Brunavarnir Suðurnesja

Call Directions Website Contact the organization

Brunavarnir Suðurnesja Brunavarnir Suðurnesja sinna sjúkraflutningum, slökkviliðs- og björgunarstörfum ásamt mengunaróhöppum, vatnslekum og ýmsu öðru.

Í dag tókum við á móti böngsum og hjálmum frá Kiwanisklúbbnum Keili🧸⛑️Þessar gjafir nýtum við fyrir yngstu kynslóðina ti...
19/10/2026

Í dag tókum við á móti böngsum og hjálmum frá Kiwanisklúbbnum Keili🧸⛑️

Þessar gjafir nýtum við fyrir yngstu kynslóðina til að veita þeim öryggi og hlýju þegar á reynir!

Við færum Kiwanisklúbbnum kærar þakkir fyrir gjöfina og hlýhuginn sem henni fylgir!👏🏼🤎

❤️ Við getum öll bjargað lífi!Í dag, 16. október, er alþjóðlegur dagur endurlífgunar.Þegar hjartað stöðvast skiptir hver...
16/10/2026

❤️ Við getum öll bjargað lífi!

Í dag, 16. október, er alþjóðlegur dagur endurlífgunar.

Þegar hjartað stöðvast skiptir hver sekúnda máli. Rétt viðbrögð nærstaddra geta skipt sköpum og aukið líkur á að einstaklingur lifi af.

🚨 Ef þú verður vitni að hjartastoppi:
❤️ Hringdu strax í 112.
❤️ Byrjaðu hjartahnoð og fylgdu leiðbeiningum neyðarvarðar.
❤️ Fáðu einhvern til að sækja hjartastuðtæki ef það er tiltækt.
❤️ Haltu áfram þar til hjálp berst.

Það þarf ekki að vera heilbrigðisstarfsmaður til að bjarga mannslífi. Við hvetjum alla til að kynna sér grunnatriði endurlífgunar og læra að nota hjartastuðtæki.

Þú gætir einn daginn bjargað lífi. ❤️

D-vakt Brunavarna Suðurnesja fór í dag í heimsókn um borð í varðskipið Þór, sem liggur nú í Njarðvíkurhöfn.Páll Geirdal ...
06/10/2026

D-vakt Brunavarna Suðurnesja fór í dag í heimsókn um borð í varðskipið Þór, sem liggur nú í Njarðvíkurhöfn.

Páll Geirdal skipherra tók vel á móti vaktinni og sýndi okkur skipið. Farið var yfir slökkvi- og öryggisbúnað um borð ásamt ýmsum öðrum búnaði og starfsemi skipsins.

Við þökkum Páli og áhöfninni kærlega fyrir góðar móttökur og fróðlega heimsókn. ⚓️🚒

Tölfræði frá september er klár 🚑🚒
04/10/2026

Tölfræði frá september er klár 🚑🚒

Þrír starfsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja eru þessa stundina staddir í Austurríki þar sem þeir sækja CBRNE-námskeið með...
15/09/2026

Þrír starfsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja eru þessa stundina staddir í Austurríki þar sem þeir sækja CBRNE-námskeið með áherslu á viðbrögð við eitur- og hættulegum efnum.

Á námskeiðinu eru einnig þátttakendur frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Slökkviliði Akureyrar og Brunavörnum Árnessýslu.

Námskeiðið er mikilvægur liður í að efla þekkingu og færni viðbragðsaðila þegar kemur að krefjandi verkefnum þar sem hættuleg efni koma við sögu.

Meðfylgjandi myndir eru frá fyrstu dögum námskeiðsins.

Í dag, 8. september, fór fram forvarnardagur ungra ökumanna í Reykjanesbæ fyrir nemendur á fyrsta ári í Fjölbrautaskóla ...
08/09/2026

Í dag, 8. september, fór fram forvarnardagur ungra ökumanna í Reykjanesbæ fyrir nemendur á fyrsta ári í Fjölbrautaskóla Suðurnesja.

Markmið dagsins er að vekja ungt fólk til umhugsunar um þá ábyrgð sem fylgir því að vera í umferðinni og þær alvarlegu afleiðingar sem umferðarslys geta haft.

Brunavarnir Suðurnesja tóku þátt í deginum með sviðsettu umferðarslysi, þar sem nemendur fengu að fylgjast með viðbrögðum við alvarlegu slysi. Starfsmenn okkar sinntu þar sjúkraflutningum og björgun úr ökutæki líkt og gert væri á raunverulegum vettvangi. 🚒🚑

Með sviðsetningunni fá nemendur að sjá með raunhæfum hætti hvernig vettvangur alvarlegs umferðarslyss getur litið út og hversu umfangsmikil viðbrögðin geta orðið.

Forvarnardagurinn er samstarfsverkefni Reykjanesbæjar, Lögreglunnar á Suðurnesjum, Brunavarna Suðurnesja, Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Tryggingamiðstöðvarinnar og Samgöngustofu.

Við þökkum öllum sem komu að deginum fyrir gott samstarf. ❤️

Ágústmánuður er að baki og var nóg um að vera hjá okkur, bæði í sjúkraflutningum og útköllum slökkviliðs. 🚑🚒Nú stendur L...
05/09/2026

Ágústmánuður er að baki og var nóg um að vera hjá okkur, bæði í sjúkraflutningum og útköllum slökkviliðs. 🚑🚒

Nú stendur Ljósanótt yfir og að venju erum við með viðbragðsvakt niðri í bæ, tilbúin að bregðast við ef þörf krefur.

Njótum hátíðarinnar saman, pössum upp á hvert annað og förum varlega. 🚒

Gleðilega Ljósanótt! 🎆

Á dögunum undirrituðu Lögreglan á Suðurnesjum, Brunavarnir Suðurnesja og GTS viljayfirlýsingu sem snýr að fólksflutningu...
02/09/2026

Á dögunum undirrituðu Lögreglan á Suðurnesjum, Brunavarnir Suðurnesja og GTS viljayfirlýsingu sem snýr að fólksflutningum við neyðaraðstæður.

Viljayfirlýsingin felur í sér að GTS geti lagt til rútu og aðstoðað við fólksflutninga þegar þörf er á að rýma stærri byggingar, til dæmis vegna eldsvoða eða annarra neyðaraðstæðna.

Við kunnum GTS miklar þakkir fyrir þetta mikilvæga framlag og góða samstarf, sem verður samfélaginu að kostnaðarlausu.

Address

Flugvellir 33
Keflavík
230

Telephone

+3544214748

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Brunavarnir Suðurnesja posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Organization

Send a message to Brunavarnir Suðurnesja:

Shortcuts

Share