19/12/2025
Umboðsmaður skuldara
Umboðsmaður skuldara skal hafa hagsmuni skuldara og réttindi þeirra að leiðarljósi.
19/12/2025
03/05/2024
Vekjum athygli á umfjöllun Kveiks sem var á dagskrá 23. apríl sl.
Málefni sem mikilvægt er að vekja athugli á.
Þeim hefur fjölgað hjá Umboðsmanni skuldara sem eru með skyndilánaskuldir úr því að vera 59% þeirra sem leita aðstoðar í 79%. Starfsmenn umboðsmanns merkir aukna vanlíðan hjá þeim sem leita eftir hjálp þangað. Einnig hefur þeim fjölgað sem leita til Hjálparstarfs kirkjunnar og geta ekki greitt af skyndilánum.
Föst í hvirfilbyl skyndilána Skyndilánaskuldir eru að sliga stækkandi hóp í samfélaginu. Fólk tekur lán fyrir matvöru, fatnaði og æfingjagjöldum barna sinna hjá skyndilánafyritækjunum, Aur, Netgíró, Pei og Síminn Pay.
23/02/2024
Ánægjulegt er að segja frá því að samþykktar hafa verið breytingar á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga nr. 101/2010.
Markmiðið með þeim breytingum sem nú hafa verið samþykktar er að bæta úrræði greiðsluaðlögunar og gera málsmeðferðina skýrari og skilvirkari, umsækjendum til hagsbóta.
Breytingarnar taka gildi þann 1. apríl næstkomandi.
Helstu breytingar sem samþykktar voru eru eftirfarandi:
• Breyting á meðferð ákveðinna krafna sem standa utan greiðsluaðlögunar þannig að úrræðið verður heildstæðara. Í þessu felst t.d. að ákveðnar kröfur geta orðið hluti af greiðsluáætlun samnings, þrátt fyrir að ekki sé hægt að kveða á um eftirgjöf á þeim (t.d. virðisaukaskattur, meðlagsskuldir, fésektir).
• Rýmkun á skilyrðum um búsetu og lögheimili á Íslandi og breyting á þeim aðstæðum sem geta leitt til synjunar á umsókn, þannig að fleiri geti leitað greiðsluaðlögunar.
• Breyting á meðferð veðskulda, m.a. til að bregðast við sérstökum aðstæðum eins og háu vaxtastigi. Heimilt verður að kveða á um lægri greiðslur eða gjaldfrest af veðlánum við ákveðnar aðstæður.
• Ný málsmeðferðarákvæði vegna yfirveðsetningar á fasteignum, þar sem einstaklingar geta óskað eftir lækkun á veðsetningu þannig að hún miðist við markaðsverðmæti fasteignar að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
• Að kröfur vegna ábyrgðarskuldbindinga á námslánum falla undir greiðsluaðlögun þannig að hægt verði að kveða á um meðferð þeirra í samningi.
• Breytingar á málsmeðferð vegna breytinga eða ógildingar á greiðsluaðlögunarsamningi, m.a. til þess að auka líkur á því að skuldari geti staðið við samninginn og auka skilvirkni gagnvart kröfuhöfum.
Birtar verðar frekari upplýsingar og fræðsla á vefsíðu UMS í samræmi við þær breytingar sem samþykktar hafa verið þegar nær dregur gildistöku laganna.
Sjá frétt á vef stjórnarráðsins
Frumvarp sem auðveldar greiðsluaðlögun einstaklinga er orðið að lögum! Atkvæðagreiðsla fór fram á Alþingi laust eftir miðnætti og var frumvarpið samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Greiðsluaðlögun er úrræði fyrir einstaklinga sem glíma við verulega fjárhagserfiðleika. Nýju lögin taka gildi þann 1. apríl næstkomandi en um er að ræða breytingar á lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga nr. 101/2010.
„Breytingarnar munu snerta fjölda fólks og eru mikilvægar því með þeim eflum við velferðarþjónustu við þau sem verst standa fjárhagslega í samfélaginu,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félagsmála- og vinnumarkaðsráðherra
„Úrræðið um greiðsluaðlögun hefur margsannað gildi sitt. Mikil þörf var engu að síður fyrir breytingarnar sem nú eru orðnar að lögum og markmið þeirra var skýrt: Að ná enn betur en áður til fólks sem stendur frammi fyrir verulegum fjárhagserfiðleikum. Ég er því stoltur og ánægður með að frumvarpið sé orðið að lögum.“
Markmið laga um greiðsluaðlögun er að gera umsækjendum kleift að endurskipuleggja fjármál sín. Einstaklingar sækja um greiðsluaðlögun hjá Umboðsmaður skuldara sem annast framkvæmd úrræðisins.
Með breytingunum verður úrræðið um greiðsluaðlögun að heildstæðari lausn en verið hefur og málsmeðferð verður skýrari og skilvirkari.
- Fleiri munu geta sótt um greiðsluaðlögun en verið hefur, auk þess sem málsmeðferð vegna breytinga á samningum til greiðsluaðlögunar breytist skuldurum í hag. Það er gert til að auðvelda einstaklingum að standa í skilum við samninga sína og fá þeim breytt þegar þörf er á.
- Í lögunum er brugðist við þeim aðstæðum sem uppi eru í þjóðfélaginu þegar greiðslubyrði veðlána fer hækkandi vegna hás vaxtastigs. Það er gert með nýju ákvæði um gjaldfrest eða lægri afborganir veðlána. Um nýmæli er að ræða þess efnis að umsjónarmanni greiðsluaðlögunar verður heimilt að leggja til í samningi um greiðsluaðlögun að greidd verði tímabundið lægri mánaðargreiðsla til greiðslu veðkrafna eða veittur sé gjaldfrestur á þeim. Tilgangur með slíkri heimild er að mæta sérstökum aðstæðum á borð við háu vaxtastigi eða tímabundnum aðstæðum eins og tekjuleysi.
- Lögin fela einnig í sér breytingar á málsmeðferð vegna yfirveðsettra fasteigna. Einstaklingar munu geta, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, óskað eftir lækkun á veðsetningu þannig að hún miðist við markaðsverðmæti fasteignar.
- Samkvæmt eldri lögum falla námslán utan greiðsluaðlögunar ásamt ábyrgðarskuldbindingum námslána en í nýju lögunum falla virkar kröfur vegna ábyrgðarskuldbindinga á námslánum undir úrræðið þannig að hægt verður að kveða á um meðferð þeirra í samningi. Brýn þörf var á að greiðsluaðlögun tæki til þessara krafna þar sem engar aðrar lögbundnar lausnir eru til staðar fyrir ábyrgðarmenn sem lenda í greiðsluerfiðleikum vegna þessara skuldbindinga.
22/09/2023
Ásta Sigrún umboðsmaður skuldara ræddi um stöðuna í Reykjavík síðdegis sl. miðvikudag.
Þar fór hún m.a. í stuttu máli yfir þá þjónustu og úrræði sem UMS býður upp á.
Fólk sem hefur tekið smálán leitar í auknum mæli til Umboðsmanns skuldara sem segir lánin lögleg en siðlaus - Vísir Ásta Sigrún Helgadóttir umboðsmaður skuldara ræddi við okkur um stöðuna hjá fólki.
16/06/2023
Sjálfstæði, fjárhagslegt sjálfstæði.
Sara Jasonardóttir, verkefnastjóri fræðslu og kynningarmála var með hugleiðingu í þættinum Uppástand á Rás 1 í dag.
https://www.ruv.is/utvarp/spila/uppastand/33185/9sf8h1
09/02/2023
Leitin að peningunum er komin í loftið á ný, endilega leggið við hlustir !
Við erum komin í loftið á ný. Framundan eru 20 þættir og margt fleira skemmtilegt þar sem við munum halda áfram leitinni að peningunum. Fyrsti gestur okkar er hlustendum okkar kunnur. Már Mixa var viðmælandi í vinsælasta þætti okkar frá árinu 2021. Hann mætti og fer yfir stöðu markaða, fjárfestingar og margt fleira.
Hlökkum til ársins 2023. Viðtalið við Má er að finna á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
12/01/2023
Fréttablaðið birti í dag grein eftir Steinunni Þóru Árnadóttur, þingmann Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. Í grein sinni tekur hún undir þau álitaefni þau sem umboðsmaður skuldara hefur vakið athygli á í vikunni varðandi námslánakerfið.
Steinunn Þóra segir m.a.
"Umboðsmaður bendir á að við setningu laganna árið 2020 hafi verið samþykkt að ráðast skyldi í endurskoðun að þremur árum liðnum. Nú er tímabært að bretta upp ermarnar og gera gott kerfi betra."
Réttmætar ábendingar um námslán Skoðun Réttmætar ábendingar um námslán Steinunn Þóra Árnadóttir Fimmtudagur 12. janúar 2023 Kl. 05.00 Deila Námslánakerfi eru eitthvert mikilvægasta félagslega jöfnunartæki samtímans. Með námslánum reynum við að gera fólki fært að leita sér menntunar óháð efnahag ...
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Telephone
Website
Address
Hlíðasmári 11
Kópavogur
201
Opening Hours
| Monday | 10:00 - 15:00 |
| Tuesday | 10:00 - 15:00 |
| Wednesday | 10:00 - 15:00 |
| Thursday | 10:00 - 15:00 |
| Friday | 10:00 - 15:00 |
