22/04/2026
Takk fyrir að fylgja okkur 🌷
Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Tryggingastofnun, Government Organization, Hlíðasmári 11, Kópavogskaupstaður.
Alltaf opið á vefsíðu okkar og Mínum síðum.
Þjónustumiðstöð Hlíðasmára 11 og símaver opin virka daga kl. 10.00 -15.00
Bókaðu tíma hjá sérfræðingi TR í gegnum Noona: https://noona.is/tryggingastofnun
22/04/2026
Takk fyrir að fylgja okkur 🌷
Opnum kl. 13.00 í dag
Vegna veðurs opnum við þjónustumiðstöðina í Hlíðasmára 11 klukkan 13.00 í dag. Símaverið opnar klukkan 10.00 að vanda. Bendum á tr.is fyrir allar almennar upplýsingar. Minnum líka á Mínar síður.
20/03/2026
Í gær samþykkti Alþingi ný lög 👇
Greiðslur almannatrygginga munu fylgja launavísitölu frá Hagstofu Íslands, í stað þess að byggja á spám um launaþróun frá 1. janúar 2027.
Greiðslur almannatrygginga fylgja launavísitölu frá 1. janúar 2027 | Tryggingastofnun Ný lög voru samþykkt á Alþingi í gær sem fela í sér breytt viðmið við að ákveða árlegar hækkanir almannatrygginga.
19/03/2026
Flottir mottumars strákar í TR
04/03/2026
Efni á auðlesnu máli um örorkulífeyri og sjúkra- endurhæfingargreiðslur hefur verið birt á tr.is og er það í fyrsta sinn sem efni á auðlesnu máli er birt á Ísland.is.
Efnið var unnið af Miðstöð um auðlesið mál til að tryggja að það uppfylli skilyrði um framsetningu.
https://island.is/s/tryggingastofnun/frett/tr-fyrst-ad-birta-efni-a-audlesnu-mali-a-island-is
TR fyrst að birta efni á auðlesnu máli á Ísland.is | Tryggingastofnun Efni á auðlesnu máli um örorkulífeyri og sjúkra- endurhæfingargreiðslur hefur verið birt á tr.is og er það í fyrsta sinn sem efni á auðlesnu máli er birt á Ísland.is.
27/02/2026
Um 19.300 einstaklingar sem voru með réttindi til að fá örorkulífeyri eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur fengu í gær boð um að taka þátt í könnun um húsnæðismál fatlaðra sem Félagsvísindastofnun HÍ gerir fyrir ÖBÍ réttindasamtök.
TR leggur þessu verkefni lið með því að senda boð um þátttöku í könnuninni og viðskiptavinir okkar geti þannig veitt upplýst samþykki um þátttöku. Framkvæmd könnunarinnar og úrvinnsla gagna er í höndum Félagsvísindastofnunar.
Á vef ÖBÍ má sjá nánari upplýsingar um rannsóknina, en sambærileg rannsókn var síðast gerð árið 2022.
Farið verður með öll gögn samkvæmt lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (lög nr. 90/2018).
TR telur mikilvægt að bæta þekkingu á aðstæðum einstaklinga sem fá greiðslur frá TR og hvetur öll sem hafa fengið boð um þátttöku í rannsókninni til að taka þátt.
Boð um þátttöku í könnun á vegum ÖBÍ | Tryggingastofnun Um 19.300 einstaklingar sem voru með réttindi til að fá örorkulífeyri eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslur fengu í gær boð um að taka þátt í könnun um húsnæðismál fatlaðra sem Félagsvísindastofnun HÍ gerir fyrir ÖBÍ réttindasamtök.
26/02/2026
Aldursviðbót ellilífeyris hefur verið greidd til þeirra sem eiga rétt á henni fyrir tímabilið janúar til febrúar 2026 og greiðsluáætlanir hafa verið uppfærðar. Um 1.400 einstaklingar eiga rétt á aldursviðbót ellilífeyris sem er nýjung sem tók gildi 1. janúar síðastliðinn.
Smellið á fréttina til að lesa meira um aldursviðbót ellilífeyris.
Aldursviðbót ellilífeyris greidd í fyrsta sinn | Tryggingastofnun Aldursviðbót ellilífeyris hefur verið greidd til þeirra sem eiga rétt á henni fyrir tímabilið janúar til febrúar 2026 og greiðsluáætlanir hafa verið uppfærðar. Um 1.400 einstaklingar eiga rétt á aldursviðbót ellilífeyris sem er nýjung sem tók gildi 1. janúar síðastliðinn.
25/02/2026
Vekjum athygli á að hægt er að sjá stöðu umsókna inn á Ísland.is. Myndbandið hér fyrir neðan leiðir þig í gegnum það skref fyrir skref ☺️
Skoða stöðu umsóknar um sjúkra og endurhæfingargreiðslur á Mínum síðum Ísland.is This is "Skoða stöðu umsóknar um sjúkra og endurhæfingargreiðslur á Mínum síðum Ísland.is"…
25/02/2026
📍 Á morgun 26. febrúar rennur út umsóknarfrestur um þrjú áhugaverð störf hjá TR
Sjúkraþjálfari á örorkusvið: https://island.is/starfatorg/x-45380
Sérfræðingur á endurhæfingarsviði: https://island.is/starfatorg/x-45414
Sérfræðilæknir á örorkusvið: https://island.is/starfatorg/x-45226
20/02/2026
Tryggingastofnun býður upp á fræðslufund þriðjudaginn 3. mars kl. 16.00 – 18.00 í Hlíðasmára 11 um ellilífeyrismál.
Á fundinum verður farið yfir allt sem snýr að umsóknum um ellilífeyri hjá TR svo sem hvenær og hvernig þú sækir um, hvaða tekjur hafa áhrif á greiðslur, greiðslufyrirkomulag og fleira.
Fræðslufundur 3.mars um hvernig þú sækir um ellilífeyri hjá TR | Tryggingastofnun Tryggingastofnun býður upp á fræðslufund þriðjudaginn 3. mars kl. 16.00 – 18.00 í Hlíðasmára 11 um ellilífeyrismál.
| Monday | 10:00 - 15:00 |
| Tuesday | 10:00 - 15:00 |
| Wednesday | 10:00 - 15:00 |
| Thursday | 10:00 - 15:00 |
| Friday | 10:00 - 15:00 |