Jökulsárgljúfur - Vatnajökulsþjóðgarður

Jökulsárgljúfur - Vatnajökulsþjóðgarður

Share

Þjóðgarður síðan 1973, hluti af Vatnajökulsþjóðgarði síðan 2008. / A National Park since 1973, a part of Vatnajökull National Park since 2008

22/05/2026

Öryggi gesta í fyrirrúmi - breytt aðgengi að Dettifossi vestan ár

Í kjölfar mikilla rigninga í byrjun sumars árið 2025 féll bergskriða við Dettifoss. Víða komu sprungur í ljós á gljúfurbarmi og í kjölfarið var svæðinu við Fosshvamm lokað í öryggisskyni á meðan frekari athuganir fóru fram. Við rannsóknir sérfræðinga á svæðinu kom í ljós að víðfeðmt sprungunet leynist víða undir jarðveginum og sprungur gera engan greinarmun á göngustígum, útsýnispöllum eða klettum.

Ljóst er að veðrun er mikil á svæðinu, hvort sem það er í formi fossúðans, sem baðar nærsvæði fossins upp úr vatni hvern dag eða árviss átök frosts og þýðu þegar veturinn færist yfir. Það er í eðli gljúfra að vera í sífelldri mótun, bæði berghrun og sprungumyndun mála iðnar nýjar myndir í landslagið. Jökulsárgljúfur eru þar engin undantekning, þetta er svæði þar sem náttúran ein ræður ríkjum.

Líf okkar mannfólksins er einnig breytingum háð og við þurfum að aðlaga okkur að náttúrunni og breyttum aðstæðum. Ljóst er að Fosshvammurinn er ekki öruggt svæði lengur og þjóðgarðsvörður verður að grípa til viðeigandi aðgerða til að tryggja öryggi gesta á svæðinu til framtíðar. Því hefur verið tekin sú ákvörðun að Fosshvamminum verði varanlega lokað fyrir allri umferð.

Strax í sumar verða innviðir fjarlægðir af sprungusvæðinu í Fosshvammi og gönguleiðir verða færðar með tilliti til þessara breytinga. Áfram verður unnið að frekari uppbygginu göngupalla norðan við fossinn, þar sem gert verður ráð fyrir hringleið.
Unnið verður að endurheimt vistkerfa í Fosshvammi, sem leiða mun til bættrar gæðaupplifunar gesta með fallegri ásýnd að fossinum.

Skýrt er að aðgengi að Dettifossi mun breytast frá því sem áður var en útsýnið að honum verður áfram til staðar. Hinn forni vinur mun áfram syngja sinn söng og heilla hvern þann sem ber hann augum.

11/05/2026

Tímabundin lokun gönguleiðar upp á Eyjuna í Ásbyrgi

Vegna framkvæmda við nýjan stiga upp á Eyjuna í Ásbyrgi er gönguleiðin þangað (Á2) tímabundið lokuð. Ef fólk vill njóta útsýnis yfir byrgið bendum við á gönguleiðina upp á Klappir (Á7). Sú gönguleið er töluvert lengri en upp á Eyjuna (um 9 km fram og til baka frá Gljúfrastofu) - en það er alltaf hægt að ganga áleiðis og snúa við þegar hentar en fá samt sem áður gott útsýni yfir byrgið.
Þökkum tillistsemina!

The hiking trail on top of Eyjan in Ásbyrgi is temporarily closed

Due to constructions on a new staircase on top of Eyjan in Ásbyrgi, the hiking trail (Á2) is temporarily closed. If people want to enjoy the view of Ásbyrgi canyon, we suggest the hiking trail up to Klappir (Á7). That hiking trail is considerably longer than up to Eyjan (about 9 km there-and-back from Gljúfrastofa) - but you can always walk a part of it and turn around when it suits you and still get a good view of the canyon.
Thank you for your consideration!

Photos from Jökulsárgljúfur - Vatnajökulsþjóðgarður's post 08/05/2026

Aðstæður á stígum við Dettifoss eru breytilegar dag frá degi nú í vortíðinni. Töluvert er af snjó á svæðinu sem þjappast við umgang vorgesta og myndar hálku á stígum. Með hlýnandi veðri má reikna með að töluverð bleyta verði á svæðinu. Landverðir bregðast við daglega með því að sanda stíga, brúa skurði og læki, moka af grjóti svo þau séu sýnilegri, og fleira. Við biðjum gesti um að sýna varhug við þessar síbreytilegu aðstæður og vera vel búin.

Við minnum á opnunartíma Gljúfrastofu 10-17 daglega, endilega hafið samband við landverði þar í síma 470-7109 ef spurningar vakna varðandi aðstæður á svæðinu.

Conditions on the trails at Dettifoss are changing from day to day this spring. There is a lot of snow in the area, which is compacted by the traffic of visitors and makes the trails slippery. With the warming weather, it can be expected that the area will be quite wet. Rangers are responding daily by sanding trails, bridging ditches and streams, shoveling rocks so that they are more visible, and more. We ask visitors to be careful in these ever-changing conditions and to be well prepared.

We remind you that the opening hours of the Gljúfrastofa are 10-17 daily, please contact the rangers there at 470-7109 if you have any question about conditions in the area.

Photos from Jökulsárgljúfur - Vatnajökulsþjóðgarður's post 21/04/2026

Snjór og krap er á göngustígum að Dettifossi og Selfossi. Í Sanddal er farið um brúað klettabelti vegna vatnavaxta í vorleysingum. Gengið er í átt að Selfossi til að komast á stíg að Dettifossi. stígar eru almennt vel sýnilegir en þess á milli vel merktir rauðum snjóstikum.

Snow and slush on paths to Dettifoss. In a walley on the path to Dettifoss, a rocky belt has been bridged due to spring thawing. From there on, the path will lead you towards Selfoss, to get on a path that leads to Dettifoss. Paths are clearly visible and in between well marked with red poles all the way to Dettifoss.

Laus störf: Jökulsárgljúfur - Vatnajökulsþjóðgarður 10/03/2026

Laus störf: Jökulsárgljúfur - Vatnajökulsþjóðgarður Náttúruverndarstofnun auglýsir starf svæðissérfræðings fyrir Norðausturland sem sinnir einnig starfi aðstoðarþjóðgarðsvarðar í Jökulsárgljúfrum ásamt starfi yfirlandvarðar í Jökulsárgljúfrum í Vatnajökulsþjóðgarði.

Photos from Náttúruverndarstofnun's post 28/01/2026

Sumar með íslenskri náttúru, hér í Jökulsárgljúfrum eða á ótal öðrum náttúruverndarsvæðum á landinu.

22/12/2025

☃️ Starfsfólk Vatnajökulsþjóðgarðs óskar landsmönnum öllum til sjávar og sveita gleðilegrar hátíðar og þökkum fyrir samstarfið á árinu 💚

04/12/2025

Við viljum þakka okkar góðu sveitungum og öðrum jólamarkaðsgestum fyrir einstaklega ljúfa og góða samveru á jólamarkaðnum síðastliðna helgi💚. Ekki má heldur gleyma söluaðilunum sem settu upp sín borð hlaðin fallegum og gómsætum vörum, þau eiga miklar þakkir skyldar🧡. Þátttakan í ár var mjög góð og ánægjulegt að sjá hvað þessi árlegi viðburður hefur fest sig í sessi í aðdraganda jólanna.🎅

Enn er möguleiki á að sækja sér tré í skóginn.🎄
Laugardaginn 20. desember frá klukkan 13-15 verður opið í Gljúfrastofu. Þá verður hægt að greiða fyrir tré, fá lánaða sög og sækja fallegt jólatré. 🪚

26/11/2025

Eyjan, gönguleið lokuð vegna framkvæmda⛔️🧐
Gönguleið upp á Eyju er nú lokuð vegna framkvæmda við nýjan stiga. Sá hluti sem kominn er upp af nýjum stiga getur verið hættulegur, ekki síst núna þegar kominn er snjór og hálka. ☃️
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Um leið hlökkum við til að taka í notkun nýjan og betri stiga. 😃

Eyjan, hiking trail Á2 closed due to construction⛔️🧐
The hiking trail up to Eyjan is currently closed due to construction on a new staircase. The new part can be dangerous, especially now that there is snow and ice.☃️
We apologize for any inconvenience this may cause. At the same time, we look forward to invite our guests to the new and improved staircase. 😃

12/11/2025

🚪 Gljúfrastofa gestastofa verður lokuð 📅 fimmtudaginn 13. og föstudaginn 14. nóvember vegna ferðar starfsfólks á starfsdag Náttúruverndastofnunar. Við biðjumst afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. 😊

🚪 Gljúfrastofa Visitor Center will be closed 📅 on Thursday, November 13th, and Friday, November 14th, for staff training by the Nature Conservation Agency. Thank you for your understanding. 😊

Want your business to be the top-listed Government Service in Kópasker?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Telephone

Address


Ásbyrgi
Kópasker
671