Píratar í Kópavogi

Píratar í Kópavogi

Share

Píratar leggja áherslu á frelsi, lýðræði, tæknimál og að auka traust almennings til stjórnmála.

16/12/2025

Stjórn Pírata í Kópavogi hefur tekið ákvörðun um að bjóða ekki fram lista Pírata í sveitarstjórnarkosningunum í Kópavogi vor. Undanfarin tvö kjörtímabil höfum við í störfum okkar í bæjarstjórn komið mörgum áherslumálum flokksins á dagskrá með góðum árangri. Að þessu sinni teljum við skynsamlegra að dreifa ekki kröftum og atkvæðum á fleiri framboðslista, enda eru aðrir flokkar með áherslur svipaðar okkar í mörgum lykilmálum. Við munum engu að síður nýta síðustu mánuðina af fullum þunga eins og hingað til, og leggja okkar af mörkum til að íhaldið og sérhagsmunirnir fái frí frá völdum í vor.
Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári 💜

22/09/2024

Í gær var aðalfundur Pírata í Kópavogi haldinn á Bragganum, Nauthólsvík. Ný stjórn félagsins var kjörin á fundinum, pólitík rædd og mikið hlegið. Nýja stjórnin hittist síðan á sínum fyrsta stjórnarfundi í kjölfar aðalfundarins og skipti með sér verkum og lagði línurnar fyrir veturinn.

💜 Nýju stjórnina skipa: 💜

Árni Pétur Árnason (formaður)
Matthías Hjartarson (varaformaður)
Elín Kona Eddudóttir (ritari)
Indriði Ingi Stefánsson (gjaldkeri)
Salóme Mist Kristjánsdóttir (meðstjórnandi)
Þorgeir Lárus Árnason (varamaður)
Kjartan Sveinn Guðmundsson (varamaður, vantar á myndina)

Nýja stjórnin og aðrir félagsmenn sem sátu fundinn eru mjög pepp fyrir komandi vetri💜

Want your business to be the top-listed Government Service in Kópavogur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Kópavogur