Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu

Share

grunn- og framhaldsskóla um land allt.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu stuðlar að framúrskarandi menntun og farsæld allra barna og ungmenna. Þetta gerir hún með öflugum stuðningi og markvissri þjónustu við leik-.

Málörvun í daglegu leikskólastarfi efld í Borgarbyggð | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 08/06/2026

Uppskeruhátíð þróunarverkefnisins Mál og læsi: Snemmtæk íhlutun í leikskólum var haldin í Borgarbyggð síðastliðinn fimmtudag í tilefni af lokum fyrsta innleiðingarárs verkefnisins.

Málörvun í daglegu leikskólastarfi efld í Borgarbyggð | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Í leikskólastarfi gefast mörg tækifæri á hverjum degi til að styðja við mál og læsi barna. Í Borgarbyggð hefur starfsfólk allra leikskóla sveitarfélagsins unnið markvisst að því í vetur að nýta þau tækifæri enn betur og móta sameiginlega sýn á málörvun í starfinu. Upp...

Nýtt samræmt námsmat orðið að veruleika | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 03/06/2026

„Við viljum nota þetta tækifæri til að þakka kennurum, skólastjórnendum og sveitarfélögum um allt land fyrir samstarfið. Verkefnið hefur kallað á mikla vinnu, þolinmæði og lausnamiðað samtal. Samvinnan á milli allra þessara aðila hefur verið einstök.
Skólar fengu niðurstöðurnar sendar í síðustu viku og nú geta foreldrar og forsjáraðilar nálgast þær á Mínum síðum á Ísland.is.“

- Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og Freyja Birgisdóttir, sviðsstjóri matssviðs

Nýtt samræmt námsmat orðið að veruleika | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Í dag fá foreldrar og forsjáraðilar grunnskólabarna landsins í fyrsta sinn aðgang að niðurstöðum barna sinna úr stöðu- og framvinduprófum Matsferils í gegnum Ísland.is. Það er ánægjulegur og mikilvægur áfangi í þróun nýs samræmds námsmats fyrir grunnskóla. Um er að ræ...

RISAstórar smáSÖGUR 2026 komnar út | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 01/06/2026

📚 RISAstórar smáSÖGUR 2026 eru komnar út!

Í bókinni má finna 17 skemmtilegar og fjölbreyttar sögur eftir börn á aldrinum 6–12 ára sem sendu inn verk í smásagnasamkeppni Sagna - samstarfs um barnamenningu.

Sögurnar sýna kraftmikið ímyndunarafl, sköpunargleði og frásagnargáfu barna um allt land. Við óskum öllum höfundunum innilega til hamingju!

Í fréttinni má einnig finna tengil á upptöku af Sögum - verðlaunahátíð barnanna 2026 þar sem verðlaun voru veitt fyrir framúrskarandi barnamenningu og verk barna sjálfra.

Lesið fréttina og skoðið rafbókina 👇

RISAstórar smáSÖGUR 2026 komnar út | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Rafbókin RISAstórar smáSÖGUR kemur nú út í níunda sinn. Í bókinni eru 17 áhugaverðar og skemmtilegar sögur eftir börn á aldrinum 6–12 ára. Sögurnar voru valdar úr fjölmörgum sögum sem bárust í smásagnasamkeppni á vegum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, KrakkaRÚ...

Allt framhaldsskólanám á Íslandi á sama stað – framhaldsskolanam.is | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 01/06/2026

Nú er hægt að finna allt framhaldsskólanám á Íslandi á einum stað á Framhaldsskólanám.is. Þar má meðal annars skoða námsbrautir, bera saman möguleika og kynna sér fjölbreytt námsframboð framhaldsskóla um land allt 👇

Allt framhaldsskólanám á Íslandi á sama stað – framhaldsskolanam.is | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Nýr vefur mennta- og barnamálaráðuneytisins, framhaldsskolanam.is, hefur verið tekinn í notkun. Þar eru í fyrsta sinn birtar allar viðurkenndar námsbrautir framhaldsskóla á einum stað. Markmiðið er að auðvelda aðgengi að upplýsingum um námsframboð framhaldsskóla í notendavæn...

Photos from Miðstöð menntunar og skólaþjónustu's post 29/05/2026

Það var glatt á hjalla og mikill innblástur í salnum á uppskeruhátíð Heillaspora í liðinni viku 🌱

Heillaspor styðja sveitarfélög, skóla og skólaþjónustu við að skapa öruggt og gott umhverfi fyrir börn í skóla- og frístundastarfi. Nálgunin byggir á samræmdum verkfærum, samtali og markvissri innleiðingu.

Sveitarfélög sem hafa unnið með Miðstöð menntunar og skólaþjónustu að innleiðingu Heillaspora í vetur deildu reynslu sinni, lærdómi og hugmyndum um áframhaldið. Það var sérstaklega ánægjulegt að heyra hversu vel nálgunin hefur nýst þeim í að styrkja verklag, efla samstarf og skapa sameiginlegan skilning á því hvernig best er að styðja við börn og fjölskyldur.

Á staðnum voru fulltrúar sveitarfélaga, Mennta- og barnamálaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga og fleiri sem vinna að farsæld barna.

Takk fyrir dýrmætt samtal, góða samveru og mikilvæga vinnu í þágu barna 💜

Lúkas lesmús - fjöltyngd lestrarbók fyrir yngsta stig | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 28/05/2026

📚 Ný fjöltyngd lestrarbók fyrir yngsta stigið!
Þetta er í fyrsta sinn sem við gefum út fjöltyngda lestrarbók 💜

Lúkas lesmús eftir Brynhildi Stefánsdóttur segir frá músinni Lúkas sem bjargar lífi sínu með því að kunna að lesa. Bókin kemur út á íslensku, ensku og pólsku og styður við læsi, orðaforða og skemmtilegar samræður um söguna.

Í bókinni má meðal annars finna:
🐭 orðskýringar og verkefni
🐭 fjölbreytta möguleika til umræðu og ritunar
🐭 stuðning við samstarf heimila og skóla

Bókin getur nýst bæði tvítyngdum börnum og íslenskumælandi nemendum sem vilja kynnast fleiri tungumálum og sjá tungumál sem tækifæri til samskipta og skilnings.

Lúkas lesmús - fjöltyngd lestrarbók fyrir yngsta stig | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Út er komin bókin Lúkas lesmús eftir Brynhildi Stefánsdóttur. Þetta er í fyrsta skipti sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu gefur út fjöltyngda lestrarbók fyrir yngsta stig grunnskóla.

Photos from Heimili og skóli - Landssamtök foreldra's post 26/05/2026
20/05/2026

MEEEIRA FJÖR FRAMUNDAN! 🐐
Sumarlestrarspretturinn 2026 er hafinn!

Gúndi geithafur þarf hjálp!
Garnirnar gaula og nú hefst
🌿 grasleitin mikla 🌿

Í dag, miðvikudaginn 20. maí, opnar vefurinn www.sumarlestur.is og með því hefst formlega sumarlestur barna um allt land.
Gúndi geithafur hvetur öll 6–12 ára börn til að hjálpa honum að finna gras til að bíta. Með vegabréf í hönd safna þau stimplum eða límmiðum, happamiðum og fá skemmtileg þrautablöð – eftir því sem þau lesa meira.

Til að taka þátt þurfa börnin að:
*heimsækja almenningsbókasafn
*ná þar í vegabréfið
*og hefja lestur!

Komdu á bókasafnið, náðu í vegabréfið og finndu grænasta hagann🌿

Blær Guðmundsdóttir, mynd- og rithöfundur, skapar hér nýjan og lifandi heim fyrir unga lesendur. Sumarlesturinn er samstarfsverkefni fjölda bókasafna, stofnana og félagasamtaka en bakhjarlar verkefnisins eru sem fyrr starfsfólk Borgarbókasafnsins, Bókasafns Kópavogs og Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu sem hafa unnið að undirbúningi verkefnisins.

Við hvetjum bókasöfn, skóla og aðra sem vinna með börnum til að kynna verkefnið og hvetja til þátttöku og hjálpa Gúnda geithafri að komast í grænt beitiland.

Opið fyrir tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 19/05/2026

Opið er fyrir tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 ✨

Þekkir þú framúrskarandi kennara, þróunarverkefni, skóla- eða frístundastarf sem á skilið sérstaka viðurkenningu?

Íslensku menntaverðlaunin vekja athygli á metnaðarfullu og vönduðu starfi í menntamálum og eru veitt í fimm flokkum, meðal annars fyrir framúrskarandi kennslu, þróunarverkefni og menntaumbætur.

🗓️ Frestur til að senda inn tillögur er til 1. júní.

Opið fyrir tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Nú er opið fyrir tilnefningar til Íslensku menntaverðlaunanna 2026. Verðlaununum er ætlað að vekja athygli á framúrskarandi skóla- og frístundastarfi og efla umræðu um menntaumbætur í íslensku samfélagi.

Want your business to be the top-listed Government Service in Kópavogur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Víkurhvarf 3
Kópavogur
203

Opening Hours

Monday 09:00 - 15:00
Tuesday 09:00 - 15:00
Wednesday 09:00 - 15:00
Thursday 09:00 - 15:00
Friday 09:00 - 12:00