Ath! breytt staðsetning📢
Laugardagsfundurinn klukkan 11 í dag verður á Courtyard by Marriott.
Sérstakur gestur fundarins er Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.
Allir velkomnir
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ
Þið kusuð Sjálfstæðisflokkinn og nú blaktir íslenski fáninn fyrir utan Ráðhús Reykjanesbæjar🇮🇸
01/06/2026
Kæru sjálfstæðismenn,
Aðalfundur fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ verður haldinn í Grófinni 8 klukkan 18:00.
Að fundi loknum, klukkan 18:30, mun Vilhjálmur Árnason, oddviti okkar og verðandi bæjarstjóri, kynna nefndarmenn Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi kjörtímabil og fara yfir fyrstu verkefnin sem nýr meirihluti mun setja í forgang á fyrstu vikunum.
Við hvetjum alla sjálfstæðismenn til að mæta.
Aðalfundur fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ verður haldinn 1.júni í félagsheimilinu í Grófinni 8 klukkan 18:00
Dagskrá aðalfundar.
1. Skýrsla formanns.
2. Reikningsskil.
3. Kosning formanns.
4. Kosning stjórnar.
5. Kosning tveggja skoðunarmanna.
6. Kjör fulltrúa á Kjördæmisráð.
7. Kosning nefnda.
8. Lagabreytingar.
9. Önnur mál.
Framboð til stjórnar og eða formanns skuli berast með minnst tveggja daga fyrirvara og skulu send á [email protected]
21/05/2026
Vilhjálmur Árnason verður nýr bæjarstjóri Reykjanesbæjar💙
20/05/2026
Takk Margrét!
Margrét Sanders lauk sínum síðasta bæjarstjórnarfundi í gær eftir átta ára farsæla setu í bæjarstjórn Reykjanesbæjar sem oddviti Sjálfstæðisflokksins.
Á þeim tíma hefur hún staðið vörð um hagsmuni skattgreiðenda, atvinnulífsins og ábyrg fjármál af festu og heilindum. Hún tók við oddvitastöðunni á krefjandi tímum en tókst með dugnaði sínum og leiðtogahæfileikum að sameina hægrimenn í sveitarfélaginu undir merkjum Sjálfstæðisflokksins. Fyrir það verður seint fullþakkað.
Í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum skipaði Margrét heiðurssæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ og lagði sig alla fram í kosningabaráttunni til stuðnings frambjóðendum flokksins og nýjum oddvita, Vilhjálmi Árnasyni. Það lýsir vel þeirri óeigingjörnu vinnu og tryggð sem hún hefur sýnt flokknum og bæjarbúum í gegnum tíðina.
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ þakkar Margréti Sanders innilega fyrir frábær störf, einlægni og ómetanlegt framlag í þágu bæjarbúa síðustu átta ár.
17/05/2026
Takk kærlega fyrir traustið💙
16/05/2026
Mætingin í kjördagskaffið var mögnuð, takk kærlega fyrir okkur. Þessi barátta hefur verið ótrúlega skemmtileg og við viljum þakka öllum sem hafa mætt á viðburði, tekið þátt og sýnt okkur stuðning síðustu vikur.
Núna eru aðeins tveir og hálfur tími þar til kjörstaðir loka og við hvetjum alla okkar stuðningsmenn til að klára að kjósa og pikka í fólkið í kringum sig sem á eftir að mæta á kjörstað.
Minnum svo á kosningavöku okkar á Park Inn by Radisson Reykjavik Keflavik Airport sem hefst klukkan 21:00. Sjáumst þar!💙
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the business
Website
Address
Grófin 8
Keflavík
