Miðflokkurinn í Garðabæ

Miðflokkurinn í Garðabæ

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Miðflokkurinn í Garðabæ, Political organisation, Hamraborg 1, Kópavogur.

28/05/2026
27/05/2026

Til upplýsinga vegna nýskráninga í Miðflokkinn.

Miðflokkurinn hefur ekki áður séð slíkan fjölda nýskráninga en skráningarkerfið sem heldur utan um allar skráningar hefur ekki stoppað síðan í morgun. Hverri nýrri skráningu fylgir ákveðin handavinna sem sem starfsmenn munu ganga frá á næstu dögum og því ættu nýir félagar að vera komnir inn í póstkerfi og annað fljótlega.

18/05/2026

Við þökkum stuðninginn! Miðflokkurinn nær tvöfaldaði fylgi sitt frá síðustu kosningum, en það var ekki nóg. Miðflokkurinn hefði þurft 69 atkvæði aukalega, til þess að fá fulltrúa í bæjarstjórn.

Þeir flokkar sem voru í minnihluta á síðasta kjörtímabii (þar með talin Samfylkingin, sem var hluti af Garðabæjarlistanum) töpuðu fylgi.

Photos from Nanna Margrét X-M's post 16/05/2026
15/05/2026

Urriðaholt svikið um al­menni­lega sund­laug!

Það eru tækifæri til þess að koma í veg fyrir að íbúar Urriðaholts verði sviknir um almennilega sundlaug og það vill Miðflokkurinn gera með því að skoða möguleika til stækkunar útisvæðis, sem gerir okkur kleift að bæta við öðrum heitum potti, köldum potti, saunuklefa úti og lítilli rennibraut fyrir börn við aðstöðuna svo hún nýtist öllum íbúum svæðisins.

Íbúum Urriðaholts var ávallt lofað að sundlaug kæmi í hverfið, enda er hverfið það stærsta í Garðabæ og á pari við allt Seltjarnarnes í íbúafjölda.

Sundlaug við Urriðaholtsskóla er vissulega í byggingu og á lokametrunum en sú sundlaug er aðallega hugsuð fyrir skólasund. Laugin samanstendur af 16,7m kaldri innilaug, lítilli vaðlaug, infrarauðri sauna og einum heitum potti á útisvæði. Laugin er mun minni en íbúar áttu von á.

Núverandi bæjarstjórn fullyrðir að íbúum verði kleift að nota heita pottinn og infrarauðu saununa utan opnunartíma, en við drögum í efa að átt sé við hefðbundinn opnunartíma um kvöld og helgar. Ólíklegt er að bærinn haldi lauginni opinni fyrir þá örfáu gesti sem laugin rúmar.

Það er í raun óþolandi að bæjaryfirvöld hafi ekki nýtt það einstaka tækifæri við uppbyggingu sundlaugarinnar til að gera hlutina vel og samkvæmt óskum íbúa. Það hefði ekki verið mikil fyrirhöfn að hafa útisvæði stærra og gefa okkur íbúum, á öllum aldri, góðan samanstað allan ársins hring.

Er það kannski ekki of seint?

Á teikningum og myndum má sjá að það er enginn skortur á svæði til stækkunar. Það eru klárlega möguleikar til að bæta við útisvæði laugarinnar.

Við í Miðflokknum viljum skoða möguleika til stækkunar laugarinnar og aukinnar hagnýtingar hennar fyrir alla íbúa hverfisins með því að stækka útisvæðið og auðvitað leyfa útsýninu frá lauginni að njóta sín.

Laufey Gunnþórsdóttir - 2. sæti Miðflokksins í Garðabæ

15/05/2026

Hér eru þrjú atriði sem við í Miðflokknum ætlum að
gera á Álftanesi mjög fljótt á næsta kjörtímabili.

Númer eitt: Við ætlum að fela þessa byggingu hér
með því að gera leikmynd í kringum hana þannig að
hún falli inn í umhverfið.

Númer tvö: Við ætlum að bæta reiðstígakerfið á Álftanesi.
Það hefur fengið að grotta niður og hefur verið slitið í
sundur þannig að það er orðið erfitt að fara í almennilegan
reiðtúr um Álftanesið.

Númer þrjú: Við ætlum að taka þessar flotbryggjur
í notkun og gera það í samstarfi við einkaaðila eða klúbba sem myndu þá byggja upp, halda siglinganámskeið hér eða
annað slíkt.

Við munum jafnframt tryggja að golfvöllur fái varanlegan stað á Norðurnesinu.

Setjum X við M morgun, laugardaginn 16. maí, eða jafnvel strax í dag.

15/05/2026

Skilaboð frá Formanni og Varaformanni Miðflokksins til Garðbæinga!

15/05/2026

Við í Miðflokknum elskum hunda. Hér ætlum við að koma fyrir hundagerði, þannig að íbúar innbæjarins þurfi ekki að fara alla leið út á Álftanes til að viðra hundinn sinn.

Hérna væri leikandi létt að setja upp girðingu og leyfa hundunum að hlaupa fram og til baka og nýta þetta svæði enn betur.

Setjum X við M 16. maí eða jafnvel fyrr.

Want your business to be the top-listed Government Service in Kópavogur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Hamraborg 1
Kópavogur
200