17/06/2026
🇮🇸 Gleðilega þjóðhátíð kæru landsmenn til sjávar og sveita!
💚 Nú sýna landverðir frá friðlýstum svæðum og þjóðgörðum á samfélagsmiðlum í sögum - við mælum með að fylgjast með til að fá innsýn í verndarstarfið og sérkenni svæðanna.
16/06/2026
💚 Opinn fundur um framtíðaruppbyggingu við Jökulsárlón
Náttúruverndarstofnun, í samstarfi við Umhverfis-, orku-og loftslagsráðuneytið og Sveitarfélagið Hornafjörð, boðar opinn fund um málefni framtíðaruppbyggingar við Jökulsárlón, þann 24. júní n.k..
📅Nánari upplýsingar má finna í viðburði: https://fb.me/e/4MHZcEUfS
Frétt á heimasíðu 👇
https://www.nattura.is/stofnunin/opinn-fundur-um-framtidaruppbyggingu-vid-jokulsarlon
15/06/2026
💚 Náttúran kallar!
🦊 Í dag hefst fræðsludagskrá víða um land á friðlýstum svæðum og í þjóðgörðum. Með sumrinu færist hún einnig upp á hálendið og nær framboðið hámarki í júlí.
🌼 Landverðir bjóða upp á fjölbreytta dagskrá frá fjöru til fjalla. Fræðslugöngur, viðburðir, fjölskyldustundir og jafnvel kaffi og kleinur á sérstökum tyllidögum!
🐚 Fræðslan er tilvalin fyrir öll þau sem vilja kynnast svæðunum nánar og fá innsýn í sérstöðu þeirra og verndargildi.
🏡 Við hvetjum einnig ferðafólk að kíkja við í gestastofunum þar sem starfsfólk er boðið og búið að gefa góð ferðaráð og upplýsingar.
🍄🟫 Skráning í göngur og aðra fræðslu er óþörf og gestum að kostnaðarlausu.
✨ Endilega fylgist með á samfélagsmiðlum en dagskráin mun birtast í heild á vefsíðum okkar í vikunni.
> Náttúra.is
> Vatnajokulsthjodgardur.is
> snaefellsjokull.is
Vatnajökulsþjóðgarður - Vatnajökull National Park
Snæfellsjökulsþjóðgarður - National Park
Skaftafell - Vatnajökulsþjóðgarður
Jökulsárlón - Vatnajökulsþjóðgarður
Snæfellsstofa - Vatnajökulsþjóðgarður
Jökulsárgljúfur - Vatnajökulsþjóðgarður
Gígur - gestastofa
11/06/2026
💚 Laugarás er verndarsvæði vikunnar!
🪨 Jarðminjar svæðisins veita sýn í jarðsögu Reykjavíkur og vernduð svæði í þéttbýli verða sífellt mikilvægari fyrir lýðheilsu, útivist og til að rækta samband fólks við náttúruna.
🏡 Náttúruvættið Laugarás er staðsett efst á Laugarásholti í Langholtshverfi í Reykjavík. Bílastæði er við jaðar svæðisins að sunnanverðu í Vesturbrún. Göngustígur liggur frá bílastæðinu upp að hæsta punkti svæðisins. Við göngustíginn er fræðsluskilti. Frá hæsta punkti svæðisins er útsýni gott til allra átta, yfir borgarlandið, sundin og til fjalla.
🧊 Á svæðinu er að finna grágrýti, ávalar klappir og hnullunga sem talin eru vera um 200 þúsund ára gömul. Jöklar ísaldar mótuðu grágrýtið og má sjá jökulrákir í stærri hnullungunum. Við lok ísaldar hækkaði sjávarborð og var Laugarás þá einn af fáum stöðum sem ekki var neðansjávar, en sjávarstaðan þá var um 45 metrum hærri en hún er nú. Aðeins efsti hluti Laugaráss stóð upp úr þannig að hann var lítið meira en sker. Ummerki um þetta má sjá á stórgrýti nálægt efsta punkti svæðisins sem er sjávarbarið.
🌾 Friðlýsing Laugaráss er ekki bara mikilvæg til verndar jarðminjum, heldur einnig vegna verndunar upprunalegs holtagróðurs í miðju þéttbýli þar sem upprunalegar, einkennandi tegundir eru ríkjandi og mynda sérstök samfélög sem eru nokkuð tegunda auðug. Áður fyrr var þessi holtagróður ríkjandi á svæðinu, en hann á nú undir högg að sækja vegna lúpínu og trjágróðurs sem herjar á.
🦋 Ýmsir fuglar halda til á svæðinu, s.s. stari, svartþröstur og auðnutittlingur. Flugur og fiðrildi eru mest áberandi af skordýrum, einkum hunangsflugur, geitungar, birki- og víðifetar og ýmsar tvívængjur. Innan um gróðurinn er nokkuð um hattsveppi.
🛡️Laugarás var friðlýstur sem náttúruvætti árið 1982 og er svæðið í umsjón Reykjavíkurborgar. Náttúruvætti eru náttúrumyndanir sem mikilvægt er að varðveita sakir fræðilegs gildis, fegurðar eða sérkenna. Markmiðið með friðlýsingu Laugaráss er verndun fágætra jarðminja svæðisins og vilji til að halda opnu svæði þar sem unnt væri að skoða þær merku jarðminjar sem eru á svæðinu.
10/06/2026
📸 Í ljósi umræðu um drónareglur á friðlýstum svæðum í umsjón Náttúruverndarstofnunar vill stofnunin koma eftirfarandi á framfæri.
Stofnunin tekur undir mikilvægi hlutverks atvinnuljósmyndara og annars fagfólks sem miðlar íslenskri náttúru til almennings hérlendis sem erlendis.
Náttúruverndarstofnun hefur fengið réttmætar ábendingar um að upplýsingar á heimasíðunni hafi ekki verið fullnægjandi og hafa upplýsingarnar verið uppfærðar í fyrri frétt og einnig á upplýsingasíðu um drónaflug hér.
Rétt er að taka fram að meginmarkmiðið með breyttri framkvæmd var að draga úr umferð dróna í afþreyingarskyni sem hefur aukist undanfarin misseri. Stofnunin áréttar að sem fyrr geta ljósmyndarar sótt um leyfi til notkunar dróna á tilteknum friðlýstum svæðum að uppfylltum skilyrðum. Mikilvægt er við þessa framkvæmd að finna jafnvægi milli umferðar, náttúruupplifunar og náttúruverndar.
Stofnunin mun á næstu dögum funda með félagi atvinnuljósmyndara til að ræða nánari framkvæmd drónaljósmyndunar.
Leiðrétting í ljósi umræðu um drónaflug á friðlýstum svæðum
Náttúruverndarstofnunar vill koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri.
09/06/2026
🌊 Náttúran í næsta nágrenni á Sjómannadaginn 2026!
⚓️ Náttúruverndarstofnun tók þátt í hátíðarhöldum Sjómannadagsins á Granda og var með fræðslu á hátíðarsvæðinu.
🤍 Þar tóku fjórir landverðir á móti gestum og sögðu frá langvíunni og lífi hennar í fuglabjörgum við Ísland, sem mörg hver njóta verndar.
✨ Landverðir kynntu einnig friðlýst svæði á höfuðborgarsvæðinu, en það kemur fólki alltaf jafn skemmtilega á óvart hversu mörg og fjölbreytt þau eru.
🐧 Börnin sýndu fræðslunni mikinn áhuga — ekki síst þegar þau fengu að skoða langvíueggin sem voru til sýnis. Langvíu-tattúin slógu líka heldur betur í gegn og greinilegt var að margir komu langt að til að fá eitt slíkt með sér heim!
🩵 Takk kærlega fyrir komuna öll sem lituð við hjá okkur á þessum skemmtilega degi.
05/06/2026
🌊 Náttúran í næsta nágrenni – bjargfuglar, friðlýst svæði og langvíu-tattú!
⚓ Náttúruverndarstofnun verður í einu af hvítu tjöldunum á Sjómannadaginn í Reykjavík frá kl: 11-17 þar sem landverðir taka vel á móti gestum og fræða um friðlýst svæði í grennd við höfuðborgina, sérstaklega þau sem tengjast sjónum og lífríki hans.
🐧 Landverðir verða á staðnum og segja gestum frá fjölbreyttum og frábærum friðlýstum svæðum í grennd við höfuðborgina — mörg hver við sjóinn, þar sem fjörur, vogar, eyjar, hraun og fuglalíf mynda einstaka náttúruupplifun rétt við borgarmörkin. Við kynnumst líka langvíunni, sjófugli sem verpur í stórum og mikilvægum fuglabjörgum á Íslandi.
https://www.sjomannadagurinn.is/is/dagskra/natturuverndarstofnun
Sjómannadagurinn í Reykjavík
Náttúruverndarstofnun | Sjómannadagurinn
Dagur íslenskra sjómanna
28/05/2026
💚Öryggi gesta í fyrirrúmi - breytt aðgengi að Dettifossi vestan ár
Í kjölfar mikilla rigninga í byrjun sumars árið 2025 féll bergskriða við Dettifoss. Víða komu sprungur í ljós á gljúfurbarmi og í kjölfarið var svæðinu við Fosshvamm lokað í öryggisskyni á meðan frekari athuganir fóru fram.
Öryggi gesta í fyrirrúmi - breytt aðgengi að Dettifossi vestan ár - Vatnajökulsþjóðgarður
Öryggi gesta í fyrirrúmi - breytt aðgengi að Dettifossi vestan ár28. maí 2026Dettifoss / Guðmundur ÖgmundssonÍ kjölfar mikilla rigninga í byrjun sumars árið 2025 féll bergskriða við Dettifoss. Víða komu sprungur í ljós á gljúfurbarmi og í kjölfarið var svæðinu við Fosshv...