02/06/2026
Þá er yfirlit 2 komið upp og tveir bekkir búnir að skila öllum sínum bókum. Næsta yfirlit kemur upp á fimmtudaginn. Það verður spennandi að sjá hvernig staðan er þá ♥️🙂
Skólasafn Lágafellsskóla
02/06/2026
Þá er yfirlit 2 komið upp og tveir bekkir búnir að skila öllum sínum bókum. Næsta yfirlit kemur upp á fimmtudaginn. Það verður spennandi að sjá hvernig staðan er þá ♥️🙂
29/05/2026
Fyrsta yfirlitið yfir útlán árganga fór upp í dag og hafa nemendur verið duglegir að skila bókum í dag. Það verður spennandi að sjá hvernig staðan verður á þriðjudagsmorguninn :-) En ég vil taka það fram að ALLIR bekkir fá verðlaun þegar þeir hafa skilað sínum bókum (ekki bara þeir sem eru fyrstir að skila) og allir nemendur sem skila öllum sínum bókum fá flott bókamerki :-)
28/05/2026
Einn nemandi skólans kom með þessar bækur en þær eru gjöf frá Dropanum, styrktarfélagi sykursjúkra barna. Takk kærlega fyrir Adam Eldjárn, þær koma sér vel ❤️
18/05/2026
Borgarbókasafnið og almenningsbókasöfn um allt land hafa boðið upp á skemmtilega lestraráskorun síðastliðin sumur. Í ár ber áskorunin, eða sumarlesturinn yfirskriftina Gúndi geithafur og grasleitin mikla og hefst 20. maí og stendur yfir til 20. ágúst. Um er að ræða sumarlesturshefti sem í raun er vegabréf með landakorti. Með Gúnda geithafri heimsækja börnin til dæmis Huðnuhöfn og Hungurmóa, klöngrast yfir Kiðagil, laumast yfir Jarmá og trítla á Dindilströnd á leið sinni í Grænuhlíð, þar sem grasið er alltaf grænna! Markmiðið er að lesa í 15 mínútur í senn og merkja svo við hvert barnið er komið á leið Gúnda frá Heimahögum til Grænuhlíðar. Við fjórða hvern lestur hafa börnin lesið í klukkustund og geta þá farið í næsta bókasafn og fengið stimpil í vegabréfið ásamt happamiða til að setja í lukkupott. Kíkjið endilega við á Bókasafn Mosfellsbæjarað til að næla ykkur í vegabréf og leggja
af stað í grasleitina miklu með Gúnda geithafri.
18/05/2026
Viltu læra gera myndasögur? Þá er sniðugt að skella sér á skemmtilegt námskeið í Bókasafni Mosfellbæjar í júní í sumar :-)
05/05/2026
Nú fer að líða að því að skólasafnið þurfi að fara takmarka útlán bóka og kalla inn bækur því það er stutt í skólaslit. Það verður þó gert rólega og í áföngum :-)
Í næstu viku hættir sjálfsafgreiðsla en þá mun Kristín sjá um að skrá bækur í kerfið og fylgjast með útlánum og þá mega nemendur aðeins hafa tvær bækur í láni. Í vikunni þar á eftir og fram til 29. maí mega nemendur bara hafa eina bók í láni sem þeir ættu að geta notað bæði heima og í skólanum. Eftir að útlánum er hætt er þó alltaf hægt að nálgast bækur á skólasafninu sem ekki eru skráðar í lánskerfið og því ætti enginn að vera uppskroppa með lesefni :-)
17/04/2026
Í dag á Sævar Helgi Bragason afmæli en hann fæddist 17. apríl 1984. Sævar Helgi er rithöfundur, dagskrárgerðarmaður, fyrirlesari og alþýðufræðari. Hann er jarðfræðingur að mennt, stjörnufræðikennari og hefur hlotið ýmis verðlaun fyrir framúrskarandi miðlun vísinda til almennings, sér í lagi barna.
Undanfarin ár hefur hann starfað við dagskrárgerð í útvarpi (Rás 1 og Rás 2) og sjónvarpi þar sem hann var umsjónarmaður vinsælla þátta um umhverfismál, Hvað höfum við gert? (2019) og Hvað getum við gert? (2021) sem sýndir voru á RÚV. Hann starfaði einnig hjá KrakkaRÚV þar sem hann sagði Krakkafréttir og hélt úti útvarpsþætti fyrir krakka um vísindi og tækni.
Haustið 2020 endurvakti hann ásamt öðrum Nýjasta tækni og vísindi á RÚV. Sævar hefur mikla reynslu af lifandi og skemmtilegri fræðslu og skemmtunum um vísindi og náttúruna fyrir fólk á öllum aldri.
Sævar hefur gefið út fjölmargar vísindabækur fyrir bæði börn og fullorðna. Hann veitti einnig ráðgjöf við þýðingu bókanna Viltu vita meira um jörðina?, Viltu vita meira um vísindin? og Viltu vita meira um himingeiminn? og aðstoðaði „Vísinda Villa“ við gerð bókarinnar Vísindabók Villa – geimurinn og geimferðir.
25/03/2026
Nú styttist í páskana og því tilvalið að grípa með sér gula bók í páskafríið 💛 Páskalestur er bestur 🐣🐥🐤🐰
23/03/2026
Skólasafnið var svo heppið að fá þennan flotta bókastafla að gjöf frá einum nemanda skólans í 10. bekk. Þær bækur sem ekki fara í hillur bókasafnins fara í bókakassa út í bekki. Takk kærlega fyrir Vignir Óli :-)
19/03/2026
Nemandi í Lágafellsskóla, hún Gabríela Rós Daníelsdóttir í 4. bekk tók þátt í þessum skemmtilega útvarpsþætti sem Embla Bachmann sér um á RÚV „Hvað ertu að lesa? Í þáttunum fjallar Embla um barnabækur úr öllum áttum, gamlar og nýjar og ræðir við höfunda, þýðendur, myndhöfunda, leikara og alls konar fólk sem kemur að barnabókum á einn eða annan hátt, að ógleymdum lesendunum sjálfum. Flottir og fróðlegir þættir og Gabríela Rós okkar stóð sig súper vel ❤️ Sjá nánar þáttinn: Risaland, furðulegur fjársjóður og að teygja sig í klósettpappírinn 😊
Hvað ertu að lesa? - Spilari RÚV Hverjir eru þessir risar? Hvað er Risaland? Af hverju eru hlutir svona hátt uppi eða langt í burtu?Birna Daníelsdóttir segir frá bókinni Ég bý í Risalandi sem byrjaði sem lokaverkefni í Myndlistarskólanum. Hún lærði líffræði en tók u-beygju og starfar sem listakona í dag.Bóka...