Héraðsbókasafn Rangæinga

Héraðsbókasafn Rangæinga

Share

Lestur er sálinni það sem hreyfing er líkamanum Afgreiðslutími
Sumar
1. september - 31.

júní - 31. ágúst
mánudagar kl. 15.00 - 20.00
þriðjudagar - fimmtudagar kl. 15.- 18.00

Vetur
1. maí
mánudagar kl. 13.00 - 20.00
þriðjudagar - fimmtudagar kl. 13.00 - 18.00
föstudagar kl. 10.00 - 13.00

bókasafnið er opið frá kl 8.00 á skólatíma fyrir Hvolsskóla til lokunar safnsins

11/06/2026
09/06/2026

Í tilefni af lestrarspretti Gúnda geithafurs ætlar Gunni Helga að heimækja Héraðsbókasafn Rangæinga og lesa upp úr einni af sínum eldri bókum og einn kafla úr bókinni sem hann er að skrifa núna (sem við verðum þá fyrst í heimi til að heyra).
Gunni vill gjarnan fá tillögur að bók til að lesa uppúr
Tveir heppnir gestir fá bókagjöf
Öll velkomin :)
Viðburðurinn er í boði sumarlestur.is og styrktur af bókasafnssjóði

08/06/2026

Gunni Helga kemur á bókasafnið okkar allra!
Hvaða kafla úr hvaða bók langar þig að heyra hann lesa?

05/06/2026

Takið frá fimmtudaginn 11. júní kl. 11:00
Í tilefni af lestrarspretti Gúnda geithafurs ætlar Gunni Helga að heimækja Héraðsbókasafn Rangæinga og lesa upp úr einni af sínum eldri bókum og einn kafla úr bókinni sem hann er að skrifa núna (sem við verðum þá fyrst í heimi til að heyra).
Viðburðurinn er í boði sumarlestur.is og styrktur af bókasafnssjóði.
Gunni vill gjarnan að þið setjið í athugasemdir hvaða kafla úr hvaða bók ykkur langar að heyra hann lesa :)

Photos from Héraðsbókasafn Rangæinga's post 01/06/2026

Minnum á að í þessari viku er hægt að skrá sig í Lestrarsprettinn.
Við stefnum á að fá Gunna Helga í heimsókn í sumar :)
Allir krakkar sem voru að klára 1. - 4.bekk mega taka þátt :)
Hlökkum til að sjá ykkur á bókasafninu okkar allra :)

29/05/2026

Kæru útskriftarnemendur í 10. bekk,
Nú þegar grunnskólagöngu ykkar lýkur viljum við á bókasafninu óska ykkur innilega til hamingju með áfangann. Það er stór stund að útskrifast úr grunnskóla og spennandi tímar fram undan.
Við viljum jafnframt þakka ykkur fyrir samstarfið og samskiptin á liðnum árum. Það hefur verið ánægjulegt að fylgjast með ykkur vaxa og þroskast – bæði sem lesendur og einstaklingar.
Áður en þið haldið út í sumarið og ný ævintýri viljum við minna á að skila öllum bókum og öðrum safngögnum sem kunna enn að vera í ykkar fórum. Þannig hjálpumst við öll að við að halda safninu í góðu standi.
Við viljum líka minna ykkur á að bókasöfn eru ekki bara frábær staður fyrir námið - Þau eru frábær staður til að vera á. Þið hafið áfram ókeypis aðgang að öllum almenningsbókasöfnum landsins til 18 ára aldurs – og auðvitað eruð þið alltaf hjartanlega velkomin á Héraðsbókasafn Rangæinga.
Við óskum ykkur alls hins besta í framtíðinni, hvort sem leiðin liggur í framhaldsskóla, vinnu, ferðalög eða eitthvað allt annað spennandi. Megi forvitnin fylgja ykkur áfram og góð bók rata reglulega í hendurnar á ykkur.
Með bestu kveðjum,
Anna, Elísa og Elísabet
Ljósmynd: Þórunn Óskarsdóttir

Photos from Héraðsbókasafn Rangæinga's post 26/05/2026

Íslandsmót barna í myndasögum 🤩
Hér á bókasafninu okkar allra er hægt að fá nánari upplýsingar og aðstoð við skráningu og skil 🙋‍♀️

Want your business to be the top-listed Government Service in Hvolsvöllur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Vallarbraut 16
Hvolsvöllur
860

Opening Hours

Monday 13:00 - 20:00
Tuesday 13:00 - 18:00
Wednesday 13:00 - 18:00
Thursday 13:00 - 18:00
Friday 10:00 - 13:00