Björgunarsveitin Ingunn

Björgunarsveitin Ingunn

Share

Björgunarsveitin Ingunn er staðsett á Laugarvatni og er nefnd eftir síðustu húsfreyjunni á bænum. Styrktarreikningur: 0133-15-011466
Kt. 500692-2199

26/05/2026

Þann 13. maí fór fram aðalfundur Ingunnar. Farið var yfir hefðbundin funarstörf og svo kosið til stjórnar. Ekki urðu miklar breytingar á stjórn. En ný stjórn skipa. Magnús Bjarki Snæbjönsson, Formaður. Jón Forni Snæbjörnsson, Gjaldkeri. Vera Sólveig Ólafsdóttir, Ritari. Anna Sigríður Sigurjónsdóttir, Meðstjórnandi. Anthony Karl Flores, Meðstjórnandi. Grímur Kristinsson og Samuel Pascal Strodel, Varamenn.

Báru særðan mann yfir úfið hraun 18/04/2026

Sveitum á svæði 3 barst útkall kl 20:07 í gærkvöldi. Félagar frá Ingunni ásamt mannskap frá Tintron og Árborg aðstoðu við að flytja sjúkling af slysstað og í sjúkrabíl.

Aðgerð lauk um 21:30

Báru særðan mann yfir úfið hraun Rétt um áttaleytið í gærkvöldi voru björgunarsveitirnar Ingunn á Laugarvatni, Tintron í Grímsnesi og Björgunarfélag Árborgar kallaðar út á hæsta forgangi vegna slasaðs einstaklings við Davíðsgjá sem er við austanverða Vatnsvík í Þingvallavatni.

02/04/2026

Ágætu gönguskíðaiðkendur uppsveita og nágrennis. Nú höfum við dregið fram sporið og lagt um þorpið. Endilega njótið.

30/12/2025

Gleðilega hátíð kæru vinir.

Flugeldasýningin okkar á gamlárskvöld er alfarið kostuð af styrkfé.
En björgunarsveitin hætti sölu flugelda árið 2019. Hægt er að styrkja sýninguna um frjálst framlag með millifærslu í banka.

Bankareikningur okkar er:
Kt. 500692-2199
Bnr. 0325-13-000152

Skýring með færslu: Styrkur

Við erum skráð á almannaheillaskrá Skattsins. Styrkir til sveitarinnar eru frádráttarbærir frá skatti. Styrkir einstaklinga á bilinu, 10-350 þús. kr. á almanaksári. Allt að 1,5% af rekstrartekjum fyrirtækja. Síðasti bankadagur ársins 2025, er 30. desember.

Við þökkum kærlega fyrir veittan stuðning til sveitarinnar í gegnum tíðina með von um að þið eigið góð og örugg áramót.

Photos from Björgunarsveitin Ingunn's post 16/11/2025
08/11/2025
08/11/2025

Sveitarfélagið Bláskógabyggð fékk afhentan fyrsta neyðarkallinn nú í ár. Við þökkum kærlega fyrir allan stuðninginn við starf björgunarsveitarinnar.

06/11/2025

Við styrkjum Björgunarsveitina Ingunni á Laugarvatni með kaupum á neyðarkallinum Björgunarsveitin Ingunn

Want your business to be the top-listed Government Service in Laugarvatn?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Address


Laugarvatn
840