04/04/2026
Síðastliðna helgi æfði hamfarahópur sveitarinnar snjóflóðarústabjörgun á Ísafirði undir leiðsögn félaga sveitarinnar í samstarfi björgunarsveitina Tinda í Hnífsdal.
Samtals tóku 30 félagar HSSK þátt í æfingunni. Aðstæður í aðdraganda æfingarinnar voru mjög krefjandi bæði vegna snjóflóðahættu á vestfjörðum og veðurs. Farið var af stað í nokkrum hópum, frá miðvikudegi og fram á föstudag. Vegna ófærðar á leiðinni vestur þurftu sumir hópar að lengja för sína um rúmlega 100 km til þess að krækja fram hjá lokunum í Bröttubrekku, Holtavörðuheiði og á Þröskuldum. Á Hólmavík fengu félagar inni hjá Björgunarsveitinni Dagrenningu. Voru fjölmargir vegfarendur aðstoðaðir í ófærðinni á leiðinni vestur.
Í heild tóku hátt í 60 manns og tveir snjóflóðaleitarhundar þátt í æfingunni og var helmingurinn frá einingum á norðanverðum vestfjörðum. Voru aðstæðurnar gríðarlega raunverulegar. Með í för var félagi HSSK nr. 170, Sigurður Ólafur Sigurðsson sem m.a. myndaði æfinguna sem var í undirbúningi í yfir hálft ár.
23/03/2026
Hjálparsveit skáta í Kópavogi sinnti gæslu í Bláfjallagöngunni um helgina við krefjandi aðstæður, þar sem snjókoma og misjafnt skyggni settu svip sinn á daginn. Sem betur fer komu engin alvarleg sjúkratengd verkefni upp, en gæslan reyndist engu að síður afar dýrmæt æfing.
Slíkar aðstæður gefa gott tækifæri til að þjálfa samskipti, skipulag og viðbragðsgetu, auk þess að efla reynslu í útiveru við alvöru vetraraðstæður. Einn bíll var aðstoðaður og dreginn úr festu.
Við erum þakklát fyrir tækifærið til að æfa okkur í raunverulegum aðstæðum og halda áfram að efla viðbragðsgetu sveitarinnar.
06/01/2026
🎇🎇🎇LOKADAGUR FLUGELDASÖLUNNAR🎇🎇🎇
Lokadagur flugeldasölunnar er í dag. Við verðum með opið í milli 15:00 og 20:00 á Bakkabraut og Tónahvarfi.
🎇 Þrettándasala 🎇
Þrettándasalan er opin hjá okkur í Björgunarmiðstöðinni, Tónahvarfi 8.
💥 laugardaginn 3. janúar frá 13-19
💥 Sunnudaginn 4 .janúar frá 13-19
💥 þriðjudaginn 6. janúar frá 15-20
Bakkabraut
💥Laugardaginn 3.janúar frá 13-19
💥Sunnudaginn 4.janúar frá 13-19
💥Þriðjudaginn 6.janúar frá 15-20
03/01/2026
🎇 Þrettándasala 🎇
Þrettándasalan er opin hjá okkur í Björgunarmiðstöðinni, Tónahvarfi 8.
💥 laugardaginn 3. janúar frá 13-19
💥 Sunnudaginn 4 .janúar frá 13-19
💥 þriðjudaginn 6. janúar frá 15-20
Bakkabraut
💥Laugardaginn 3.janúar frá 13-19
💥Sunnudaginn 4.janúar frá 13-19
💥Þriðjudaginn 6.janúar frá 15-20
01/01/2026
Við hvetjum alla til að fara með flugeldarusl í þar til gerða gáma sem komið hefur verið fyrir á eftirfarandi stöðum víðsvegar um Kópavog.
🌲 Kársnes: Við grenndargámastöð á Borgarholti
🌲 Digranes: Við grenndargámastöð við Íþróttahúsið Digranes
🌲 Smárahverfi: Við grenndargámastöð Kópavogsvelli
🌲 Linda- og Salahverfi: Í nágrenni við Salalaug
🌲 Kóra-, Þing- og Hvarfahverfi: Við grenndargámastöð Vallakór 8
31/12/2025
Nú höfum við lokað sölustöðum okkar 🎉
Við þökkum fyrir ómetanlegan stuðning á árinu og óskum Kópavogsbúum og landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs ❤
Þrettándasalan verður opin 6.janúar frá 15:00-20:00 í Björgunarmiðstöðinni, Tónahvarfi 8.
Myndin er af flugeldasýningu HSSK þann 29. desember.
31/12/2025
Árlega stendur sveitin fyrir myndahappdrætti í Áramótablaðinu okkar. Þar geta börnin litað mynd úr starfi sveitarinnar. Myndina í ár teiknaði Olga Kolbrún líkt og undanfarin ár.
Vinningshafar í myndahappdrættinu komu og sóttu vinningana sína í Björgunarmiðstöðina í dag.
Við minnum á sölustaði okkar sem eru opnir til klukkan 16:00 í dag:
🎆 Bakkabraut 4
🎆 Kraftvélar, Dalvegi 6-8
🎆 Lindakirkja
🎆 Björgunarmiðstöðin, Tónahvarfi 8
30/12/2025
INNKÖLLUN Á "RAKETTUPAKKA 2" VEGNA GALLA!
Slysavarnafélaginu Landsbjörg bárust í kvöld ábendingar um að galli væri í einhverjum rakettum sem seldar hafa verið í Rakettupakka 2.
Við prófun kom í ljós að einhverjar þeirra sprungu of snemma.
Því hefur verið tekin sú ákvörðun um að taka Rakettupakka 2 úr sölu og kalla inn þá pakka sem hafa verið seldir.
Þau sem hafa keypt Rakettupakka 2 eru hvött til að koma með hann á næsta sölustað og skipta honum út fyrir aðra vöru.
Hægt verður að skipta út pakkanum á morgun, gamlársdag, þar til sölustaðir loka, sem og á opnunartíma fyrir þrettándann.
Slysavarnafélaginu Landsbjörg þykir miður að viðskiptavinir verði fyrir óþægindum vegna þessa, en öryggi okkar allra þarf alltaf að vera í fyrirrúmi.
INNKÖLLUN Á "RAKETTUPAKKA 2" VEGNA GALLA!
Slysavarnafélaginu Landsbjörg bárust í kvöld, þriðjudagskvöld, ábendingar um að galli væri í einhverjum rakettum sem seldar hafa verið í Rakettupakka 2.
Við prófun kom í ljós að einhverjar þeirra sprungu of snemma.
Því hefur verið tekin sú ákvörðun um að taka Rakettupakka 2 úr sölu og kalla inn þá pakka sem hafa verið seldir.
Þau sem hafa keypt Rakettupakka 2 eru hvött til að koma með hann á næsta sölustað og skipta honum út fyrir aðra vöru.
Hægt verður að skipta út pakkanum á gamlársdag, þar til sölustaðir loka, sem og á opnunartíma fyrir þrettándann.
Slysavarnafélaginu Landsbjörg þykir miður að viðskiptavinir verði fyrir óþægindum vegna þessa, en öryggi okkar allra þarf alltaf að vera í fyrirrúmi.
29/12/2025
Gleðilega hátíð kæru bæjarbúar!
Flugeldasýningu Hjálparsveitar skáta í Kópavogi er lokið þetta árið.
Við þökkum kærlega fyrir áhugann og virkilega gaman að sjá hversu margir gáfu sér tíma til þess að fylgjast með sýningunni í ár.
Njótið áramótanna og farið varlega 🎆🎆🎆