Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi

Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi

Share

Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi Upplýsingar vegna leigu á sal fást í síma 694 1794.

Photos from Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi's post 06/06/2026

Nýr meirihluti kynntur á sólríkum degi við Geðræktarhúsið 🤝

Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn halda áfram farsælu meirihlutasamstarfi og Ásdís Kristjánsdóttir verður áfram bæjarstjóri.

Meirihlutasáttmálinn byggir á sjö megináherslum og um 55 verkefnum sem sett verða í forgang á kjörtímabilinu, með það að markmiði að einfalda daglegt líf íbúa, bæta þjónustu og gera góðan bæ enn betri fyrir komandi kynslóðir.

Áfram leggjum við áherslu á:
✅ Ábyrgan rekstur og lægri skatta: Áfram lægstu fasteignagjöld á höfuðborgarsvæðinu
✅ Fjölbreytt húsnæði og séreignarstefnuna
✅ Skóla í fremstu röð og öflugt bæjarfélag fyrir fjölskyldurnar
✅ Frábæra íþrótta- og frístundaaðstöðu fyrir börn og ungmenni
✅ Heilsueflingu og aukin lífsgæði eldri borgara
✅ Græn svæði, framsýnt skipulag og öflugt menningarlíf

Við hlökkum til að halda áfram að byggja upp Kópavog. Kópavogur er í sókn! 💙

29/05/2026

Kæru félagar

„Ja, fussum svei!“ Nú verður Soffía ekki ánægð, því við höfum fengið hann Brynjar hennar til að stinga af í fyrramálið, frá huggulegheitum þeirra hjóna, til okkar á laugardagsfundinn. Ekki er víst að Anna K. mæti með honum, þó sé komin til landsins, né vitað um aðra fylgifiska - en Brynjar verður örugglega með „góða skapið!”

Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík náði mikilvægum árangri í kosningunum og hefur nú aftur tryggt sér stjórnartaumanna í höfuðborginni með hjálp vina sinna, í Framsóknarflokknum og Viðreisn.

Félagið býður að því tilefni Brynjari Þór Níelssyni, borgarfulltrúa,
fyrrum formanni Lögmannafélagsins og Alþingismanni til margra ára,í heimsókn yfir til nágrannaborginnar, Kópavogs, til að ræða við félagsmenn og hvern sem vill hitta hann eða gleðjast með okkur yfir áfanganum; ræða sigurinn, hvernig honum var náð og hvað hann mun þýða.

Laugardagsfundurinn verður að venju kl.10:00 í fyrramálið í Hlíðarsmára 19 og boðið upp á kaffi og með því, brauð og annað bakelsi.

18/05/2026

TAKK - TAKK og aftur TAKK fyrir ykkar stuðning!
Stærsti sigur flokksins í Kópavogi frá upphafi 👏👏👏
..og ekki bara það heldur í fyrsta sinn sem flokkur hlýtur hreinan meirihluta í bænum!
Að baki okkar frábæru frambjóðendum stendur fjöldinn allur af sjálfboðaliðum sem öll stóðu saman sem einn maður. Liðsheildin er einstök og það var hún sem skóp þennan sögulega sigur undir styrkri stjórn bæjarstjórans okkar Ásdís Kristjánsdóttir❗
TAKK öll sem eitt 💙
Framundan er áframhaldandi sókn í Kópavogi þar sem við látum verkin tala. Fylgist með hér 👇

16/05/2026

„Að spila golf. Við hjónin erum að byrja golfi en mig óar smá fyrir öllum tímanum sem mun fara í að gera mig leikfæra. Golfíþróttin er ört stækkandi sport og við hjónin áttum okkur á því að við verðum að setja í forgang að verða leikfær svo við missum ekki af öllum þeim vinahittingum sem eru fram undan tengdar sportinu“

👉 https://www.visir.is/g/20262882387d/oddvitaaskorunin-baunateljarinn-

16/05/2026

Gleðilegan kjördag 💙
Það er allt orðið tilbúið fyrir kosningakaffið í Hlíðasmára 19

15/05/2026

„Sjálfstæðisflokkurinn hefur sýnt og sannað að honum er treystandi fyrir verkefninu. Við höfum hlustað á raddir bæjarbúa um leið og við vörðum veginn áfram með hagsmuni allra bæjarbúa í forgrunni. Hvert atkvæði greitt Sjálfstæðisflokknum er atkvæði greitt áframhaldandi sókn og uppbyggingu. Við viljum halda áfram á þessari braut og þurfum til þess þinn stuðning í kjörklefanum, Kópavogi og íbúum öllum til heilla.“

Þú getur lesið alla grein Ásdísar í fyrstu athugasemd.

15/05/2026

Ungir kjósendur! Við treystum á ykkar stuðning 16. maí!💙
birgir.ari kristjansnaerr

15/05/2026

Hjördís segir X við D!💙

15/05/2026

X við D fyrir menninguna í bænum!💙

14/05/2026

„Í dag er Fífan ákveðinn miðpunktur svæðisins og þangað koma yfir milljón heimsókna á ári. En dalurinn er svo miklu meira en það, þar mætast göngufólk, íþróttaiðkendur, fjölskyldur og þeir sem einfaldlega vilja njóta útiveru í fallegu umhverfi. Í vinnu starfshópsins var lögð rík áhersla á að vernda opin og græn svæði dalsins og að framtíðarskref í dalnum taki mið af þeirri sérstöðu sem svæðið hefur.“

Þú getur lesið alla grein Hjördísar í fyrstu athugasemd.

Want your business to be the top-listed Government Service in Kópavogur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address


Kópavogur
200