Týr

Týr

Share

Týr er félag ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi.

11/01/2025

Aðalfundur Týs verður haldinn mánudaginn 27. janúar klukkan 19:30.
Framboðum til stjórnar skal skila til formanns félagsins, Berglindar Haraldsdóttur á e-mailið [email protected] eigi síðar en 25.janúar klukkan 23:59 með eftirfarandi upplýsingum.
Nafn:
Kt:
Netfang:
Heimilisfang:

Félagsmenn Týs og eru þeir sem hafa rétt til að kjósa og bjóða sig fram til stjórnar.

Vilji félagsmenn leggja fram lagabreytingu þarf tillagan að leggjast fram eigi síðar en 18.janúar klukkan 23:59.

Dagskrá aðalfundar:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar
7. Önnur mál

Photos from Týr's post 27/11/2024

Það var mikið fjör hjá okkur seinasta föstudag á litlu jólum Týs.
Týsarar kunna sko vel að skemmta sér, takk allir sem komu og munum að fara á Laugardaginn og setja X við D 💙🦅

29/09/2022

Viltu taka þátt í landsfundi Sjálfstæðisflokksins? 🦅 Landsfundur fer fram 4. – 6. nóvember í Laugardalshöll!

Flokksráð er sjálfkjörið – athugaðu hér hvort þú ert sjálfkjörinn: www.xd.is/ertu-sjalfkjorinn-a-landsfund/

Ella er hægt að óska eftir setu á landsfundi á xd.is eða með því að hafa samband við formann félags í þínu sveitarfélagi fyrir 1. október.

Óskaðu eftir sæti hér: https://xd.is/landsfundur-2/

07/08/2022

🏳️‍🌈✨💛

Ungir sjálfstæðismenn fjölmenntu í Gleðigönguna í dag með ungliðahreyfingum annarra stjórnmálaflokka þar sem þær sýndu þverpólitíska samstöðu með Hinsegin samfélaginu 🌈

Á þessum degi verðum við að átta okkur á því fyrir hverju er verið að berjast. Í dag er barist fyrir því að fólk fái að lifa lífi sínu í þessu samfélagi eins og það sjálft kýs að lifa því. Fólk fái frelsi til þess að vera það sjálft án þess að nokkur annar hafi eitthvað með það að segja og án þess að vera ógnað á nokkurn hátt fyrir það að vera bara þú. Það er skylda okkar allra að standa vörð um þetta frelsi. Í þessari réttindabaráttu hefur orðið bakslag, sem minnir okkur á hversu auðvelt það er að taka skref aftur á bak. Í þessari baráttu er stöðnun ekki valmöguleiki og til þess að taka skref fram á við verðum við að láta í okkur heyra og styrkja baráttuna og frelsið. Við megum ekki sofna á verðinum og verðum í hvívetna að taka afstöðu með frelsi og mannréttindum. Sjálfstæðisflokkurinn stendur, hefur staðið og mun ávallt standa með mannréttindum og frelsinu. Flokkurinn hefur látið þessi mál sig varða og mun halda því áfram. Einstaklingsfrelsið og að fá sjálf að ráða því hver við erum er grunnstefna Sjálfstæðisflokksins og eitt okkar mikilvægasta málefni.

Höldum baráttunni áfram. Til hamingju með daginn! 💙

Photos from Týr's post 24/07/2022

Myndaveisla frá erindi Jón Daníelssonar, hagfræði prófessor í London School of Economics um sýndarstjórnun.

Þessi viðburður, Friedman Friday var samstarfsviðburður Týs og Students for Liberty á Íslandi 🤝

Want your business to be the top-listed Government Service in Kópavogur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Website

Address


Hlíðarsmári 19
Kópavogur
201