04/02/2026
Sýningin Vorferð í Skaftafellsstofu - Vatnajökulsþjóðgarður Í október 2025 var sýning Jöklarannsóknafélags Íslands: Vorferð sett upp í farandsýningarrými Skaftafellsstofu.
Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Fótspor - félag um sögu og minjar í Skaftárhreppi, Landmark & historical place, Kirkjubæjarklaustur.
04/02/2026
Sýningin Vorferð í Skaftafellsstofu - Vatnajökulsþjóðgarður Í október 2025 var sýning Jöklarannsóknafélags Íslands: Vorferð sett upp í farandsýningarrými Skaftafellsstofu.
01/10/2025
Kæru félagar. Um næstkomandi helgi ætla Fótspor í vinnuferð í skýlið við Skaftárósvita, ef veður leyfir. Búið er að kaupa efni í að endurnýja þakið á skýlinu og er ætlunin að koma því á húsið ef mögulegt er. Við vonumst að sjálfsögðu eftir að sem flestir sjái sér fært að koma með okkur,því margar hendur vinna létt verk. Sjáumst sem flest 🙂
Stjórnin.
Fótspor – félag um sögu og minjar í Skaftárhreppi
AÐALFUNDARBOÐ
Aðalfundur Fótspora – félags um sögu og minjar í Skaftárhreppi verður haldinn:
Fimmtudaginn 25. september kl. 20:00
í Þekkingarsetrinu, Klausturvegi 4, Kirkjubæjarklaustri.
Dagskrá fundarins
1. Fundur settur
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara
3. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram til afgreiðslu
4. Ársskýrsla stjórnar kynnt og lögð fram til afgreiðslu
5. Reikningar liðins árs kynntir og lagðir fram til afgreiðslu
6. Lagabreytingar (ef fyrir liggja)
7. Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga
8. Umræður og afgreiðsla verkefna- og fjárhagsáætlunar
9. Ákvörðun árgjalds
10. Önnur mál
11. Fundarslit
Allir félagar eru hvattir til að mæta og taka þátt í starfi félagsins.
Stjórn Fótspora – félags um sögu og minjar í Skaftárhreppi
24/12/2023
04/11/2023
Farið með nýja gestabók í skýlið við Skaftárós og skipt um ljósaperur þar í morgun. Allt í lagi með vatnið núna og aðkoman að húsinu góð.
08/10/2023
Fengum tilkynningu í vikunni um stíflað klósett í skipbrotsmannaskýlinu við Skaftárósvita og væri aðkoman ekki aðlaðandi. Í dag fór því átta manna og tveggja hunda flokkur þangað niðureftir til að takast á við herlegheitin, og þótti ekki af veita miðað við lýsingar. Það kom fljótt í ljós að verkunin var ekki eins slæm og talið var, og gekk bæði fljótt og vel að senda stífluna sína leið. Stíflugerðin kom til af því að vatnsdælan hafði “misst vatnið” og virkaði ekki. Því var kippt liðinn og virkar allt þar núna eins og það á að gera. Það þarf þó að fara fljótt aftur og endurnýja ljósaperur, bæta og uppfæra merkingar og fara með nýja gestabók. Takk fyrir daginn þið sem komuð að þessu í dag.
Aðalfundur Fótspora verður haldinn mánudaginn 28. ágúst kl 19:00 í Kirkjubæjarstofu. Á dagskránni eru hefðbundin aðalfundarstörf. Að aðalfundi loknum mun Vera Roth kynna meistaraverkefni sitt í Hagnýtri menningarmiðlun frá HÍ sem fjallar um skráningu og hnitsetningu fornra ferðaleiða í Skaftárhreppi.
Vinsamlega látið þetta berast til þeirra sem gætu haft áhuga og eru ekki virkir hér á Facebook.
Stefnt er að því að senda fundinn einnig út á netinu.
21/04/2022
Hvar gæti brúarteikning Kjarval leynst? 🤔
Veistu um teikninguna af Kjarvalsbrúnni? Veistu um teikningu sem Kjarval gerði af brú yfir Skaftá? Vinsamlegast hafðu samband ef þú hefur einhverjar vísbendingar í netfangið [email protected] G
Vegna COVID er aðalfundinum sem vera átti 31. mars frestað. Vinsamlega látið þetta berast til þeirra sem ekki eru hér á Facbook.
Gleðilega páska.
Sjórnin.
Aðalfundur Fótspora verður haldinn miðvikudaginn 31. mars klukkan 19:30 í nýju húsnæði þekkingarsetursins á Klaustri. Á dagskránni eru hefðbundin aðalfundarstörf.
Klukkan 20:00 munu Vera Roth og Lilja Magnúsdóttir kynna verkefnið "Strandminjasafn að Hnausum".
Allir velkomnir.
Stjórnin
28/02/2021
Hugmyndir um framtíð Hnausa í Meðallandi verða til umfjöllunar í þættinum "Um land allt" á Stöð 2 annað kvöld (mán. 1. mars)
Safn um sögu skipsstranda verði í gömlum sveitabæ í Meðallandi - Vísir Skaftfellingar vilja taka fornfræg bæjarhús að Hnausum í Skaftárhreppi undir safn um sögu skipsstranda. Strandlengjan úti fyrir Meðallandi var illræmd fyrr á tímum sökum tíðra skipsskaða.