05/09/2026
Vetur gengur í garð!
Þótt september tilheyri íslensku sumri skv. skilgreiningu Veðurstofu lýðveldisins er komin vetur í íþróttamiðstöðinni á Laugum. Þannig hefur verið gengið frá á íþróttavellinum því sem tilheyrir sumarstarfi íþrótta og á mánudag þann 07unda september nk. kl. 07:30 tekur formlega við vetraropnun miðstöðvarinnar. Skólastarf er þegar hafið og þann dag koma nemendur Þingeyjarskóla í íþróttir og sund, sama dag nemendur Framhaldsskólans.
Svo sem áður hefur verið greint frá er vetraropnun svofelld:
Mánudagar t.o.m. fimmtudagar kl. 07:30-09:30 og 15:00-21:30
Föstudagar kl. 07:30-09:30 og 13:00-19:00
Laugardagar kl. 12:00-16:00
Sunnudagar Lokað