmenni úr félagsmiðstöðinni Kjarnanum verða með VR leikjakynning og mögulega verður sett upp mót. Þeir sem vilja vera með í þessu geta komið með eigin VR búnað (sýndarveruleikagleraugu).
Axel Edison tekur við skráningum í Tvistinum og einnig má senda skráningu á netfangið [email protected]
Skráningu þarf að ljúka fyrir fimmtudaginn 31. mars

23/03/2022
16/03/2022
10/02/2022