Framsókn í Norðvesturkjördæmi

Framsókn í Norðvesturkjördæmi

Share

Hérna má fylgjast með frambjóðendum Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi. Fundir verða auglýstir hér og myndir birtar úr ferðalögum um kjördæmið.

13/01/2026
14/04/2025

Kjördæmisþing Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi ályktar:

Fyrstu skref nýrrar ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur hafa verið landsbyggðarfólki gríðarleg vonbrigði þrátt fyrir fögur loforð um að hagsmunum landsbyggðar yrði gætt.

Á þeim tíma síðan ný ríkisstjórn tók við má sjá að stór hluti þeirra mála sem hún hefur kynnt eru í raun mál frá fyrri ríkisstjórn, sem hún virðist tileinka sér. Þau mál sem eiga rætur að rekja til núverandi ríkisstjórnar eru hins vegar illa unnin, lítt ígrunduð og skortir greiningu og mat á áhrifum.

Sem dæmi má nefna nýja fjármálaáætlun, sem bersýnilega var unnin í flýti en henni fylgja hvorki lögbundnir mælikvarðar né mat á áhrifum. Ríkisstjórnin hefur nú þegar boðað niðurskurð í mikilvægum málaflokkum. Fjárframlög til vegamála og menntamála verða skert, auk - þess sem góð verkefni fyrri ríkisstjórnar verða stöðvuð, eins og í heilbrigðisþjónustu, samanber stuðning við Janus endurhæfingu.

Norðvesturkjördæmi er víðfemt svæði þar sem margir hafa lífsviðurværi sitt af landbúnaði, sjávarútvegi, ferðaþjónustu og iðnaði. Á fyrstu mánuðum nýrrar ríkisstjórnar hafa verið teknar ákvarðanir sem gera rekstur í þessum atvinnugreinum enn erfiðari. Þar má nefna illa útfært veiðigjald, aukna skattlagningu á ferðaþjónustu sem bitnar sérstaklega á litlum og meðalstórum ferðaþjónustufyrirtækjum, og nýlega hækkun raforkuverðs sem hefur sérstaklega neikvæð áhrif á iðnað, garðyrkjubændur og köld svæði.

Þá hafa verið teknar ákvarðanir – og fleiri eru í burðarliðnum – sem munu leiða til fækkunar sérhæfðra opinberra starfa utan höfuðborgarsvæðisins. Það kemur sérlega illa við íbúa í Norðvesturkjördæmi og má þar meðal annars nefna uppsagnir hjá Vinnumálastofnun og sameiningu sýslumannsembætta.

Kjördæmisþingið vill sérstaklega árétta að það harmar þá neikvæðu umræðu á Alþingi er varðar kynjajafnrétti og stöðu minnihlutahópa. Bakslag hefur orðið í mannréttindabaráttunni, einkum á Vesturlöndum, og hafa neikvæðar breytingar í því samhengi orðið augljósari.

Ísland hefur unnið mikilvægt starf til að jafna stöðu kynjanna og bæta réttindi minnihlutahópa. Því skiptir miklu máli að kjörnir fulltrúar sýni ábyrgð og stuðli ekki að hatursorðræðu. Kjörnir fulltrúar eru fyrirmyndir . og bera ríka ábyrgð á málflutningi sínum. Alþingismenn eiga ekki að vera boðberar bakslags í mannréttindum.

Samþykkt á kjördæmisþingi Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi
12. apríl 2025 í Dæli í Víðidal.

30/11/2024

✅ Mundu að kjósa 😘💚
👉 Nú fara kjörstaðir fljótlega að loka. Hvert atkvæði telur, höfum áhrif ✅ XB

30/11/2024

✅ Hvernig sem viðrar þá stoppar ekkert lýðræðið.
Mætum tímanlega á kjörstað og gefum okkur tíma 🕙 aðstoðum nágranna, vini, kunningja og fjölskyldu því þetta er dagurinn okkar og saman höldum við veislu.

Tryggjum okkar fólk á þing, Stefán Vagn Stefánsson , Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir og Halla Signý Kristjánsdóttir eiga öll séns og hver vill ekki fá Ragnar Baldvin Sæmundsson og Þorgils Magnússon sem varaþingmenn.

Sjáumst svo í kosningakaffi vítt og breitt um kjördæmið, allir velkomnir (Sjá hér á síðunni hvar)
👉 ☕🎂🥧🍰🍮🧁☕

29/11/2024

✅ Við búum í kjördæminu og viljum vinna fyrir þig
💚 Meira Norðvestur - Meiri Framsókn 💚 XB 💚

29/11/2024

✅ KOSNINGAKAFFI Á KJÖRDAG ☕☕☕
Auðvitað verður kosningakaffi vítt og breytt um kjördæmið.
Akranes, Borgarnes, Ísafjörður, Hólmavík, Hvammstangi og Sauðárkrókur.
Svo minnum við líka á kosningavökuna á Sauðárkróki.
👇 Sjá link á viðburði í athugasemdum 👇

29/11/2024

💚 Meiri miðja - Meiri Framsókn 💚

28/11/2024

Minni verðtrygging - Meiri Framsókn

28/11/2024

✅ Fæðingarorlof í 18 mánuði
Stígum skrefið til fulls fyrir fjölskyldurnar í landinu. Ekkert bil milli fæðinagarorlofs og leikskóla.
💚 MINNA VESEN - MEIRI FRAMSÓKN 💚

28/11/2024

✅ Norrænt Húsnæðislánakerfi
- Húsnæðislán sem ekki eru háð verðbólgu af mannlegum ástæðum, vegna stríðs, faraldurs eða náttúruhamfara.
- Fyrirsjáanlegar afborganir út lánstímann
- Er gert í öðrum löndum, þurfum því ekki að fórna auðlindum okkar inn í ESB til að fá lægri vextir eins og sum framboð halda fram.

27/11/2024

Minna BONGÓ - Meiri FRAMSÓKN
Getum við ekki öll verið sammála um það?

27/11/2024

30. nóvember, dagur miðjunnar 💚
Meiri gleði - meiri Framsókn

Want your business to be the top-listed Government Service in Kópavogur?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Website

Address


Bæjarlind 14-16
Kópavogur
201